Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Side 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2014, Side 64
ÞRÍFARAR VIKUNNAR Sigmundur Ernir Rúnarsson rithöfundur Bill Nighy leikari Sigtryggur Baldursson tónlistarmaður SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 2014 Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds heldur áfram að sjá og sigra heiminn en í nóvember var eistneska ríkissjónvarpið á staðnum þegar Ólafur hélt um klukkustundar langa tónleika í Tallinn. Tónleikarnir voru svo sýndir í heild á sjónvarpsstöðinni 29. desember á besta tíma. Ólafur lauk tónleikaferð sinni 2013 18. desember með tónleikum í Hörpu en á því ferðalagi fylgdi tón- listarmaðurinn eftir plötu sinni For Now I am Winter sem til- nefnd er til Íslensku tónlistarverðlaunanna í opnum flokki. Ólafur hefur vakið athygli um allan heim síðustu misserin, einkum fyrir kvikmyndatónlist, en meðal þeirra bíómynda sem hann hefur samið tónlist fyrir eru The Hunger Games, Another Happy, Gimme Shelter og sjónvarpsseríur svo sem bresku þáttaröðina Broadchurch. Þá sem langar til að horfa á tónleika Ólafs geta nálgast þá á vefsíðu ríkissjónvarpsins etv.err.ee. Árið 2013 var Ólafi Arnalds gott á tónlistarsviðinu en tónleika- ferðalagi sínu um heiminn lauk hann 18. desember síðastliðinn. TÓNLEIKAR ÓLAFS ARNALDS Í TALLINN Fleiri sigrar Ólafs Arnalds Tónleikarnir sem Ólafur Arnalds hélt í Tallinn voru sýndir 29. desember í eistneska ríkissjónvarpinu. Herinn í Suður-Kóreu ætlar að berjast með kjafti og klóm gegn nýlegri ákvörðun héraðsdóms landsins sem aflétti reglum hers- ins að geta sparkað hernemum sem stunda kynlíf þegar þeir fara í leyfi. Er þetta trúlega eitt undarleg- asta stríð sem herinn hefur farið í. Herinn var með mjög strangar reglur fyrir þá nema sem vilja komast í herinn. Þegar farið var í helgarleyfi var ekkert kynlíf, eng- in bjór eða önnur drykkja, engar reykingar og alls ekkert hjóna- band. „Að verja fósturjörðina er það eina sem á að vera í huga þessara manna,“ sagði í yfirlýs- ingu frá hernum meðal annars. Nú hefur þessum lögum skól- ans verið breytt og helgarleyfin komin í nútímann. Suður-Kóreu búar taka herskól- ann sinn gríðarlega alvarlega og þeir sem komast þar inn eru ekki taldir vera neinir meðaljónar. Lög og reglur skólans hafa haldist óbreyttar síðan 1952 og benda gagnrýnendur skólans á að nú sé árið 2014 og tímarnir hafi breyst. Það er herinn ekki tilbúinn að kvitta undir alveg strax – ekki fyrr en Hæstiréttur staðfestir dóminn. FURÐUR VERALDAR Berjast gegn kynlífi Hernemar í Suður-Kóreu mega nú stunda kynlíf, fá sér bjór og jafnvel reykja sígarettur fái þeir helgarleyfi úr herskólanum samkvæmt dómi. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.