Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Page 53

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Page 53
5.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53 Leikverkið Lúkas eftir Guð- mund Steinsson var frum- sýnt annan í jólum og er um helgina sýnt bæði laugardag og sunnudag á sviði Kassans í Þjóð- leikhússins. Verkið var frumflutt árið 1975 og vakti þá mikla athygli. 2 Á sunnudag mun kvenna- kórinn Embla undir stjórn Roars Kvam halda vín- artónleika með Salong- hljómsveit Akureyrar í Hömrum, Hofi á Akureyri. Á dagskrá eru að sjálfsögðu valsar og polkar og ein- söngvari er Sigrún Hjálmtýsdóttir. Tónleikarnir hefjast klukkan 17. 4 Sýningu á úrvali frummynda jólamerkja Thorvald- sensfélagsins sem staðið hefur yfir í Landsbókasafni Ís- lands – Háskólabókasafni lýkur um helgina. Árið 2013 var hundraðasta merki félagsins gefið út. 5 Síðasta sýningarhelgi á verk- um Zilvinas Kempinas í Listasafni Reykjavíkur er runnin upp en í Hafnarhús- inu hefur sýningin staðið yfir frá því í september. Brunnar eru yfirskrift staðbundinnar innsetningar Kempinas þar sem segulbönd úr VHS-spólum bylgjast í gusti frá öflugum loftræsti- blásurum. 3 Fyrsta kvikmyndin sem sýnd er á Svörtum sunnudögum í Bíó Paradís í ár er Stalker frá árinu 1979, úr smiðju Andrei Tarkovsky. Myndin þykir eitt stór- brotnasta listaverk kvikmyndaleik- stjórans. Sýningin hefst kl. 20. MÆLT MEÐ 1 læra að nota þau og ég hef einhvern veg- inn allt aðra sýn á sjálfan mig. Að hafa ís- lenskan ríkisborgararétt er líka táknrænt. Ég tel að það sé allt öðruvísi fyrir mig, komandi frá átakasvæðum, að fá að til- heyra Íslandi af öllum þjóðum. Í fyrsta lagi þykir mér til þess koma af því að Ís- land hefur engan her. Þá tekur Íslandi ekki að neinu marki þátt í heims- valdastefnu stórveldanna og landið stendur í framlínu fyrir mannréttindabaráttu í heiminum. Ég finn því fyrir extra stolti og finnst ég heiðraður að fá að vera Íslend- ingur.“ Mazed segir að ennfremur telji hann að Ísland sé staður sem önnur Evrópuríki eigi að horfa til sem fyrirmyndar. Í heiminum séu á þessari stundu nærri sextíu smærri og stærri stríð í gangi og að taka ekki þátt í stríðsrekstri sé það sem Íslendingar geti verið stoltari af en nær nokkru öðru. „Við búum í kerfi þar sem allir flækjast auðveldlega inn í átök. Síðustu áratugi hef- ur mannkyninu verið stillt upp við vegg þannig að allir þurfa stöðugt að vera að taka afstöðu. Íslendingar hafa átt þess kost að geta verið hlutlausir.“ Orkan fer ekki lengur til spillis Mun það breyta einhverju fyrir þig sem rithöfund að vera orðinn íslenskur? „Þetta mun gera allt auðveldara og ekki síst verður undarlegt að geta ferðast óhindrað. Þá verður nýtt og gaman að geta kynnt mig á bókmenntasamkomum ytra sem Íslending og Palestínumann. Hvað minn ritferil varðar held ég að þetta muni hjálpa mér mikið.