Morgunblaðið - 05.05.2014, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.05.2014, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014 ✝ Erla BjörgGuðjónsdóttir var fædd 16. apríl 1943 í Reykjavík. Hún andaðist 19. apríl 2014 á hjúkr- unarheimilinu Skjóli. Foreldrar henn- ar voru Guðjón B. Jónsson, fæddur í Vola, Hraungerð- ishreppi 30. ágúst 1906, dáinn 4. júní 1985, og kona hans Guðbjörg Björgvinsdóttir, fædd í Reykjavík 20. október 1920, dáin 18. september 2005. Systkini Erlu eru Guðbjörg Svala f. 21. ágúst 1951, Sigurður Viðar, f. 12. nóvember 1952, og Jón Kristinn, f. í Reykjavík 7. júlí 1958. Erla giftist Dagfinni Ólafs- syni 29. mars 1964, f. í Reykja- vík 23. ágúst 1942, sonur Ólafs Dagfinnssonar, f. í Reykjavík 21. september 1900, d. 24. febr- úar 1975, og konu hans Þórlaug- ar Valdimarsdóttur, f. á Sól- eyjarbakka, Hrunamannahreppi 24. júní 1903, d. 9. mars 1972. ágúst 2001. b) Ísól, f. 12. febrúar 2004. c) Sara Sigríður, f, 17. júní 2011. Erla ólst upp í Reykjavík og var fyrstu árin mikið hjá móð- urforeldrum sínum, Jónínu og Björgvini, á Háteigsvegi, og var iðulega á sumrin hjá ættingjum föður síns á Ósabakka á Skeið- um. Hún stundaði nám við Laug- arnesskóla og Réttarholtsskóla og veturinn 1959-1960 stundaði hún nám í Héraðsskólanum á Laugarvatni. Erla og Dagfinnur hófu bú- skap á Ásbraut í Kópavogi og fluttu á Nýbýlaveg árið 1967 þar sem þau bjuggu næstu árin. Þau byggðu svo hús í Fjarðarseli 25 í Seljahverfi og bjuggu þar í 35 ár. Erla var heimavinnandi hús- móðir á meðan dæturnar voru ungar. Árið 1979 hóf hún svo söngnám við Söngskólann í Reykjavík og tók þátt í upp- færslum með Óperukórnum. Síðast söng hún með Óperukór Hafnarfjarðar. Hún fór í sjúkraliðanám í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti 1982 og starfaði hún á deild 14G á Landspítalanum í nokkur ár og seinna á Seljahlíð og síðast á Skógarbæ. Útför Erlu fer fram frá Selja- kirkju í dag, 5. maí 2014, og hefst athöfnin kl. 13. Börn Erlu og Dagfinns eru: 1) Drengur, f. 11. mars 1962, d. 13. mars 1962. 2) Þóra Björg Dagfinns- dóttir, f. 23. febr- úar 1963, gift Geir Magnúsi Zoëga, f. 1. nóvember 1962. Þeirra börn eru a) Þórdís Erla, f. 2. júlí 1988. b) Krist- jana, f. 30. nóvember 1992. c) Geir, f. 18. júní 1998. 3) Elísabet, f. 17. október 1965. Maður henn- ar er Ari Jóhannesson, f. 12. júlí 1964. Synir Elísabetar eru a) Gunnar Mikael, f. 31. mars 1983, kona hans er Sigríður Rita Ragnarsdóttir, f. 28.apríl 1985, dætur þeirra eru Rita, f. 23. september 1985, og Rebekka, f. 12. desember 2008, b) Dagfinn- ur Ari, f. 13. maí 1993, unnusta hans er Erla Úlfarsdóttir, f. 23. apríl 1994, og c) Jökull Snær, f. 10. október 1999. 4) Ólöf, f. 2. apríl 1971, gift Alberti Þór Sverrissyni, f. 8. júlí 1970. Dæt- ur þeirra eru a) Birta Ósk, f. 9. „Við erum ein minning“ hefur pabbi svo oft sagt við mig í veikindum mömmu. Ég held að pabbi hafi hitt naglann á höfuðið eins og svo oft áður. Gleðin, hlýjan, umhyggjan fyrir öðrum og söngurinn hennar mömmu lifir nú í minningunni. Góðu stundirnar sem við áttum öll saman og ferðalögin bæði inn- anlands og erlendis eru nú svo dýrmætar minningar. Einnig er þakklætið fyrir að hafa átt svona yndislega mömmu mér of- arlega í huga. Mamma var sú manngerð að hún dreif bara í hlutunum og leysti þá alltaf vel af hendi. Sama hvort hún ákvað að sauma í heilu sængurverasettin fyrir dæturnar, tengdasyni og öll barnabörnin, brjóta saman fjall- ið af þvottinum heima hjá mér eða skella sér til