Morgunblaðið - 05.05.2014, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014
HVAR ER
BARNIÐ
ÞITT?
Í byrjun árs mættu þúsundir unglinga fyrirvaralaust í Smáralindina
til að sjá Vine-stjörnur og sagan endurtók sig svo nýlega þegar
YouTube-stjarna mætti til landsins. Nánast ekkert foreldri hafði
heyrt um þessar stjörnur og uppákomurnar komu mörgum á óvart.
Það er kominn tími til að tala saman
Vodafone og Dale Carnegie bjóða því foreldrum og
forráðamönnum um land allt á ókeypis vinnustofu um góð
samskipti á netinu.
Hverjar eru þær nýju áskoranir sem netið og
samfélagsmiðlar búa til í samskiptum?
Hvað þarf að vita um netsamskipti?
Hvernig byggjum við upp góð tengsl og traust í leik og starfi?
Hvað eru góð samskipti á milli foreldra og barna?
Skráning og nánari upplýsingar er að finna á dale.is/vodafone
eða í síma 555 7080.
Vodafone
Góð samskipti bæta lífið
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/ S
ÍA
Vefurinn vinsæli LinkedIn, sem
stundum er kallaður „Facebook
fagmannsins“, tók skarpa dýfu á
hlutabréfamarkaðinum vestanhafs
á föstudag en þá hrundu hlutir í
fyrirtækinu í verði um 8,4%.
Lækkunin kom í kjölfar frétta
af tapi á fyrsta ársfjórðungi upp
á 13,32 milljónir dala, jafnvirði
um 1,5 milljarða króna. Á sama
tímabili í fyrra skilaði vefurinn
hagnaði upp á 22,6 milljónir dala.
Tapið nam 11 sentum á hlut en
markaðsgreinendur höfðu vænst
hagnaðar upp á 34 sent á hlut.
Tilkynnti LinkedIn jafnframt að
á yfirstandandi fjórðungi byggist
fyrirtækið við tekjum upp á 500-
505 milljónir dala en spár grein-
enda höfðu verið nær efri tölunni.
Erfitt fyrir stóran að stækka
Businessweek fjallar um þróunina
hjá LinkedIn en hlutir í fyrirtæk-
inu hækkuðu í virði um 89% fram
á seinni hluta síðasta árs, en fóru
svo að síga allhratt niður á við
þegar sölutölur ollu fjárfestum
vonbrigðum.
Síðustu sex ársfjórðunga hefur
hægt á vexti vefsíðunnar en þar
er í dag að finna yfir 300 millj-
ónir skráðra notenda, þar af rösk-
lega 100 milljónir í Bandaríkj-
unum og 65 milljónir í Evrópu.
Segir Businessweek að stærð vefj-
arins, og sá árangur sem hann
hefur náð sé orðinn honum fjötur
um fót á markaði sem verðmetur
netfyrirtæki eftir því hversu hratt
þau stækka. Erfitt sé fyrir 300
milljóna manna vef að viðhalda
fjölda eða fjölga notendum.
Meðal þess sem LinkedIn hefur
gert til að viðhalda skriðþung-
anum er að reyna að stækka sig
út á Kínamarkað. Kínversk útgáfa
af LinkedIn var opnuð í febrúar
eftir að stjórnendur vefsins féllust
á að fylgja ströngum ritskoð-
unarreglum stjórnvalda þar í
landi. Netnotkun er nokkuð út-
breidd í Kína og mannfjöldinn
ákaflega mikill en fá bandarísk
veffyrirtæki hafa náð þar ár-
angri. Sumir vinsælustu banda-
rísku vefirnir, eins og Twitter og
Facebook, eru bannaðir á kín-
verska netinu.
Þrátt fyrir lækkunina á föstu-
dag eru hlutabréf í LinkedIn dýr-
ustu bréfin sem hægt er að kaupa
á bandarískum markaði, ef verðið
er sett í samhengi við tekjur. Er
markaðsvirði fyrirtækisins, að
sögn Businesweek 943 sinnum
væntar tekjur á þessu ári. Á með-
an eru hlutir í Facebook að selj-
ast á verði sem er 91 sinni væntar
tekjur en hlutfallið er 31 hjá
Google. ai@mbl.is AFP
Möguleikar Gestir við skjána á netkaffihúsi. LinkedIn hefur laðað að sér 300 milljón notendur á heimsvísu.
Hægir á vextinum
hjá LinkedIn
Fékk skell á mörkuðum á föstudag
● Viðskiptajöfurinn litríki Richard Bran-
son hefur tilkynnt að bæði hann og allir
starfsmenn Virgin-veldisins muni snið-
ganga Dorchester Collection-
hótelkeðjuna.
Kemur þetta til af innleiðingu sharía-
laga í soldánsdæminu smáa og auðuga
á eyjuni Borneó. Dorchester-keðjan er í
eigu soldánins af Brúnei en hann er tal-
inn einn ríkasti að-
alsmaður heims og
auður hans metinn
á um 20 milljarða
dala.
Undir Dorches-
ter-keðjuna heyra
tíu hótel í hæsta
gæðaflokki hér og
þar um heiminn.
Má þar nefna The
Dorchester hótelið
sögufræga í Lond-
on, The Beverly Hills Hotel í Los Angel-
es, Plaza Athénée í París og Le Riche-
mond í Genf.
Branson er að fylgja fordæmi stjarna
á borð við Ellen DeGeneres, Stephen
Fry og Sharon Osbourne sem í byrjun
síðustu viku sendu þau skilaboð út á
Twitter að þau hygðust sniðganga
Dorchester-keðjuna í mótmælaskyni,
enda kveða sharía-lög m.a. á um
dauðarefsingu við samkynhneigð.
ai@mbl.is
Branson setur
Brúnei í straff
Richard
Branson