“ Mazen lýsir því hvernig sú mikla spenna sem hann bjó við í Líbanon hafði neikvæð áhrif á þá einbeit- inguna og listsköpun. Mazen starfaði þá lengi við blaðamennsku í Líbanon og skrif- aði þar meðal annars um átök Ísraela og Palestínumanna og að það væri ekki við Ísraela eina að sakast um hvernig komið væri fyrir Palestínumönnum. Síðustu 15 ár- in sem hann bjó í Líbanon fékk hann reglulega hótanir en steininn tók úr þegar hann fór að gagnrýna stjórnvöld í Sýrlandi. Þá urðu hótanirnar þannig að Mazen var orðinn alvarlega skelkaður. Það hefur einn- ig verið haft í hótunum við hann eftir að hann flutti til Íslands og þá í gegnum net- ið. „Í svo neikvæðu andrúmslofti, ótta og spennu, fór orkan oft til spillis. Ég myndi því segja að mér hefði orðið betur ágengt í ritstörfunum eftir að ég flutti til Íslands og ég trúi því að í þessu andrúmslofti hér verði betri skáldskapur til. Hér hef ég fundið betur hvað það er sem ég vil skrifa og hvernig ég vil skrifa það. Þetta friðsæla umhverfi er því hvetjandi til skrifta. Það er líka annað sem er einkar gefandi á Íslandi en það er hversu auð- velt það er að vera í daglegum sam- skiptum við aðra rit- höfunda og lista- menn. Það er nóg að fá sér smágöngu- túr niður í bæ til að hitta á kollega og þau samskipti eru örvandi. Þá er bóka- búðamenningin hér á heimsvísu.“ Mazen segir að raunar hafi það ver- ið það sem kom honum mest á óvart þegar hann flutti hingað til lands. Hann segist hafa vitað ýmislegt um náttúruna og lofts- lagið norðan megin á hnettinum. Mazen kenndi um hríð við raunvísindadeild Há- skóla í Líbanon og segir að í kennslunni hafi stundum verið komið inn á Ísland. „En ég vissi raunar ekkert mikið meira en um það sem snéri að náttúrunni. Ég þekkti að vísu líka Björk og Sigur Rós en það sem kom mér skemmtilega á óvart og ég vissi ekki var þetta ríka bókmennta- og listalíf.“ Ljóðabókin Ekkert nema strokleður inni- heldur ljóð úr þremur ljóðabókum Mazen en flest þeirra eru þó úr þeirri síðustu, Engill upphengdur á þvottasnúru, sem kom út í ársbyrjun 2012 í Beirút og hlaut af- bragðsdóma hjá gagnrýnendum þar í landi. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Kári Tul- inius og Sjón snöruðu ljóðaúrvalinu yfir á íslensku en auk þess ritar Aðalsteinn stutt- an eftirmála um rithöfundinn. Forsíðuna prýðir mynd eftir skáldið sjálft. Eru ljóðin pólitísk? „Nei, alls ekki. Raunar gætu ein- hverjir sagt að þetta væri ekki palestínsk bók og hún á ekki að vera það. Bókin er ekki tengd neinni sérstakri þjóðmenningu heldur vildi ég að ljóðin næðu til sem flestra. Ég held að pólitík geti auðveldlega eyðilagt list en þar með er ég ekki að segja að list sé ópólitísk. En þegar ljóð- skáld taka hagsmunabaráttu fram yfir rödd sína sem einstaklinga er útkoman sjaldnast góð fyrir lesandann. Ljóðlist frá tímum þar sem pólitík litaði listina sterkt hefur mér ekki þótt eldast vel og ég tengi sjálfur illa við þau ljóð. Þau eru afurð aðstæðna sem gufuðu upp og átaka sem er búið að setja í allt annað samhengi í dag. Persónulega finnst mér tilgangslaust að skrifa slík ljóð.“ Mazen segir að ekki sé þar með sagt að þær afleiðingar sem stjórnmál og stríð nú- tímans hafi haft á hið daglega líf sjáist ekki í ljóðunum. Hversdagslíf okkar sé mótað af þeim stjórnmálum. „Ég skrifa um sjálfan mig, tilfinningar mínar og vel ýmis smáatriði úr lífinu en hef hreinsað ljóðin af pólitískri ræðu og klisjum. Núna sitjum við á Kaffi Mokka á Íslandi en eigum samt svipað tilfinningalíf og einhver í Kína. Ljóð verða allir að geta átt saman og lesið. Ef það er eitthvað sem einkennir ljóðin mín þá held ég að þau séu oft fremur létt. Húmor er gott tungumál sem getur brotið upp drama og erfiðar aðstæður.