Bretlands að hjálpa okkur að flytja heim. Hún lét gamlan draum ræt- ast rétt fyrir fertugt og fór í nám við Söngskólann í Reykja- vík og síðan í sjúkraliðanám. Hún stóð sig vel í náminu þótt hún hefði ekki verið í skóla í 20 ár. Einnig las hún bækur bæði á ensku og dönsku til að ná orða- forðanum betur. Hún kenndi mér þannig að það er aldrei of seint að læra nýja hluti. Þrátt fyrir vinnuna sem sjúkraliði og kórastarfið gaf mamma sér alltaf tíma fyrir barnabörnin. Þær eru óteljandi bækurnar sem mamma las fyrir stelpurnar mínar og einnig stundirnar sem hún gaf sér í að hjálpa þeim að taka til og gera allt fínt í „prinsessustíunum“ eins og hún kallaði herbergin þeirra. Núna í lok mars héldum við fjölskyldan upp á 50 ára brúð- kaupsafmæli mömmu og pabba. Það eru ekki allir sem ná svo stórum áfanga og kærleikurinn á milli foreldra minna öll þessi ár er aðdáunarverður og til eft- irbreytni fyrir alla. Veri Guð og englarnir hjá þér elsku mamma og ef ég þekki þig rétt ertu af umhyggju að pússa stjörnurnar svo þær skíni skær- ar fyrir pabba og okkur hin. Ólöf Dagfinnsdóttir. Þegar ég hugsa um ömmu þá kemur alltaf fyrst upp í hugann hversu innilega hún faðmaði mann að sér og kyssti margoft í hvert sinn sem maður hitti hana. Þegar boð voru að klárast heyrði maður oft: „Var ég búin að kyssa þig? Æ, ég geri það bara aftur til öryggis,“ og eftir það: „Hvar lagði ég nú töskuna frá mér?“ og þá fóru allir að leita að töskunni hennar, sem var fastur liður í fjölskylduboð- um. Undir lokin voru kossar eitt af því fáa sem hún brást við, og ef maður lagði kinnina að vörum hennar kyssti hún hana alltaf. Amma var alltaf syngjandi og man ég hversu einbeitt hún var á svipinn í hvert sinn sem hún söng, jafnvel þegar hún spilaði á orgelið og söng Gæsamömmu fyrir okkur barnabörnin við hvert tækifæri. Hún var alltaf svo lífleg og hlý og hef ég saknað hennar lengi. Ég er viss um að henni líði betur núna og að hún sé syngjandi að kyssa og knúsa alla þarna hinum megin. Þúsund kossar til þín, elsku amma. Þín Kristjana. Elsku amma Erla, þú varst svo hlý og góð manneskja. Tókst alltaf á móti okkur með kossaflóði og föstum knúsum. Minningarnar um þig hafa verið svo mikilvægar síðustu misseri. Þó að margt hyrfi veit ég að þú þekktir mig alltaf. Mínar hlýjustu minningar eru þegar ég fékk að gista hjá þér og afa. Þá vissi ég að ég var komin í feitt. Endalaust nammi, vídeó og myndasögur sem ég naut á hárparketinu. Þú varst sísyngjandi og naust þess að syngja „Gæsamamma gekk af stað“ á orgelið fyrir okkur barnabörnin. En svo sungum við tvær alltaf saman lagið okk- ar „Erla góða Erla“ fyrir svefn- inn þegar þú varst að passa mig. Mér þykir svo vænt um alla kjólana sem þú saumaðir á mig og Rósu sem voru í stíl og einnig þurftu Rósa og Voffi allt- af að fara í bað þegar við feng- um að gista. Þú varst alltaf svo glæsileg og vel til fara. Mér þótti svo skemmtilegt að dansa við þig í þeim ófáu partíum sem fjöl- skyldan hélt. Þú varst fyrst og fremst vin- kona mín. Góðu stundirnar þeg- ar ég kom í kaffi í Fjarðarselið í hádegishléinu mínu í FB og þú varst alltaf svo áhugasöm um allt sem ég var að gera og opin fyrir að tala um allt milli himins og jarðar. Ekkert umræðuefni var tabú. Elsku amma mín, nú veit ég að þér líður betur. Þín Þórdís Erla. Elsku amma, takk fyrir allar frábæru stundirnar sem við átt- um saman. Þú varst alltaf bros- andi og glöð. Ég man svo vel eftir þegar þú hjálpaðir mér og Ísól að taka til og þrífa Barbiehúsin í her- bergjunum okkar eða prinsess- ustíunum eins og þú kallaðir þau alltaf. Þó að við drösluðum alltaf strax til aftur komstu allt- af aftur og hjálpaðir okkur að taka til. