Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Side 51
lék hann árið 1963 og næstum aldarfjórðungi
síðar eða árið 1987 fór Þröstur Leó Gunn-
arsson með hlutverkið í Iðnó. Hilmir Snær
Guðnason var Hamlet í Þjóðleikhúsinu árið
1997 og loks Ívar Örn Sverrisson í uppfærslu
LA árið 2002.
Ólafur Darri hefur aðeins séð eina af þess-
um sýningum, þá með Hilmi Snæ, og líkaði
vel. Hann hefur líka séð kvikmyndir og erlend-
ar uppfærslur, svo sem með Mel Gibson,
Laurence Olivier, David Tennant og fleirum.
„Auðvitað er alltaf fróðlegt að sjá hvernig
aðrir hafa farið með hlutverk sem maður er að
leika en samt hef ég tilhneigingu til að forðast
samanburð. Mér finnst til dæmis alltaf erfitt
að leika fólk sem er á lífi, eins og í kvikmynd-
inni Djúpinu,“ segir hann.
Sami tíðahringurinn
Úr því við sitjum í Borgarleikhúsinu er ekki
úr vegi að spyrja nýliðann um andann í hús-
inu. Hildur Berglind segir hann góðan og um-
hverfið traust. „Mér hefur liðið vel hérna í vet-
ur. Það er gott fólk á öllum sviðum í
Borgarleikhúsinu sem hefur tekið afskaplega
vel á móti mér.“
Ólafur Darri bregður sér sem snöggvast í
ham blaðamanns og spyr hvort það séu ekki
mikil viðbrigði að koma úr skólanum í leik-
húsið. Bæði faglega og félagslega.
Hildur Berglind kinkar kolli. „Jú, það hafa
verið mikil viðbrigði. Maður er að læra nýjar
aðferðir og tengja við þær. Á sama tíma er
mikilvægt að treysta á það sem maður kann.
Leiklistarnám er mjög gott á Íslandi og engin
ástæða til að mikla hlutina fyrir sér. Fé-
lagslega hefur þetta verið erfitt, maður saknar
óhjákvæmilega félaganna úr skólanum. Maður
verður mjög náinn bekkjarfélögum sínum í
leiklistarnáminu og við stelpurnar vorum allar
komnar á sama tíðahring.“
Hún hlær.
Hildur Berglind hefur ekki fundið fyrir
neinum stjörnustælum í Borgarleikhúsinu.
„Slíkir stælar tíðkast ekki í þessari stétt, sjáðu
bara þennan mann þarna,“ segir Ólafur Darri
og bendir á mynd af Ingvari E. Sigurðssyni á
veggnum. „Þetta er líklega stærsta stjarnan í
íslenskri leiklist. Einhver almennilegasti maður
sem ég hef kynnst.“
Ólafur Darri hefur víða farið á umliðnum ár-
um og verður sárasjaldan var við dramb og
hroka. Ekki einu sinni í Hollywood. „Það er
nokk sama hvert maður kemur, virðing leikara
fyrir listinni er alls staðar sú sama. Það er líka
mín trú að maður komist lengra á því að vera
almennileg manneskja en fífl. Ég hef samt al-
veg unnið með mönnum sem eru kröfuharðir.
Það er ekki það sama og vera erfiður í sam-
starfi. Persónulega finnst mér gott að láta ýta
við mér. Það er nefnilega stutt í letidýrið í
mér. Þess vegna þykir mér mjög gaman að
vinna með fólki eins og Vesturportshópnum og
Baltasar Kormáki sem er að springa úr þörf
til að skapa. Sama á við um Jón Pál.“
Ólafur Darri hefur unnið með mörgum
heimsfrægum leikurum og leikstjórum og lært
margt af þeim. Nefnir sænska leikarann Stell-
an Skarsgård sem dæmi. Þar fari mikill meist-
ari sem sé alltaf tilbúinn að miðla af reynslu
sinni og þekkingu.
Ekki að hætta í leikhúsi
Eins og fram hefur komið leikur Ólafur Darri
í mynd Bens Stillers, The Secret Life of Wal-
ter Mitty, sem nú er í kvikmyndahúsum. Hann
er einnig búinn að leika í annarri Hollywood-
mynd, A Walk Among the Tombstones, með
Liam Neeson og fleiri köppum, en til stendur
að frumsýna hana í haust. Þá hefur Ólafur
Darri farið með hlutverk í sjónvarpsþáttum
vestra, meðal annars í True Detectives, þar
sem Woody Harrelson og Matthew McCo-
naughey eru í aðalhlutverkum. „Svo er ég í
bíómyndinni um Harry og Heimi. Get ekki
beðið eftir að hún verði frumsýnd,“ segir hann
hreykinn.
Undanfarin ár hefur Ólafur Darri aðeins náð
einni leiksýningu á ári hér heima vegna anna í
kvikmyndum, heima og erlendis. Hann getur
þó ekki hugsað sér að hætta að leika á sviði.
„Það er það síðasta sem ég myndi gera. Mér
finnst mjög gaman að leika í kvikmyndum en
það er öðruvísi að leika í leikhúsi. Þar er mað-
ur að fást við augnablikið. Af því vil ég ekki
missa. Annars er það sagan sem heillar mig
mest. Langar mig að segja hana og tel ég mig
geta bætt einhverju við hana? Ef svo er breyt-
ir engu hvort það er í leikhúsi, kvikmyndum
eða sjónvarpi.“
Sjálfsagi og dirfska
Spurð hvort hugurinn leiti til Hollywood svar-
ar Hildur Berglind því til að hana langi að
gera áhugaverða hluti. Sama hvar.
Hún á þegar eina kvikmynd að baki hér
heima, Gauragang.
Ólafur Darri segir Hildi Berglindi öfunds-
verða að koma inn í núverandi umhverfi.
Möguleikarnir séu mun meiri en fyrir hálfum
öðrum áratug þegar hann útskrifaðist. „Stóru
leikhúsin hafa líklega aldrei verið sterkari og
mikið um að vera í sjálfstæðu senunni. Þá er
kvikmyndagerð allt önnur skepna en hún var.
Mitt ráð til ungra leikara í dag er að láta ekki
deigan síga, jafnvel þótt illa gangi að fá verk-
efni. Sem listamaður verður þú að læra að
hafna höfnuninni. Á sama tíma þarftu að vera
sjálfsgagnrýninn og gefa þér aldrei afslátt. Og
óhræddur að prófa þig áfram – við lærum allt-
af mest af mistökunum.“
Hamlet og Ófelía, Ólafur Darri
Ólafsson og Hildur Berglind Arndal,
segja verkið ennþá eiga brýnt erindi,
meira en fjögur hundruð ára gamalt.
* „Mér finnst mjöggaman að leika íkvikmyndum en það er
öðruvísi að leika í leik-
húsi. Þar er maður að
fást við augnablikið. Af
því vil ég ekki missa.“
5.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
Kíktu á Facebook-síðu ÓB og giskaðu á úrslit leikja Íslands á EM
og þú átt möguleika á að vinna flug, hótelgistingu og miða fyrir
tvo á leik Íslands á EM.
Einnig áttu möguleika á að vinna gull-, silfur- og bronslykil.
strákana okkar
Sæktu um lykil núna á ob.is
ÓB-BRONSLYKILL
-10 kr.
af lítranum
í 10 skipti
ÓB-GULLLYKILL
-20 kr.
af lítranum
í 10 skipti
ÓB-SILFURLYKILL
-15 kr.
af lítranum
í 10 skipti