Morgunblaðið - 05.05.2014, Síða 13

Morgunblaðið - 05.05.2014, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014 ÞJÓÐARSJÚKRAHÚS Á TÍMAMÓTUM Ársfundur Landspítala 2014 Hótel Hilton 6. maí kl. 13.00 Ávarp Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra Landspítali – leiðin framundan Páll Matthíasson forstjóri Ársreikningur Landspítala 2013 María Heimisdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs Vísindi og menntun – forsenda framfara á Landspítala Ólafur Baldursson framkvæmdastjóri lækninga Starfsmenn heiðraðir Páll Matthíasson forstjóri og Bryndís Hlöðversdóttir starfsmannastjóri MÁLÞING: UPPBYGGING Í AUGSÝN Öruggur spítali – góður vinnustaður Sigríður Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar og Bryndís Hlöðversdóttir starfsmannastjóri Skilvirkir verkferlar – ábyrgur rekstur Benedikt Olgeirsson aðstoðarforstjóri og María Heimisdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs Spítalinn okkar – landssamtök um uppbyggingu nýs húsnæðis Landspítala Anna Stefánsdóttir formaður Umræður og fyrirspurnir Samantekt og lokaorð Páll Matthíasson forstjóri Fundarstjóri: Guðfinna S. Bjarnadóttir Fundurinn er öllum opinn Skráning á www.landspitali.is iðjuverum í landi sé orðin svo mik- il, að vinnulaunin í landi séu sára- lítill kostnaður fyrirtækjanna. Fyrirtæki eins og Síldarvinnslan, Ísfélagið og Skinney-Þinganes, svo dæmi séu tekin, hafi komið sér upp svo frábærri tækni og gæða- stjórnun í fiskverum sínum í landi að þau ráði við að taka 500 til 700 tonn í gegn á dag í frystingu. „Ef ráðamenn hafa áhyggjur af þessum svokallaða umframhagnaði í greininni, sem ákveðinn hópur hagfræðinga er alltaf að tala um, þá er hann kannski að myndast þarna. En þarna er líka mjög mikil fjárfesting, bæði í skipum og vinnslu,“ segir Guðmundur. Hann bendir á að þegar makríll- inn kom hafi sjö stærstu fengið um 90% af makrílkvótanum, vegna þess að þau hafi verið búin að byggja sig upp í nauðsynlegri tækni og því getað afkastað svona miklu magni á degi hverjum. „Að vísu bræddu þau nær allan makríl- inn á þessum árum og engin önnur sjávarútvegsfyrirtæki komust að, þar sem þáverandi stjórnvöld ákváðu sóknarmark á makríl. Sá sem átti stærstu bræðsluna, eða veiddi mest í bræðslu, náði mestri hlutdeild. Svo voru veiðar bara stöðvaðar um miðjan júlí 2009, þrátt fyrir að besti tíminn fyrir að veiða verðmætasta markílinn væri eftir. Við mótmæltum þessu strax árið 2010 og sögðum að ef þessi fyr- irtæki fengju allan makrílkvótann sætum við hinir eftir og ættum engan séns í framtíðinni. Þetta er nákvæmlega það sem hefur gerst. Það sést bara af því að skoða þessa töflu sem ég var að sýna þér, að hjá þessum sjö fyr- irtækjum er eini alvöruhagnaður- inn sem myndast í greininni.“ Guðmundur heldur því fram að í sjávarútvegsráðherratíð Stein- gríms J. Sigfússonar hafi þetta í raun verið skipulagt. Skipuð hafi verið þingmannanefnd, undir for- ystu ráðherrans, þeir Kristján Möller, Sigurður Ingi Jóhannsson, Einar K. Guðfinnsson og Björn Valur Gíslason. Hver passaði eigið kjördæmi „Og hvað gerðist svo? Jú, hver og einn þingmannanna passaði bara upp á sitt eigið kjördæmi. Einar K. reddaði Snæfellsnesi og Vestfjörðunum með því að fá vaxtaafsláttinn, Björn Valur, Kristján Möller og Steingrímur J. samþykktu, með því að hafa vit- lausan þorskígildisstuðul, að þá hlífðu þeir Samherja, Síldarvinnsl- unni, Eskju, Loðnuvinnslunni og HB Granda í sínu kjördæmi og Sigurður Ingi passaði upp á það fyrir gullkarfa og úthafskarfa. Þá kem ég aftur að þorskígildis- stuðlunum,“ segir Guðmundur. „Gullkarfi er 0,89 þorskígildi en úthafskarfinn er 1,25 þorskígildi. Þetta þýðir að af úthafskarfa- veiðum er borgað 40% hærra veiðileyfagjald en af gull- karfaveiðum. Það sér það hver maður í hendi sér að þetta gengur ekki upp, þegar um jafnverðmætar fisktegundir er að ræða og álagt veiðileyfagjald miðast við það hvernig hann er unninn, þ.e. úti á sjó í frystitogurum, eða í frysti- húsum í landi. Þetta ræðst af því, samkvæmt túlkun sjávarútvegs- ráðuneytisins á lögunum um þorskígildisstuðla, þar sem bara er tekið tillitil til hvert verðmæti fiskitegunda er yfir bryggjuna, en ekki heildarverðmæti við útflutn- ing.