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur til að passa okkur, baða okkur, lesa sögur fyrir okkur systurnar á kvöldin og svo margt fleira. Þú eyddir miklum tíma í að hekla teppi handa okkur sem er svo ynd- islega fallegt. Þú elskaðir okkur öll og ég er svo þakklát fyrir það. Ég man líka vel eftir fal- lega söngnum þínum þegar þú söngst fyrir okkur Ísól. Þú varst alltaf svo dugleg í öllu, sama hvað það var, til dæmis að taka til, sópa, skúra, brjóta saman þvott, syngja og bara flestöllu sem þú gerðir. Þú varst kona sem allir elsk- uðu. Takk fyrir að vera svona frábær amma, ég gæti aldrei beðið um betri ömmu. Mér finnst eiginlega verst að Sara hafi ekki fengið að kynnast þér eins og þú varst alltaf við mig. Haltu áfram að vera svona frá- bær á himnum eins og þú varst hjá okkur. Takk fyrir að leyfa mér að kynnast þér og hafðu það gott uppi á himnum hjá guði. Ég elska þig. Birta. Elsku amma, ég sakna þín rosa, rosa mikið. Þú varst besta amma í heimi og ég var svo heppin að eiga þig. Ég á fullt af minningum um þig og ég man sérstaklega eftir því þegar þú komst í heimsóknir til okkar og hjálpaðir mér að taka til en alltaf næsta dag draslaði ég til aftur þannig að þú komst aftur til að taka til hjá mér. Mér fannst rosalega þægilegt þegar þú komst á kvöldin og breiddir yfir okkur Birtu og last bók fyrir okkur. Oft söngstu líka fallega fyrir okkur. Ég og Birta tróðum okkur alltaf sam- an í eitt lítið rúm til að hlusta á þig. Þú eyddir líka miklum tíma í að sauma sængurverasett og hekla teppi handa okkur. Þú sást alltaf það góða í öllu og brostir og söngst fyrir okkur. Oft þegar við komum í heim- sókn til þín og afa varstu búin að baka handa okkur köku og tilbúin með sleikjóa handa okk- ur. Þegar við gistum hjá þér áttum við að sofa í einu her- bergi en gátum ekki sofnað þar, þannig að þú vissir alltaf að við myndum koma til þín, því hafðir þú alltaf dýnurnar tilbúnar á gólfinu inni hjá ykkur afa. Ég man líka þegar ég var minni, þá fórum við saman á Ljósanótt fyrir nokkrum árum og ég söng allan daginn: „Ég er eins og ég er“ og „Allt fyrir ástina“ með Páli Óskari fyrir þig og þú söngst með mér. Jólaboðin og páskaboðin ykk- ar afa voru alltaf svo skemmti- leg og oft söngstu fyrir mig og þú söngst svo fallega. Um páskana keyptuð þið afi fullt af páskaeggjum handa allri fjöl- skyldunni og þú sagðir mér allt- af hvað ég væri falleg og góð stelpa. Amma, þú varst alltaf til staðar fyrir okkur og eyddir miklum tíma í að passa mig, baða, svæfa, lesa og taka til fyr- ir mig. Mig langar bara til að segja takk fyrir að vera svona frábær amma. Ég hefði ekki getað beð- ið um betri, skemmtilegri, fyndnari og frábærari ömmu. Vonandi er allt gott að frétta af himnum. Ég elska þig. Ísól. Ég kynnntist Erlu fyrir rúm- um sextán árum þegar fyrsta barnabarnið mitt, Hrafnhildur Hlín, fæddist. Þá vann Erla á Landspítalanum og hún skaust yfir á fæðingardeildina til að skoða nýfædda bróðurdóttur sína. Kynni mín af Erlu og hennar fjölskyldu hafa verið ánægjuleg og gefandi. Erla var glaðlynd, hlý og umhyggjusöm og sýndi Hrafnhildi og Ernu Kristínu móður hennar einstaka ræktarsemi og vináttu. Fyrir það ber að þakka. Síðustu átta ár hafa þær mæðgur verið bú- settar í Bandaríkjunum og áfram sýndi Erla þeim mikla umhyggju, m.a. sendi hún Hrafnhildi íslenskar barnabæk- ur því