Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Síða 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Síða 49
flottir og það hefur allt staðist sem mér var lofað. Þegar ég ræddi við umboðs- manninn minn þá sagði hann að þetta væri bara gömul mýta með Rússana. Það er ekkert bull í gangi eins og til dæmis í deild- unum í Grikklandi og Tyrklandi. Þeir hafa staðið við allt sitt gagn- vart mér þannig að ég get ekki annað en verið sáttur.“ Má ekki keyra Yekaterinburg er fjórða stærsta borg Rússlands og þar býr rúm- lega ein og hálf milljón manna. Það er því ekkert sem vantar í borgina og í miðbænum er allt til alls þar sem Sölvi býr. Hann kann vel við sig í borginni og hefur hitt ann- an Íslend- ing sem þar býr en sá hafði upp á Sölva þegar hann frétti að hann léki með lið- inu. Móðir mannsins hafði séð viðtal við Sölva á íþróttavef mbl í tengslum við lands- liðsverkefni. „Ég hitti hann og það var gaman að heyra íslensku svona langt frá fósturjörðinni. Það var mjög spes. Það er aðeins einn leikmaður Ural sem talar ensku þannig að það var kær- komið að tala á sínu tungumáli.“ Leikmenn Ural eru flestir Rússar og Armenar, svo er einn Serbi og Chisamba Lungu, sá er talar ensku, er frá Sambíu. Ég er með íbúð í mið- bænum frá klúbbnum sem er voða fínt. Þegar það kom í ljós að ég mætti ekki keyra þarna úti setti ég þá kröfu að ég fengi íbúð í miðbænum. Þeir treysta ekki hverjum sem er til að keyra þarna þannig ég er með einkabílstjóra sem skutlar mér á æfingar og til baka. Ég labba bara í miðbæinn og þarf svo sem ekkert bíl. Vegakerfið þarna úti er skelfi- legt. Ég hef aldrei séð annað eins. Ekki einu sinni í bíómyndum. Ég keyri eina 15-20 kílómetra á æf- ingasvæðið og maður er stundum klukkutíma að komast. Umferð- arreglurnar eru hálf-skrýtnar. Þetta er eiginlega allt einstefna þannig að það þarf að vera mjög vakandi yfir því hvert maður á að beygja. Ætli sé ekki einfaldast að segja að Rússar séu mjög ákveðnir í umferðinni.“ Sölvi segist ekki vera besti kokkur í heimi og borða yfirleitt úti. Það er úr nægum stöðum að velja í miðborginni og maturinn og matarmenning Rússa hefur komið honum á óvart. „Þeir leggja mikla áherslu á mat. Hann er algjört sælgæti, ég nefnilega bjóst við ein- hverjum viðbjóði en rússnesk mat- argerð hefur komið mér mjög á óvart. Í svona stórborgum er þetta allt í lagi. Nánast hvar sem þú ert í heiminum. Þetta er milljónasam- félag og allt til alls þarna. Yfir engu að kvarta.“ Fá bók frá Lars Það er auðvitað ekki hægt annað en að ræða um landsliðið við Sölva. Breytingin við að fá at- vinnumann til að þjálfa atvinnu- menn hefur reynst vel og landinn er mjög jákvæður gagnvart lands- liðinu. Fullt er á Laugardalsvelli og árangurinn sem náðist á síðasta ári var magnaður eins og heims- byggðin tók eftir. Sölvi spilaði sinn fyrsta landsleik 2005 og segir hann að breytingin sé fyrst og fremst fólgin í undirbúningi leikjanna. „Það er jákvætt hvað Lars er að gera. Hann og Heimir Hall- grímsson eru að koma með svo mikinn undirbúning fyrir leiki að það er eiginlega með ólíkindum. Mér finnst stóri munurinn liggja þar. Þeir undirbúa hvern leik ótrú- lega vel og fara vel yfir hvert smá- atriði. Hver leikmaður fær bók um alla leikmenn og hverju þeir eru sterkir í og hvað þeir munu gera í komandi leik. Þetta er meiri ný- tískuþjálfun. Lalli er auðvitað hokinn af reynslu en það eru kynslóðaskipti og þvílík