Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Blaðsíða 48
EPA
Mark Sölva fyrir FC Kaupmannahöfn gegn Rosenborg tryggði FCK þátt-
tökurétt í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.
mjög mikilvæg regla og hluti af
regluverki FCK. Hann braut þessa
reglu og þurfti síðar að biðjast af-
sökunar. Ég var virkilega fúll að
ég væri ekki í liðinu, eins og ég
segi þá fannst mér ég vera besti
varnarmaðurinn þarna, en ég var
ekkert að haga mér eins og smá-
krakki á æfingum. Það er hægt að
hafa samband við hvaða þjálfara
sem ég hef spilað undir og hann
staðfestir að ég legg mig alltaf
fram.
Jacobs var líka tekinn á teppið
fyrir þetta. Ég fílaði hann aldrei
sem þjálfara og hann gaf mér
aldrei séns. Sumir þjálfarar eru
bara þannig. Hann tók annan leik-
mann líka svona fyrir. Sagði í
blaðaviðtölum að hann gæfi aldrei
krökkum eiginhandaráritanir og
annað í þeim dúr. Kom slæmu orði
á hann en þessi gæi var topp-
maður í alla staði.
Ég veit ekki hvort hann var að
sýna öðrum leikmönnum að það
væri hann sem réði en þetta var
allt mjög undarlegt.“
Þrátt fyrir að vera í frystinum
var Sölvi ekki gleymdur knatt-
spyrnutoppum um Evrópu og það
var mikill áhugi á hans undirskrift.
Frá Englandi, Þýskalandi, Grikk-
landi, Tyrklandi og Norðurlönd-
unum, sem Sölvi sagði pent nei
takk við. „Mér fannst sá kafli bú-
inn á mínum ferli,“ segir hann en
Sölvi fagnaði sænska meistarabik-
arnum með Djurgården 2005 auk
þess að verða tvisvar sinnum bik-
armeistari með liðinu. Hjá FCK
vann hann dönsku deildina tvisvar
og varð einu sinni bikarmeistari.
Nú vildi hann fara í stærri deild
og rússneska deildin er sögð vera
sú áttunda sterkasta í Evrópu.
„Mér leist strax vel á rússnesku
deildina. Þetta er náttúrulega mik-
ið ævintýri og að spila í svona
sterkri deild gerir ævintýrið bara
skemmtilegra. Þarna er ég að spila
á móti mjög góðum leikmönnum,
jafnvel heimsklassa mönnum eins
og þeir sem eru í stóru liðunum í
deildinni eins og Zenit frá Péturs-
borg, Moskvu-liðunum og Rubin
Kazan. Svo eru fleiri lið þarna
mjög góð.“
Skömmu fyrir viðtalið fór fram
leikur Ural og Zenit frá Péturs-
borg þar sem Sölvi átti góðan leik
og hélt framherjanum Hulk niðri.
Hulk er af mörgum talinn einn
allra besti framherji heims og
kostaði Zenit-liðið 40 milljónir evra
þegar hann var keyptur til félags-
ins. Peningarnir í toppliðunum í
Rússlandi eru gríðarlega miklir,
jafnvel óraunverulegir en Samuel
Eto’o var leikmaður Anzi í Rúss-
landi og var þá launahæsti knatt-
spyrnumaður heims. Sölvi vakti at-
hygli rússnesku stórliðanna með
frammistöðu sinni gegn Hulk og
Zenit. Janúarglugginn er að opnast
og nafn Sölva hefur verið nefnt við
stóru liðin.
„Rússarnir eru ekkert að fylgj-
ast mikið með því hvað er að ger-
ast fyrir utan Rússland. Ef maður
kemst inn í landið og stendur sig
vel þá koma stóru liðin og taka
eftir manni.“ Ural-liðið er í fallsæti
eins og er en frammistaða Sölva
hefur verið ljósi punkturinn.