henni var í mun að hún héldi við móðurmálinu. Minnist Hrafnhildur hennar með mikl- um hlýhug. Um síðastliðin ára- mót vissi hún að mjög var dreg- ið af Erlu. Þá hafði hún á orði að sig langaði til að koma heim til að hitta Erlu sína. Af því varð ekki en ég er þess fullviss að minningin um ástkæra föð- ursystur lifir með Hrafnhildi alla tíð. Við Gylfi vottum Dag- finni, dætrum þeirra Erlu og fjöldskyldum þeirra samúð okk- ar. Svava Árnadóttir. Hjartkær vinkona mín hefur verið kölluð í burtu eftir löng og erfið veikindi. Minningarnar sækja á, við kynntumst sem ná- grannar og ungar mæður, Erla með dætur sínar og ég með syni mína og urðum við og börnin okkar strax mjög góðir vinir. Við sögðum svo oft „Þetta voru bestu árin, heimavinnandi að dúllast með börnin“. Seinna fór- um við Erla mörg haust vestur að tína ber og hlaða batteríin eins og hún orðaði það svo skemmtilega. Við fórum líka í fjölmörg ferðalög innanlands og utan með fjölskyldum okkar. Við Erla vorum alltaf bestu vin- ir. Þegar við hjónin urðum fyrir mestu sorg lífsins voru Erla og Dagfinnur fremst í flokki að styðja okkur og hughreysta sem er ómetanlegt og sannar góða vináttu. Hafðu þökk fyrir allt og allt, elsku vinkona. Sár harmur er nú kveðinn að Dagfinni, stelpunum og allri stórfjölskyld- unni sem önnuðust hana Erlu svo ástúðlega. Við Jói vottum þeim öllum okkar dýpstu sam- úð. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund, það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson.) Nanna. Erla B. Guðjónsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SVERRIS ORMSSONAR rafverktaka. Sérstakar þakkir til starfsfólks Drafnarhúss og starfsfólks 3. hæðar Sólvangs í Hafnarfirði. Guð blessi ykkur öll. Dadda Sigríður Árnadóttir, Kristín Þóra Sverrisdóttir, Árni Sverrisson, Valgerður Kristjánsdóttir, María Edda Sverrisdóttir, Guðmundur Már Þórisson, Ormur Helgi Sverrisson, Ásta Þóra Ólafsdóttir, Brynja Dadda Sverrisdóttir, Hafþór Bjarnason, Linda Bára Sverrisdóttir, Gísli Jóhannesson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, GYÐRÍÐUR RÓSA JÓHANNSDÓTTIR (GYÐA), Suðurmýri 2, Seltjarnarnesi, lést á Landspítala, Fossvogi, fimmtudaginn 1. maí. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 9. maí kl. 13.00. Jóhanna Lúðvíksdóttir, Víðir Kalmar Arnórsson, Lúðvík Kalmar Víðisson, Helena Friðþjófsdóttir, Lára Ósk Víðisdóttir, Esra Már Arnbj■rnsson, Heiðbjört Eydís Sveinbjörnsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HERMANN GUÐMUNDSSON, Öldugerði 4, Hvolsvelli, fyrrverandi bóndi á Forsæti, lést á hjúkrunarheimilinu Kirkjuhvoli föstudaginn 2. maí. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Guðfinna Jóna Helgadóttir, Jón Hermannsson, Bergrún Gyða Óladóttir, Gunnar Hermannsson, Vilborg Magnúsdóttir, Helga Hermannsdóttir, Geir Arnar Geirsson, Guðmundur Hermannsson, Alma Birna Bragadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GARÐAR JÓSEP JÓNSSON, er látinn. Sigríður Eygló Gísladóttir, Sigmundur Garðarsson, Gísli Garðarsson, Kolbrún Gunnarsdóttir, Sigríður Eygló Gísladóttir, Kristinn Gíslason, Garðar Gíslason. Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, JANE MARÍA ÓLAFSDÓTTIR, áður til heimilis á Suðurgötu 4, 230 Reykjanesbæ, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði föstudaginn 2. maí. Útför auglýst síðar. Guðmundur Ólafsson og fölskylda. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, "Senda inn minningargrein", valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.