Morgunblaðið - 05.05.2014, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.05.2014, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 5. M A Í 2 0 1 4 Stofnað 1913  105. tölublað  102. árgangur  ER DRAUMALANDIÐ MITT OG ÞANGAÐ LEITA ÉG SETTI OKKUR Í NÝTT ALÞJÓÐ- LEGT SAMHENGI GÖMUL LÖG OG NÝ Á AFMÆLIS- TÓNLEIKUM SINFÓNÍAN 30 ÞÓRIR HYLLTUR 33155 ÍSLAND 10 Þrjár stjórnmálahreyfingar þarf í bæjarstjórn Akureyrar, skv. niður- stöðum könnunar sem Félagsvís- indastofnun HÍ vann fyrir Morgun- blaðið. Alls 21,8% þeirra sem þátt tóku í könnuninni styðja Sjálfstæðisflokk- inn sem er stærstu og 20,6% Bjarta framtíð. Í kosningunum fyrir 4 árum fékk Listi fólksins sex bæjarfulltrúa – það er hreinan meirihluta – og Bæjarlist- inn einn. Nú hafa þessar hreyfingar sameinast undir nafni þeirra síðar- nefndu og mælast með stuðning 19,0% kjósenda. VG fær 16,7% fylgi í könnuninni, fengi tvo bæjarfulltrúa en fékk einn síðast. Framsókn dalar og fær 12,3%. Í síðustu könnun hafði flokkurinn stuðning til tveggja bæj- arfulltrúa. Nú fengi flokkurinn einn, eins og í kosningunum 2010. Sam- fylking mælist með 9,5% fylgi og Dögun með 0,3%. sbs@mbl.is 14-15 Þrjá flokka þyrfti í meirihlutann  Sjálfstæðisflokkur stærstur  BF og Bæjarlisti svipuð  Samfylking með 9,5% Fylgi flokka í bæjarstjórn Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 25.-30. apríl 2014. Sjálfstæðisflokkurinn 21,8% Björt framtíð 20,6% Bæjarlistinn 19,0% Vinstri - grænir 16,0% Framsóknarflokkurinn 12,3% Samfylkingin 9,5% Dögun 0,3% Aðrir 0,3% 0,3% 0,3% 21,8% 20,6% 19,0% 16,0%12,3% 9,5% Valsmenn gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Íslands- meistara KR, 2:1, í fyrstu umferð Pepsi-deildar karla í fótboltanum í gærkvöld. Farid Zato, miðju- maður KR, gnæfir hér yfir Hauk Pál Sigurðsson, fyrirliða Valsmanna, í háloftabardaga þeirra á Þróttarvellinum í Laugardal. Fjölnismenn, sem flestir spáðu botnsætinu, eru á toppi deildarinnar eftir að hafa sigrað Víkinga, 3:0, í nýliðaslag í Grafarvogi. Keflvíkingar sigruðu Þórsara, 3:1, Stjörnumenn lögðu Fylki, 1:0, með marki úr vítaspyrnu á lokamínútunum og Framarar og Eyjamenn skildu jafnir, 1:1, en sá leikur fór líka fram á Þróttarvellinum í Laugardal. Allt um leikina í 12 síðna íþróttablaði. » Íþróttir Morgunblaðið/Golli Meistararnir lágu í fyrsta leik Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, segir það algalið að miða veiði- gjöld út frá svokölluðum þorskígildis- stuðlum. Mun réttlátara væri að leggja veiðileyfagjöld á útgerðarfyrirtæki, eftir EBITDA-hagnaði þeirra, þ.e. hagnaði fyrir fjármagns- kostnað og af- skriftir. Í samtali við Morgunblaðið í dag segir Guð- mundur m.a.: „Hefur þú ein- hvern tíma heyrt um það að kjör- dæmi eða sveit- arfélög greiddu veiðileyfagjald? Nei, auðvitað ekki, því það eru fyr- irtæki og ein- staklingar sem greiða veiðileyfagjöldin. Hvers vegna flokkar Fiskistofa álögð veiðileyfagjöld eftir kjördæmum og það meira að segja gömlu kjördæmaskipaninni? Hvers vegna má ekki allt vera uppi á borðum- og gegn- sætt í sambandi við það hvað hvert fyr- irtæki eða einstaklingur borgar í veiði- leyfagjald?