Morgunblaðið - 05.05.2014, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.05.2014, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014 www.gilbert.is HANDSKREYTT ÍANDA ÍSLENSKRAÚTSKURÐARMEISTARAFYRRIALDA EINSTAKT ÍSLENSKT ÚR FRISLAND GOÐ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Íokkar nútíma er allt að-gengilegt á netinu eða í sím-anum og getur verið erfitt aðhalda haus og góðri stefnu í hafsjó upplýsinga. Segja má að þessi bók sé tilraun til þess að velja fyrir ferðalanginn áhugaverða staði og beina athygli hans frá hinum fjölförnu og á stundum ofsetnu stöðum sem allir heimsækja. Leiða fólk frekar á vit hins sem er minna þekkt en á skilið athygli,“ segir Páll Ásgeir Ásgeirsson, fjallamaður og rithöfundur. Leiðsögubækur þarf stöðugt að uppfæra Á dögunum kom út ný bók eftir Pál sem ber titilinn 155 Ísland – Áfangastaðir í alfaraleið. Bók þessi er stækkuð og endurbætt útgáfa af 101 Ísland sem Páll skrifaði og kom út fyrir nokkrum árum. Þar af leið- andi eru í henni næstum því allir staðirnir sem voru í fyrri bókinni að viðbættum tæplega 60 nýjum. Fá- einum stöðum sem voru í eldri út- gáfunni var hent út vegna breyttra aðstæðna – og öðru var breytt þótt í litlu væri. Bækur Páls Ásgeirs um land og leiðir eru fjölmargar. Bæði hefur hann tekið fyrir gönguleiðir en einnig má nefna Hálendishandbók- ina. Hún kom fyrst út í kringum aldamót en hefur verið endur- útgefin síðan og sannkölluð biblía þeirra sem ferðast um landið á jeppum. „Leiðsögubækur eru þannig í eðli sínu að þær þarf stöðugt að uppfæra. Tímarnir breytast og menn- irnir með,“ segir Páll. Við val á áfangastöðum seg- ist hann viljandi hafa sleppt eða gengið framhjá vin- sælum áfangastöð- um eða reynt að finna nýja fleti á þeim. Til að mynda séu Gullfoss, Geysir, Dettifoss og Náma- skarð ekki í þessari nýju bók. Páll hefur ferðast um Ísland í áratugi og þekkir því víða vel til. Hann seg- ist hafa heimsótt marga þá staði sem séu í bókinni. Aðra hafi hann fundið, ef svo má segja, með til- vísun heimamanna eða lestri ryk- fallinna bóka. Römbuðu á nýja staði „Þegar við söfnuðum efni í fyrri útgáfuna, 101 Ísland, sáum við marga staði sem þá voru ekki tekn- ir með en eiga sitt pláss í þessari nýju bók. Þegar þessi vegferð hófst bjó ég mér til lista yfir staði sem ég taldi að gætu verið áhugaverðir. Þegar ég síð- an kom á staðinn varð stundum eitthvað til þess að hann féll út af listanum. Svo fundum við líka stundum nýja staði í samtölum við heimamenn eða römbuðum á þá af sjálfsdáðum,“ segir Páll sem kveðst hafa haft þá reglu að ef vísað sé á staði í einka- landi sé það gert með leyfi heima- manna. Það hafi ekki alltaf fengist og þá hafi viðkomandi stað verið sleppt út. Við þá afstöðu hafi hann ekki alltaf verið sáttur, en mikil- vægt hafi hins vegar verið að efna ekki ófriðar. Mitt draumaland og þangað leita ég Bókin er 155 Ísland – Áfangastaðir í alfaraleið. Þetta er tilraun til þess að velja fyrir ferðalanginn áhugaverða staði og beina athygli hans frá hinum fjölförnu og á stundum ofsetnu stöðum sem allir heimsækja, segir Páll Ásgeir Ásgeirsson, höfundur bókarinnar, sem ferðast hefur um landið í áratugi. Morgunblaðið/Golli Leiðsögn Ferðabókin nýja er í hand- hægu broti og með hlífð- arkápu úr plasti sem ver hana bleytu. Er því fín til að grípa með sér og lesa á ferðinni. Rithöfundur Náttúran oftast heillandi í sjálfu sér en þegar áhugaverð saga af mannlegum örlögum fylgir með breytir það upplifun, segir Páll Ásgeir. Morgungöngur Ferðafélags Íslands hefjast í dag en þær verða þessa viku, frá 5.-9. maí. Þátttakendur eru á öllum aldri, jafnt konur og karlar. Í hverri morgungöngu verður lesið ljóð, staðið á haus, farið í morgun- leikfimi og síðasta daginn verður haldið Íslandsmótið í hanagali. Brott- för er kl. 6 að morgni á einkabílum frá skrifstofu FÍ, Mörkinni 6, en einn- ig er hægt að mæta beint á upphafs- stað göngu. Göngurnar taka 2-3 klst. Þátttaka er ókeypis og allir velkomn- ir. Í dag verður gengið á Helgafell við Hafnarfjörð og gangan hefst við Kaldársel. Á morgun verður gengið á Mosfell í Mosfellsdal og hefst gangan við kirkjuna á Mosfelli. Á miðvikudag verður gengið á Helgafell í Mosfells- dal, frá bílastæði við gatnamótin í Mosfellsdal. Á fimmtudag verður gengið á Vífilfell við Sandskeið. Sjá nánar á vefsíðu Ferðafélagsins: fi.is Vefsíðan www.fi.is Morgunblaðið/Kristinn Gönguferð Að byrja daginn á góðri göngu gerir gæfumuninn hjá mörgum. Keppt í hanagali og staðið á haus Í dag klukkan 17:30 verður Afgan- istan til sérstakrar skoðunar á Café Lingua í aðalsafni Borg- arbókasafnsins í Tryggvagötu 15 í Reykjavík. Gestum gefst þá tækifæri til að læra hvernig nöfn þeirra eru skrif- uð á persnesku, hlusta á persnesk ljóð, skoða einstakan fatnað og síðast en ekki síst bragða á Boani, steiktum „fílseyrum“, og öðru góð- gæti frá Afganistan. Afganar sem búsettir eru hér á landi munu kynna tungumál, mat og menningu á lifandi og skemmti- legan hátt. Allir eru velkomnir og er ókeypis inn á viðburðinn eins og alltaf á Café Lingua. Endilega … …bragðið á steiktum fílseyrum Flugdrekahlaup Framandi menning. Svartur björn leikur listir sínar í dýra- garði í tilefni ólympíuleika dýranna sem fram fóru fyrsta maí í Kína. Við- burðurinn dró að þúsundir gesta. Ólympíuleikar dýranna AFP Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.