“ Vegabréfið gefur öllum sjálfstraust Foreldrar Mazen búa í Líbanon og systkini hans í Abu Dhabi. Hann heyrir reglulega í fjölskyldu sinni. Þau eru að vonum himin- lifandi að sonurinn, sá fyrsti í allri fjöl- skyldunni, sé kominn með vegabréf. „Þetta er tilfinningarík stund fyrir alla. Fað- ir minn og fjölskylda hans urðu að flýja frá Palestínu þegar hann var sex ára gamall. Árið 1975, eftir að hafa búið í Tal-El Zaatar- búðunum í Líbanon, þurfti fjölskyldan að flýja aftur skömmu áður en búðirnar voru jafnaðar við jörðu. Fjölskyldan hefur alla tíð búið við það að þurfa að flytjast á milli staða eftir því hvernig vindar blása í Líb- anon. Þetta gefur öllum aukið sjálfs- traust.“ Mazen á góða að á Íslandi, meðal annars í þeim rithöfund- unum sem hann hef- ur unnið með og jóladegi varði hann með Sjón og fjöl- skyldu hans. Á að- fangadag var hann hjá Önnu Krist- insdóttur, mannréttindastjóra Reykjavíkurborgar, og fjölskyldu hennar en Anna hreinlega krafðist þess að fá að vera „móðir“ Mazen hér á Íslandi. Jónína Helga Björgvinsdóttir sem starfar einnig hjá Reykjavíkurborg hefur reynst rithöfund- inum sérstaklega vel. Hann segist hafa eignast vini á kaffihúsum, í gegnum starfið og í háskólasamfélaginu þar sem hann heldur gjarnan fyrirlestra. Framundan er vinna við að fínpússa skáldsöguna en sagan er meðal annars byggð á atburðum sem áttu sér stað í Bei- rút þegar Mazen var ungur drengur. Sag- an er þó skáldskapur að miklu leyti en að- alsöguhetjan er ungur drengur. „Meginþemað í bókinni er hvað þarf að gera bæði til að lifa af og einnig hvernig er hægt að lifa fallega. Hvernig mann- eskjur geta reynst hver annarri vel. Ég er enn í góðum tengslum við útgáfufyrirtæki í Líbanon og mig langar að þýða fleiri verk úr íslenskum bókmenntum yfir á arabísku. Mér finnst sem erlendis sé farið að horfa í auknum mæli til íslenskrar ljóðlistar. Það þýðir um leið að á tímum átaka er fólk að skoða það sem kemur úr heimi friðar. Ég er íslenskur núna og mér finnst ég bera aukna ábyrgð. Ég kem úr öðrum menning- arheimi og þarf að kynna mér menningu Íslands. Og mig langar að kynna landið mitt nýja fyrir arabíska heiminum. Bragðið af því hvernig það er að eiga heima ein- hvers staðar er gott.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Tryggð Eftir að hafa starað á línurnar í lófa sínum góða stund Valdi hann eina þeirra Línu sem virtist fíngerðari en allar hinar Hann dró hana yfirvegað úr lófa sínum Yfirvegað Til að stoppa með henni í gamalt sár Í hinum lófanum. Stríð Barnið kastar til himins hatti fullum af fingrum Barnið lokar augum Hatturinn fellur hljóðlega Fingurnir breytast í króka, Tíu krókar lyfta dótaskápnum nokkra sentimetra frá jörðu Nóg til að tryggja ferð feitrar skjaldböku sem dregst áfram með rifinn poka af plasthermönnum á leiðinni að hertaka blómapottinn. Þýðing: Sjón. TVÖ LJÓÐ ÚR EKKERT NEMA STROKLEÐUR

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.