“ Var verið að fela upplýsingar? Guðmundur bendir á að á bak við hverja einustu greiðslu veiðileyfagjalds sé kennitala fyrirtækis eða einstaklings og því ætti það að vera sáraeinfalt að leyfa landsmönnum að fylgjast með því hvernig gjaldtöku er í raun og veru háttað. Allar þessar upplýsingar séu til hjá Fiskistofu, en ráðamenn þjóðarinnar leyfi ekki birt- ingu þessara upplýsinga. „Getur verið að alþingismenn þori ekki að birta þessar upplýsingar? Getur verið að síðasta rík- isstjórn hafi verið að fela upplýsingar fyr- ir þjóðinni?“ spyr Guðmundur. » 12-13 Segir hug- myndina algalna  Forstjóri Brims ósáttur við þorskígildi 90% makríls » Guðmundur segir sjö stærstu hafa fengið um 90% af makríl- kvótanum, vegna þess að þau hafi verið búin að byggja sig upp í nauðsynlegri tækni.  Sveitarfélögin geta brugðist við húsnæðisskorti á höfuðborgar- svæðinu með lækkun íbúðaverðs. Núverandi fyrirkomulag við út- hlutun lóða og verðlagningu þeirra veldur því að verktakar byggja fremur stærri eignir en minni. Eru það einmitt hinar síðarnefndu sem vantar helst, það er litlar blokkar- íbúðir á skaplegu verði. Þetta segir Jón Bjarni Gunn- arsson hjá Samtökum iðnaðarins. Starfsmönnum SI telst svo til að um þessar mundir séu um 2.000 íbúðir í byggingu í Reykjavík og nálægum byggðum. Venjulega taki það um tvö ár að byggja nýtt fjölbýlishús. Því þyrftu um 1.000 íbúðir að vera á framkvæmdastigi í dag til að svara ársþörfinni um 1.500 til 1.800 eignir. »4 2.000 íbúðir í bygg- ingu og fleiri þarf Byggt Fleiri nýjar íbúðir þarf á markað. Morgunblaðið/Styrmir Kári  Ístak hefur tekið að sér að byggja fimm litlar vatnsaflsvirkjanir fyrir jafnmarga bæi í Þrændalögum í Noregi. Áætluð samningsupphæð samsvarar um 9 milljörðum ís- lenskra kr. Þótt ekki sé búið að skrifa undir formlega samninga er undirbúningur hafinn enda þarf að nýta sumarið vel. Staðarstjóri Ís- taks fer út í dag. Byrjað verður á því að flytja út vinnubúðir sem not- aðar voru við byggingu Búðarháls- virkjunar. Reiknað er með að 50 starfsmenn verði þar á vegum Ís- taks, þegar mest verður um að vera, sumrin 2015 og 2016. Áform- að er að gangsetja virkjanirnar eina af annarri sumarið 2017. 2 Byggja virkjanir fyrir 5 bæi í Noregi  Það stefnir í al- varlegan rekstr- arvanda nokk- urra tónlistar- skóla „og virðist ljóst að ein- hverjir tónlistar- skólar muni ekki geta starfað með óbreyttum hætti á komandi skóla- ári“. Þetta segir Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands ísl. sveitarfélaga, í um- sögn til Alþingis. Skólar hafi þurft að hækka skólagjöld „sem leiðir til þess að efnaminni nemendur hverfa frá tónlistarnámi“. »20 „Efnaminni nem- endur hverfa frá“ Rekstrarvandi blasir við tónlistarskólum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.