Morgunblaðið - 05.05.2014, Page 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014
SKARTAÐU ÞÍNU
FEGURSTA
Bankastræti 4 I sími: 551 2770 I www.aurum.is
Skartgripalínan Svanur fæst
í verslun Aurum, Bankastræti 4.
D
U
X
®,
D
U
X
IA
N
A
®
a
n
d
P
a
sc
a
l®
a
re
re
g
is
te
re
d
tr
a
d
e
m
a
rk
s
o
w
n
e
d
b
y
D
U
X
D
e
si
g
n
A
B
2
0
12
.
Við tökum svefninn alvarlega.
Hjá DUX® byggist góður svefn á háþróaðri tækni,
góðu handverki, stöðugum prófunum
og vandlega völdum efnum.
Þegar þú sefur í DUX rúmi hvílir líkami þinn
á meira en 85 ára rannsóknum og þróun.
duxiana.com
DUXIANA háþróaður svefnbúnaður / Ármúla 10 / 568 9950
Gæði og þægindi síðan 1926
Þeir sem komust lífs af þegar aur-
skriður féllu yfir þorp í norðurhluta
Afganistans á föstudaginn var
syrgja nú látna ættingja og vini. Um
700 fjölskyldur eru heimilislausar.
Talið er að allt að 2.500 manns hafi
grafist undir aurnum og látið lífið.
Aurskriðurnar hreinlega gleyptu
þorpið Aab Bareek í Badakhshan-
héraði. Aurinn fór á augabragði yfir
svæðið og skriðunum fylgdu bæði
leðja og grjót. Um 300 hús hurfu með
öllu og mun fleiri skemmdust.
Stjórnvöld í Afganistan segja
staðfest að 300 hafi farist en telja að
sú tala eigi eftir að hækka mikið því
líklega hafi 2.500 grafist undir leðj-
unni. Leit að fólki á lífi var hætt á
laugardag þar sem ekki var hægt að
koma gröfum og öðrum tækjum á
svæðið. Aðeins örfá lík hafa fundist í
aurnum sem liggur yfir öllu. Sums
staðar er nokkurra metra lag af aur
yfir húsunum.
Sváfu undir berum himni
Begum Nisa er þriggja barna
móðir og missti heimili sitt í skrið-
unum. „Ég var að borða hádegismat-
inn við gluggann í húsinu mínu. Þá
heyrði ég eins og mikið öskur og ég
áttaði mig á því að þorpið okkar væri
að fara undir leðjuflóð. Ég öskraði á
fjölskyldu mína að reyna að forða sér
en það var of seint. Ég missti föður
minn og móður. Ég missti einnig
frænda minn og fimm úr hans fjöl-
skyldu.“
Íbúar sem komust lífs af hófu þeg-
ar að grafa í leðjunni með skóflum.
Þeir leituðu fólks á lífi en enginn
fannst.
Neyðarbirgðir voru fluttar á
svæðið í fyrradag, meðal annars
tjöld svo að fólkið sem missti heimili
sín gæti fengið skjól. Búðir hafa ver-
ið reistar í nágrenni þorpsins. Marg-
ar fjölskyldur þurftu þó að sofa undir
berum himni í næturfrostinu.
Óttast er að fleiri skriður muni
falla.
Þegar skriðurnar féllu á föstudag-
inn voru margir þorpsbúar við bænir
í tveimur moskum þorpsins. Leðju-
flóðið fór yfir moskurnar og allir
grófust undir. Íbúar komu þá á stað-
inn og reyndu að grafa í leðjunni en
þá féll annað flóð. Þeir sem voru að
reyna að bjarga nágrönnum sínum
og fjölskyldum grófust undir.
AFP
Hjálp Íbúar Aab Bareek í Afganistan taka við hjálpargögnum eftir að aurskriður féllu á þorpið á föstudaginn var.
Hundruð manna talin
af eftir aurskriður
700 fjölskyldur heimilislausar eftir skriður í Afganistan
Lögreglan á Norður-Írlandi leysti í
gær Gerry Adams, leiðtoga stjórn-
málaflokksins Sinn Féin, úr haldi en
hann hafði þá verið í gæsluvarðhaldi
í fjóra sólarhringa vegna rann-
sóknar á morði sem framið var árið
1972.
Lögreglan tilkynnti jafnframt að
skýrsla um málið yrði send til ríkis
saksóknaraembættis Norður-
Írlands. Mun það embætti meta
hvort gefin verði út ákæra á hendur
Adams vegna málsins.
Adams var handtekinn á miðviku-
dag í tengslum við rannsókn á dauða
Jean McConville, 10 barna móður
sem var numin á brott af heimili sínu
árið 1972 en lík hennar fannst árið
2003. Talið er að félagar í Írska lýð-
veldishernum (IRA) hafi verið þar
að verki en þeir höfðu sakað McCon-
ville um að vera uppljóstrara.
Adams hefur ítrekað vísað því á bug,
síðast í gær, að hann tengist morð-
inu og hann segist aldrei hafa verið
félagi í IRA.
Óttast er að þetta mál hafi áhrif á
friðarferlið á Norður-Írlandi en Sinn
Féin á aðild að heimastjórn landsins.
Adams sagði á blaðamannafundi í
gærkvöldi að handtakan ætti sér
pólitískar rætur. gummi@mbl.is
AFP
Mótmæli Hundruð stuðningsmanna Sinn Féin mótmæltu handtöku Adams í
Belfast um helgina við nýja veggmynd, sem máluð hefur verið af honum.
Adams laus úr haldi
Gæti átt yfir höfði sér ákæru vegna
morðs á konu í Belfast árið 1972