kynslóð sem kom upp. Ólafur Jóhannesson, fyrrum lands- liðsþjálfari, gerði vel að koma með þá alla inn og tók áhættu á sínum tíma. Það kannski bitnaði á úrslit- um á þeim tíma en hann gerði strákana miklu betur undirbúna fyrir komandi átök. Það eru allir sáttir við þessa breytingu, meira að segja ég sem var kominn á bekkinn. En maður hugsar öðruvísi þegar maður er í landsliðinu. Þá vill mað- ur að öllum gangi vel og að við vinnum. Auðvitað var ég svekktur og fúll að ég skyldi missa sætið mitt en Kári [Árnason] og Raggi [Ragnar Sigurðsson] stóðu sig það vel að ég studdi þá bara og hjálp- aði eftir bestu getu. Ef maður missir sætið sitt þá styður maður þá sem eru að fara að spila. Þegar þeir standa sig síðan svona vel eins og þeir gerðu þá gat ég eig- inlega ekkert sagt. Ég gat ekkert farið upp að Lalla og sagt; Hvað ertu að spá? Af hverju ertu ekki með mig þarna inná? Þetta var bæði gleðiefni og svek- kelsi því liðinu gekk mjög vel en á sama tíma var ég ekki partur af því. En ég gat bara ekkert sagt.“ Hann segir þó að árangurinn undanfarið sé magnaður og mikill atvinnumannabragur á öllu lands- liðinu, stutt sé í brosið og glensið þegar landsliðið kemur saman. „Gleðin var alltaf til staðar þegar maður kom í landsliðið hérna í den þrátt fyrir árangurinn en hún er kannski meiri núna. Maður er afslappaðri og fólk er komið á völlinn til að hvetja okkur til dáða. Það gefur manni miklu meira þegar fólk mætir og styður okkur. Þetta er allt annað en þeg- ar það voru einhverjar nokkrar hræður sem sátu lengst í burtu bak við hlaupabrautina. Enda miklu skemmtilegra að taka þátt í þessu þegar þjóðin styður okkur.“ Einbeitir sér að núinu Rússneska deildin er í jólafríi. Hún hefst aftur í byrjun mars og á Sölvi að vera mættur út til skyldu- starfa nú í lok janúar. Þá hefst annað undirbúningstímabil þar sem farið verður til Dúbai, Grikklands og Tyrklands, alls í einn og hálfan mánuð. Ural er sem stendur í fall- sæti en þjálfarinn gaf það út í rússneskum fjölmiðlum milli jóla og nýárs að liðið yrði styrkt, pen- ingarnir væru til og verið væri að semja við tvo nýja menn. Spartak Gogniyev, sem er markahæstur í Ural-liðinu, og Sölvi eru í sömu miðlum sagðir verða áfram. Sölvi er 29 ára og segir að hann ætli sér að koma fyrr heim en hann áætlaði áður. Enda er ekkert grín að vera frá fjölskyldu og vin- um. Hvað þá 4265 kílómetra í burtu. Hann er með nokkur járn í eldinum, hvað hann muni gera eft- ir að ferlinum lýkur en ætlar ekki að gefa það upp að svo stöddu. „Ég er kominn með einhverjar hugmyndir. Ég er bara að einbeita mér að núinu og fótboltanum núna. Ég tek kannski nokkur ár í viðbót en ætla að koma fyrr heim en ég gerði ráð fyrir. Það er bara vegna þess að fjölskyldan er komin til Ís- lands og ég ætla ekkert að vera frá henni í tvö til þrjú ár. Það er fínt að koma til Íslands og geta eitthvað í fótboltanum ennþá. Hjálpa Víkingum kannski,“ segir Sölvi um leið og hann klárar teið sitt. Fjölskyldan bíður og hann er búinn að vera nógu lengi frá henni. Best að tefja hann ekkert frekar. Sölvi fékk rauða spjaldið gegn Kýpur í undankeppni HM. Hann spilaði aðeins einn leik eftir rauða spjaldið. Ljósmynd/Sakis Savvides Íslenska landsliðið í knattspyrnu komst alla leið í umspilsleiki gegn Króatíu. Sölvi gladdist mjög yfir árangrinum þó hann hefði viljað vera í liðinu. Morgunblaðið/Golli 5.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.