“ Guðmundur bendir á að einna dýrmætasti framtíðarmarkaður Ís- lendinga fyrir sjávarfang sé í Asíu. „Japanir og Kínverjar eru ekkert spenntir fyrir að fá fimm til sjö daga gamlan ísfisk, frystan í landi. Þorskurinn er nær allur tekinn hér við land í ferskfiskvinnslu, af því að það er hagkvæmara. Evr- ópubúar borða þorskinn og þangað getum við sent hann ferskan. Karfinn og grálúðan fer hins vegar í miklum mæli til Asíu og þeir vilja fá fiskinn sjófrystan, það eru mestu gæðin. Með þessari uppsetningu veiði- leyfagjaldanna er í raun verið að eyðileggja okkar Asíumarkað,“ segir Guðmundur. Loks segir Guðmundur að út- flutningsverðmæti fyrir þorskinn sé um 450 krónur fyrir þorskígild- iskílóið en fyrir úthafkarfa og djúpkarfa sé það um 250 krónur. „Þess vegna spyr ég: Af hverju er karfinn að borga 20% hærri veiði- leyfagjald en þorskurinn? Þetta er ástæða þess að við höf- um alltaf mótmælt þessu útreikn- ingsfyrirkomulagi með þorskígild- isstuðlana,“ segir hann. sama fyrir Vestmannaeyjar og Skinney. Með því að hafa þorsk- ígildisstuðlana vitlausa, þá borg- uðu þessi fyrirtæki miklu minna í veiðileyfagjöld en þau hefðu í raun átt að gera. Svo vorum við hinir sem áttum engan þingmann til að passa upp á okkar hagsmuni bara skotnir á færi. Þess vegna erum við að draga saman rekstur frystitogara,“ segir Guðmundur Fjárfest fyrir 40 milljarða Guðmundur bendir á að þau fyr- irtæki sem hafi fengið úthlutað nær öllum makrílkvótanum á und- anförnum fjórum árum hafi fjár- fest í kvóta og skipum fyrir um 40 milljarða króna. Þau hafi keypt Berg-Hugin, ÚA, Stálskip, Dala Rafn, Stíganda og fleiri, en ekkert af fyrirtækjunum í 8. til 12. sæti, þ.e. FISK-Seafood, Þorbjörn, Brim, Vísir og Rammi, hafi fjár- fest á sama tímabili. Guðmundur bendir á að ekki sé síður athyglivert að skoða afla- verðmæti sjö veltuhæstu fyr- irtækjanna á árinu 2012 og bera saman við næstu fimm. Aflaverðmæti fyrirtækjanna sjö hafi verið tæpir 62 milljarðar árið 2012, samanborið við tæplega 30 milljarða næstu fimm, en EBITDA fyrirtækjanna í 8. til 12. sæti sé mjög lítil í samanburði við þau sjö stærstu. (Sjá töflu). „Er það einhver furða að við kveinkum okkur?!“ spyr hann. „Með þessari þróun og því að mismuna rekstri fiskiskipa með þessum hætti, er í raun og veru verið að leggja áherslu á að leggja niður hálaunastörf frystitog- arasjómanna,“ segir Guðmundur. Hann ber saman álögð veiði- leyfagjöld á úthafskarfa og gull- karfa. „Gullkarfinn er að mestu leyti tekinn hér inn í hús úr ísfisk- togurunum en úthafskarfinn er fullunninn á frystitogurunum, en þegar þessar tegundir eru fluttar úr landinu er mjög svipað verð HB Grandi hf 50.031.182 11,87% Samherji hf. 29.798.047 7,07% Þorbjörn hf 21.186.470 5,03% FISK-Seafood ehf. 19.481.782 4,62% Vinnslustöðin hf 17.982.292 4,27% Brim hf 16.993.343 4,03% Skinney-Þinganes hf 16.511.147 3,92% Síldarvinnslan hf 16.115.268 3,82% Vísir hf 15.601.778 3,70% Rammi hf 15.439.865 3,66% Ísfélag Vestmannaeyja hf 13.880.083 3,29% Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf 11.539.548 2,74% Heimild: Fiskistofa Kvótastærstu fyrirtækin 2012 samkv. Fiskistofu Velta, EBITDA og aflaverðmæti 2012 Aflaverðmæti Velta 2012 Ebit 2012 skipa 2012 1 Samherji hf. 88.902* 21.600 12.982 2 HB Grandi hf 31.712 9.525 17.733 3 Síldarvinnslan hf 23.963 9.660 6.675 4 Ísfélag Vestmannaeyja hf 18.457 6.357 8.014 5 Vinnslustöðin hf 14.163 3.275 6.098 6 Skinney-Þinganes hf 11.832 4.644 5.386 7 Eskja hf 9.239 3.182 4.917 58.243 61.804 8 FISK-Seafood ehf. 9.778 2.121 6.462 9 Þorbjörn hf 9.260 1.802 7.043 10 Brim hf 9.190 2.521 8.607 11 Vísir hf 9.143 2.058 2.058 12 Rammi hf 7.614 2.220 5.558 10.722 29.728 *Mikill hluti af veltu Samherja verður til erlendis Heimild: Útreikningar Brims hf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.