Morgunblaðið - 05.05.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014
Náðu þér í aukin ökuréttindi
Fagmennska og ökufærni í fyrirrúmi
Öll kennslugöng innifalin
www.bilprof.is
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 og 894 2737 • Opið 10-17 alla daga
Næsta
námskeið
hefst
7. maí
ÖKUSKÓLINN Í MJÓDD – yfir 40 ár í fagmennsku
Meirapróf
Þekking og reynsla
í fyrrirúmi
Prinsipin víkja stundum greið-lega fyrir pólitíkinni. Nýtt
dæmi þar um er umræður í sjón-
varpsþættinum Sunnudagsmorgni
í Ríkisútvarpinu í gær.
HallgrímurHelgason vék
í þættinum að svo-
kölluðu lekamáli,
sem hæstarétt-
ardómur féll í fyrir
helgi, og taldi mál-
ið þannig vaxið að
rétt væri að aflétta trúnaði fjöl-
miðils við heimildarmenn.
En hver skyldi nú vera raun-verulega skýringin á því að
Hallgrímur vill aflétta trún-
aðinum? Þeirrar skýringar þarf
svo sem ekki að leita lengi, enda
hefur Hallgrímur lengi verið með-
al ofsafengnustu andstæðinga nú-
verandi ríkisstjórnarflokka og í
þættinum fór hann mikinn um að
innanríkisráðherra bæri þegar í
stað að segja af sér.
Út af fyrir sig er ekkert að þvíað Hallgrímur eða aðrir hafi
þá skoðun að þessir tilteknu
stjórnmálaflokkar séu á röngu
róli í pólitík og væru betur komn-
ir utan stjórnarráðsins.
En það er töluvert við það aðathuga þegar pólitíski ofsinn
er orðinn slíkur að menn eru farn-
ir að beita sér fyrir því að tak-
marka frelsi og friðhelgi fjöl-
miðla.
Þau ríki eru til þar sem blaða-menn njóta engrar verndar
og fjölmiðlar sæta ofsóknum hins
opinbera fyrir að sinna skyldum
sínum.
Er mikill áhugi á að Íslandkomist í þann hóp?
Hallgrímur
Helgason
Hvaða fordæmum
vill Ísland fylgja?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 4.5., kl. 18.00
Reykjavík 11 léttskýjað
Bolungarvík 8 skýjað
Akureyri 9 rigning
Nuuk 6 upplýsingar bárust ekki
Þórshöfn 10 skúrir
Ósló 10 heiðskírt
Kaupmannahöfn 11 heiðskírt
Stokkhólmur 7 heiðskírt
Helsinki 6 skýjað
Lúxemborg 16 heiðskírt
Brussel 13 heiðskírt
Dublin 12 skýjað
Glasgow 13 skúrir
London 16 heiðskírt
París 16 heiðskírt
Amsterdam 12 heiðskírt
Hamborg 10 skýjað
Berlín 10 skýjað
Vín 15 léttskýjað
Moskva 7 heiðskírt
Algarve 25 heiðskírt
Madríd 25 heiðskírt
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 16 léttskýjað
Aþena 21 léttskýjað
Winnipeg 3 skýjað
Montreal 7 skúrir
New York 16 léttskýjað
Chicago 11 skýjað
Orlando 25 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
5. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:46 22:04
ÍSAFJÖRÐUR 4:33 22:27
SIGLUFJÖRÐUR 4:15 22:11
DJÚPIVOGUR 4:11 21:38
Mestum afla var landað í Vest-
mannaeyjahöfn árið 2012 eða
234.442 tonnum. Í öðru sæti var Nes-
kaupstaður með 220.485 tonn. Þess-
ar tvær hafnir skiptust á um að
verma fyrsta og annað sætið yfir
mestu löndunarhafnir afla á árunum
2008 til 2012, samkvæmt upplýsing-
um í skýrslu innanríkisráðherra um
framkvæmd samgönguáætlunar
2012.
Vopnafjörður efldist
Athygli vekur hvað Vopnafjörður
efldist mikið sem löndunarhöfn afla
og var hún í þriðja sæti yfir afla-
hæstu hafnir landsins árið 2012. Það
má eflaust þakka mikilli uppbygg-
ingu HB Granda á Vopnafirði. Sama
gilti um aðrar hafnir austanlands
sem taldar eru upp í töflunni. Tals-
vert meiri afla var landað þar árið
2012 en árið 2011.
Stækkandi skipastóll
Í skýrslu Siglingastofnunar, sem
fylgir skýrslu innanríkisráðherra,
kemur m.a. fram að skipastóll lands-
manna hefur verið að stækka frá
árinu 2011. Þá var heildarfjöldi skipa
2.250 og heildarbrúttótonnatalan
210.431 tonn. Árið 2012 fjölgaði skip-
um um 16 og heildarbrúttótonnatal-
an hækkaði um 3.050 tonn. Skipa-
stóllinn stækkaði enn í fyrra og þá
var fjöldi skipa 2.298 og heildar-
brúttótonnatalan var orðin 219.615
tonn. Til samanburðar má geta þess
að 2006 var heildarfjöldi skipa um
2.311 og heildarbrúttótonnatalan
226.954 tonn.
gudni@mbl.is
Mestu landað í Eyjum 2012
Vestmannaeyjar og Neskaupstaður hafa skipst á um að vera mestu löndunar-
hafnir sjávarafla undanfarin ár Skipastóll landsmanna er aftur tekinn að vaxa
2009 2010 2011 2012
Neskaupstaður 186.263 200.472 182.222 220.485
Vestmannaeyjar 158.692 162.586 187.810 234.442
Eskifjörður 70.783 55.480 67.584 94.244
Reykjavík 97.191 100.478 116.685 110.407
Seyðisfjörður 38.662 17.812 39.507 70.365
Vopnafjörður 68.206 66.568 76.790 113.089
Hornafjörður 63.531 55.286 64.274 79.909
Þórshöfn 56.276 47.407 62.609 84.094
Fáskrúðsfjörður 25.159 36.664 31.374 44.648
Grindavík 44.879 48.756 45.579 44.942
Akranes 24.817 34.477 33.654 46.721
Aðrar hafnir 376.030 459.055 323.473 367.305
Samtals 1.357.981 1.145.672 1.144.071 1.510.651
Afli um hafnir landsins 2009-2012