Morgunblaðið - 05.05.2014, Page 2

Morgunblaðið - 05.05.2014, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014 Brynjólfur Þorkelsson Framkvæmdastjóri binni@remax.is Sylvía GWalthersdóttir Löggiltur fasteignasali sylvia@remax.is „...Virkilega vönduð, lipur og góð þjónusta“ Við vorum í söluhugleiðingum og var okkur bent á að fá RE/MAX, Alpha, til að sjá um söluna. Við sjáum ekki eftir því! Þau sáu um allan pakkann fyrir okkur. Íbúðin var seld á þremur dögum og sáu þau um allt sem snýr að sölunni. Einnig aðstoðu þau okkur við kaup á nýju fasteigninni. Virkilega vönduð, lipur og góð þjónusta, allt sem var sagt stóðst og er því auðvelt að mæla með RE/MAX, Alpha. Kv. Áslaug og Benni 820 8080 Hringdu núna ogpantaðu frítt söluverðmat Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ístak hefur náð samningum um að annast byggingu fimm lítilla virkjana í Þrændalögum í Noregi. Áætluð samningsupphæð samsvarar um 9 milljörðum íslenskra króna. Forstjóri Ístaks segir að verkefnið sé góð bú- bót fyrir fyrirtækið og jafnframt við- urkenning á sérþekkingu Íslendinga við byggingu virkjana. Orkufyrirtækið Helgelandskraft í Mosjøen, norðan við Þrándheim, hef- ur ákveðið að byggja fimm litlar vatnsaflsvirkjanir við Tosbotn sem munu sjá jafnmörgum bæjum í Hel- geland fyrir rafmagni. Ístak náði samningum við Helge- landskraft um að taka að sér bygg- inga- og jarðvinnuhlutann og hefur stjórn fyrirtækisins samþykkt hann. Staðarstjóri Ístaks heldur utan í dag til að hefja undirbúning. „Virkjanirn- ar á að byggja á þremur og hálfu ári og við þurfum að nýta sumarið eins vel og hægt er,“ segir Kolbeinn Kol- beinsson, forstjóri Ístaks. Starfsmenn Ístaks þekkja vel til í Tosbotn því þeir gerðu veggöng þar. Vinnubúðirnar vegna virkjanaverk- efnisins verða á sama stað. Verkið felst meðal annars í því að gera 6,5 km löng jarðgöng, fimm stöðvarhús, inntaksmannvirki og stíflur. Vinna skapast fyrir íslenska trésmiði og vélamenn. Þeir koma úr öðrum verkefnum Ístaks í Noregi og að heiman. Búist er við að 50 menn verði þar að störfum, þegar mest verður um að vera. „Verkið kemur sér vel í framhaldi af Búðarhálsvirkj- un og stórvirkjun á Grænlandi.“ Litið til hæfni og reynslu Kolbeinn segir að samningarnir eigi sér nokkurn aðdraganda. Ístak hafi verið valið eftir forval, þar sem verðið hafi vissulega ráðið miklu en einnig hafi verið litið til hæfni og reynslu fyrirtækjanna. „Okkur er treyst til að vinna þetta verk. Það er viðurkenning á Ístaki og sýnir að við erum orðnir fullgildir þátttakendur á þessum markaði en einnig viðurkenn- ing á kunnáttu okkar Íslendinga í byggingu virkjana,“ segir Kolbeinn. Fullgildir á virkjanamarkaði  Ístak hefur tekið að sér byggingu fimm lítilla virkjana í Þrændalögum í Noregi  Sjá fimm bæjum fyrir rafmagni  Forstjóri Ístaks segir samningana viðurkenningu á þekkingu Íslendinga Ljósmynd/Helgelandskraft Inntakslón Vatn í virkjun fyrir bæinn Leirá kemur úr Leirárvatni. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Mér finnst það fyrir neðan allar hellur og sýnir lítinn skilning á hlutverki fjölmiðla og blaðamanna,“ segir Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélagsins um tilraunir lögregluyfirvalda til þess að knýja blaðamann til þess að gefa upp heimildarmenn sína í svonefndu lekamáli. Hæstiréttur staðfesti hinn 2. maí síðastliðinn, það álit Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í apríl að blaðamanni fréttavefsins mbl.is bæri ekki að bera vitni fyrir lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um heimild vefsins fyrir frétt um tvo hælisleitendur, sem byggðist á óformlegu minn- isblaði, sem lög- reglan rannsakar hvort að hafi verið lekið innan úr innanrík- isráðuneytinu. Hjálmar segir það mjög einfalt að blaðamenn verði að standa vörð um heimildarmenn sína. „Það er grundvallarforsenda í starfi þeirra, og ekki hægt að gefa neinn afslátt af því.“ Hjálmar segir það ekki algengt að reynt sé að fá blaðamenn til þess að greina frá heimildum sín- um með dómi, en þó þekkist þess nokkur dæmi bæði hér á landi og erlendis. Blaðamannafélagið sé því sátt með úrskurði Hæstaréttar og héraðsdóms í málinu. Dómstólar hér hafi verndað þennan rétt blaða- manna, sem sé varinn með lögum. „En þó svo að dómstólar hefðu komist að annarri niðurstöðu, þá breytti það engu um vernd heimild- armanna. Þetta er lykilatriði í blaðamennsku og við komumst ekkert undan því að lúta þeirri skyldu.“ Hjálmar segir það liggja í augum uppi að ef vikið yrði frá vernd heimildarmanna myndi heimildum blaðamanna fækka og það gerði þeim erfiðara fyrir að sinna starfi sínu. „Fyrir neðan allar hellur og sýnir lítinn skilning“ Hjálmar Jónsson  Blaðamenn komast ekki undan þeirri grunnskyldu sinni að vernda heimildarmenn, segir formaður BÍ Flak breskrar sprengjuflugvélar, Fairy Battle, sem fórst á Vask- árjökli á milli Öxnadals og Eyja- fjarðar vorið 1941, var flutt til Ak- ureyrar í gær. „Þetta var mjög langþráð stund,“ sagði Hörður Geirsson við Morgunblaðið í gær. Fjórir ungir menn fórust með vélinni, einn Nýsjálendingur og þrír Bretar. Það var Akureyring- urinn Hörður sem fann vélina skömmu fyrir aldamót, eftir 20 ára leit. Búið var að safna öllu sem fannst úr flakinu á einn stað, en ekki hafa verið tök á að sækja það fyrr en nú. Of mikill snjór er á svæðinu yfir vetrartímann en snjó hefur hins vegar oft skort í Kald- baksdalinn, á leiðinni upp á jökul, til að bílar komist þá leið en kjör- aðstæður voru nú. „Mest af þessu er ónýtt og fer í endurvinnslu og tilgangur leiðang- ursins því fyrst og fremst að hreinsa til á svæðinu. En við hirtum sumt, til dæmis hluta af stélinu og skrúfublöð, sem fara á Flugsafn Ís- lands á Akureyri,“ sagði Hörður. Ljósmynd/Hörður Geirsson Langþráð stund Félagar úr björgunarsveitinni Súlum á Akureyri voru á Vaskárjökli ásamt Herði Geirssyni og fulltrúa breska sendiráðsins í Reykjavík. Flak Fairy Battle loks til byggða  „Þetta er mjög langþráð stund“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.