Geggjað í Grosny
Rússland er gríðarlega stórt land
þar sem vegalengdirnar eru miklar
í alla leiki. Ural-liðið flýgur í alla
leiki, þrjá tíma hið minnsta. „Ég
fæ alltaf þrjú sæti, það er séð til
þess að ég hafi eina lengju fyrir
mig þannig ég leggst bara. Það
hefur hjálpað mikið og álagið á
bakið er minna fyrir vikið þannig
að ég get spilað. Ég held að það
séu níu tímabelti í Rússlandi og ég
veit ekki hversu oft ég er búinn að
breyta klukkunni á símanum mín-
um.“
Terek Grosny er í rússnesku
deildinni en flestir tengja Grosny
við hryðjuverk og blóðsúthellingar
frekar en fótbolta. Sölvi spilaði í
Grosny og segir það hafa verið
ákveðna upplifun. „Við keyrðum
þarna í gegn og ég held ég hafi
talið 50 brynvarða bíla, bara frá
hótelinu og að leikvanginum. Þegar
við keyrðum út á völl var öllu lok-
að fyrir okkur, sérsveitin var á
undan okkur og á eftir og svo var
rútan bara stigin í botn. Ekkert
stoppað.
Síðan kom maður á völlinn og
það er eiginlega ekkert hægt að
útskýra hvernig stemningin var.
Hún var ótrúleg. Það má ekki
blóta á vellinum og allir eru kurt-
eisir en ofboðsleg stemning. Her-
menn út um allt með alvæpni.“
Sölvi segir að stuðið sé oft mikið
á pöllunum í rússnesku deildinni,
þarna sé mikil stemning þó margt
annað sé í ólagi. Það vissi hann
svo sem fyrir en hann er lítið að
velta því fyrir sér. Hann vill bara
spila fótbolta og gera það vel. „Ég
vissi að völlurinn hjá Ural væri
fínn og það var alveg nóg. Það
skiptir mig litlu máli hvort bún-
ingsklefinn er úr sandi og sturt-
urnar með litlum krafti. Ég þarf
ekkert meira en gras og bolta.
Æfingasvæðið okkar er fínt,
búningsklefarnir eru … Já, bara
eiginlega ekkert sérstakir en ég
meina: aðstæður til að spila fót-
bolta eru frábærar, maður þarf
ekkert meira.“
Völlur Ural-manna heitir Central
Stadium og þar munu fara fram
nokkrir leikir á Heimsmeist-
aramótinu sem fram fer í Rúss-
landi 2018. Það er því verið að
taka hann allan í gegn sem og
borgina, því umsókn Rússa var ná-
kvæm og skýr hvað varðar
borgirnar og leikvangana.
Allt myndi verða í
himnalagi. Völlurinn
tekur 27 þúsund
manns í sæti en eftir
breytingar verður
pláss fyrir 40 þús-
und manns. „Ég sá
nokkra leiki með
liðinu og vissi að
ef ég yrði í lagi
þá myndi ég
spila alla leik-
ina.“ Hann bæt-
ir því við að það
séu engin und-
anskot eða neitt
slíkt hjá Rúss-
unum. „Allt stenst
sem þeir segjast
ætla að gera og
allt er á
tíma. Eng-
in
vanda-
mál,
bara lausnir. Rússarnir eru mjög
Leikmenn FCK umkringja Sölva eftir markið fræga. Sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar fylgir gríðarlegur fjárhagslegur ávinningur og í dönskum miðlum var skotið á að mark Sölva hefði verið um 2
milljarða króna virði. Hann er enn í miklum metum hjá stuðningsmönnum liðsins eftir veru sína þar. Hann var fyrirliði liðsins um tíma en settur í frystinn af þjálfaranum.
AFP
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.1. 2014
Sölvi hóf landsleikjaferil sinn
2005 gegn Póllandi. Hann hefur
leikið 22 landsleiki.