Morgunblaðið - 05.05.2014, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014
Kviðdómur í San Jose í Kaliforníu
hefur kveðið upp þann úrskurð að
Samsung hafi brotið á einkaleyfum
Apple og verði að greiða tæplega
120 milljónir dala í skaðabætur,
jafnvirði um 13,4 milljarða króna.
Er það langt undir bótakröfu
Apple en bandaríski tæknirisinn
hafði krafist þess að suðurkóreska
raftækjaveldið Samsung greiddi
tvo milljarða dala fyrir brot sín,
jafnvirði um 225 milljarða króna.
Það tók kviðdóminn þrjá daga
að komast að niðurstöðu eftir fjór-
ar vikur af vitnaleiðslum.
Dómurinn komst jafnframt að
þeirri niðurstöðu að Apple hefði
brotið á einkaleyfi Samsung og
skuldaði fyrir það bætur upp á um
160.000 dali, um 18 milljónir
króna.
Deilt um Android og Galaxy
Málið varðaði möguleg brot
Samsung á fjórum einkaleyfum
Apple og tvö möguleg brot á Apple
á einkaleyfum Samsung. Kjarni
deilunnar snérist um hvort Andro-
id-stýrikerfið, sem framleitt er af
Google og notað á Galaxy-snjall-
símum Samsung, nýtti einkaleyf-
isvarða tækni frá Apple.
Að sögn MarketWatch ná deilur
Samsung og Apple nokkur ár aftur
í tímann og var málareksturinn
séður sem tilraun Apple, framleið-
anda iPhone til að hægja á miklum
vinsældum snjallsíma annarra
framleiðenda. Samsung er í dag
stærsti framleiðandi snjallsíma.
Er áætlað að fyrirtækin tvö hafi
varið hundruðum milljóna í mála-
rekstur hvort gegn öðru, fyrir
dómstólum í fjórum heimsálfum. Í
fyrra dómsmáli tókst Apple að fá
lögbann á innflutning eldri útgáfa
af snjallsímum Samsung og í því
síðara tókst Samsung að stöðva
innflutning á sumum útgáfum iP-
hone 4 og iPad 2 á Bandaríkja-
markað – en sá úrskurður var síð-
ar ógiltur af Hvíta húsinu.
Dómsmálið í San Jose náði til
tíu snjalltækja úr smiðju Samsung
en þar af eru aðeins tvö sem enn
eru seld í Bandaríkjunum. Því
munu áhrifin ekki verða mikil ef
Apple fer fram á það við dómara
að stöðva sölu tækjanna.
Greiðsla sem truflar ekki sölu
Krafa Apple var að Samsung
greiddi allt að 40 dali fyrir hvert
selt símtæki sem notað hefði
einkaleyfisverndaða tækni Apple.
Samsung hélt því hins vegar fram
að sanngjörn greiðsla ætti að vera
að hámarki rösklega 38 milljónir
dala, sem myndi vera innan við
dalur fyrir hvert selt símtæki.
Bloomberg segir að hefði kvið-
dómurinn úrskurðað um bætur
nær hugmyndum Apple hefði það
getað hamlað mjög sölu Samsung-
símtækja, en sú upphæð sem varð
niðurstaðan á föstudag sé svo lág
að Samsung eigi ekki í neinum
vanda með að bæta upphæðinni við
verð seldra símtæka. ai@mbl.is
AFP
Slagur Samsett mynd sýnir Apple iPhone 4S, að ofan, og Galaxy S II að neð-
an. Bæturnar sem dómstóll ákvarðaði að Samsung skyldi greiða Apple
reyndust aðeins brot af því sem síðarnefnda fyrirtækið hafði krafist.
Apple fær litlar
bætur frá Samsung
Apple hafði farið fram á tvo milljarða dala en kviðdómur
dæmdi aðeins 120 milljónir dala fyrir brot á einkaleyfi
Verkamenn á Indlandi burðast
með 50 kílóa poka sem fylltir
hafa verið af hveiti. Myndin er
tekin á birgðastöð í borginni Am-
ritsar í Punjab-héraði í norðvest-
urhluta Indlands en Punjab er
stærsta hveitiræktunarhérað
landsins með um 70% af heildar-
uppskerunni. Bændur hafa átt í
vandræðum í ár því miklar rign-
ingar hafa skemmt uppskeruna.
ai@mbl.is
AFP
Brauðstrit í orðsins fyllstu merkingu
Að sögn MarketWatch, fjármála-
fréttavefjar Wall Street Journal,
kom það mörkuðum þægilega á
óvart þegar nokkuð sterkar tölur af
þróun atvinnumála voru birtar á
föstudag. Bandaríska vinnu-
málaráðuneytið áætlar að 288.000
ný störf hafi orðið til í apríl og er
það mesta fjölgun starfa í einum
mánuði frá 2012. Tölur fyrir mars
og febrúar voru endurskoðaðar og
hækkaðar um alls 36.000 störf.
Það sem af er árinu hefur ráðu-
neytið mælt að um 214.000 ný störf
hafi orðið til á mánuði, að jafnaði,
sem er nokkuð umfram meðalvöxt-
inn árið 2013, en þá bættust að með-
altali við 194.000 ný störf í mánuði
hverjum.
Jákvæði kippurinn sem kom í verð
hlutabréfa við tíðindin af vinnu-
markaðinum gekk fljótlega til baka
og enduðu stóru vísitölurnar þrjár á
föstudaginn á rauðu nótunum.
S&P 500 vísitalan veiktist um rétt
rúmlega 0,1% og endaði í 1.881,14
stigum en bætti sig um 1% yfir vik-
una. Dow Jones-vísitalan missti
45,98 stig og endaði í 16.512,89 stig-
um sem er lækkun upp á 0,3% en
bætti sig um 0,9% yfir vikuna.
Nasdaq-vísitalan var á svipuðu
róli: Missti 3,55 stig yfir daginn eða
0,1% og endaði í 4.123,90 stigum,
með 1,2% styrkingu yfir vikuna.
Merck og Bayer í viðræðum
Meðal þeirra fyrirtækja sem lækk-
uðu á föstudag voru LinkedIn sem
missti 8,4% og lánafyrirtækið Ares
Management sem missti 2,1% á
fyrsta degi sínum á markaði. Lyfja-
fyrirtækið Merck & Co rýrnaði í
verði um 2,4% þegar fréttir bárust
af viðræðum við þýska lyfjafram-
leiðandann Bayer um kaup á neyt-
endavörusviði Merck fyrir 14 millj-
arða dala.
Ferðaþjónustufyrirtækið Wynn
Resorts sem rekur keðju hótela og
spilavíta hækkaði um 7,28% eftir að
tölur af hagnaði á fyrsta ársfjórð-
ungi fóru fram úr væntingum mark-
aðsgreinenda. Góðar ársfjórðungs-
tölur hækkuðu einnig hlutabréfa-
verð Royal Bank of Scotland, sem
fór upp um 7,9% á föstudag.
Áhyggjur af þróun mála í Úkraínu
virtust hafa áhrif á gjaldmiðlamark-
að og hrávörumarkað. Bandaríkja-
dalur veiktist örlítið gagnvart jap-
anska jeninu, gull með afhendingu í
júní hækkaði um 1,3% og verð á hrá-
olíu fór upp um u.þ.b. hálft prósentu-
stig. ai@mbl.is
Bandarísk hlutabréf
sterkari eftir vikuna
Þrátt fyrir væga lækkun á föstudag
áttu helstu vísitölur ágæta viku
AFP
Seljandi Miðlarar á gólfi NYSE.