Morgunblaðið - 05.05.2014, Side 27
Hann hafði áður unnið hjá Jarðbor-
unum ríkisins sem voru og hétu á
þeim tíma, og var einnig iðnráðgjafi
fyrir Norðurland um tíma. Árið
2012 stofnaði hann síðan Alvarr
Sverige AB. Friðfinnur fékk krefj-
andi verkefni fyrir orkuveituna í
Lundi sem stóð yfir frá 2011-2013
og er nú meira og minna starfandi í
Svíþjóð og byrjaður í öðrum verk-
efnum þar. Áður hafði hann unnið
fyrir orkuveituna í Lundi bæði 2004
og aftur 2010. Eins og kunnugt er
hefur orkuiðnaðurinn á Ísland verið
í lamasessi á undanförnum árum og
því fór hann eins og margir fleiri að
leita fyrir sér erlendis.
Alvarr ehf. er þó enn með starf-
semi hér heima, t.d. er nú verið að
afla fæðivatns fyrir varmadælu sem
fyrirhugað er að koma upp fyrir
íþróttahús, sundlaug og önnur
mannvirki í Vík í Mýrdal.
Friðfinnur er frumkvöðull að
eðlisfari og hefur hannað og smíðað
í samstarfi við aðra góða menn bæði
varmadælur sem og allskonar önnur
tæki og tól tengd borana- og orku-
geiranum.
Í apríl sl. fékk Friðfinnur styrk úr
frumkvöðlasjóði Íslandsbanka
vegna verkefnis sem snýr að þróun
nýrrar aðferðar við boranir í hart
berg. Verkefnið er unnið í samstarfi
við ungan nemanda sem er að ljúka
meistaranámi við í Háskólann í
Reykjavík. Nú sem stendur er verið
er að smíða frumgerð borkrónunnar
en fyrstu prófanir ættu að geta farið
fram í lok maí. Ef hugmyndin geng-
ur upp má búast við verulegum
framförum á þessu sviði sem spara
munu tíma og fjármuni og nýtast
bæði litlum og stórum jarðborum.
Áhugamál
„Ferðalög eru ofarlega á blaði, að
sjá nýja staði og kynnast lifn-
aðarháttum og aðstæðum annarra.
Reyni að fara á tónleika eftir því
sem færi gefst og hlusta töluvert á
tónlist á ferðalögum. Einnig er alltaf
jafngaman að vera úti í náttúrunni
og renna t.d. fyrir silung, ég byrjaði
í því sem smástrákur en hef of lítinn
tíma fyrir það í dag. Bílar, trukkar
og hverskyns vélar eru alltaf innan
áhugasviðsins og ávallt er kíkt á
þess háttar sýningar ef í boði eru.“
Fjölskylda
Eiginkona Friðfinns er Arna Þor-
valds, f. 21.8. 1956, leikskólakennari
á Seltjarnarnesi. Foreldrar hennar
eru Hrafnhildur Þorvaldsdóttir og
Reynar Hannesson en þau eru bæði
látin.
Börn Friðfinns og Örnu eru Hilda
Friðfinnsdóttir, f. 12.8. 1976, hjúkr-
unarfræðingur og ljósmóðir á Land-
spítalanum, og Birkir Friðfinnsson,
f. 29.7. 1982, sjúkraþjálfari sem hef-
ur einnig lokið lokaprófi frá Vél-
skóla Íslands.
Systkini Friðfinns eru Anna Rósa
Daníelsdóttir, f. 9.4. 1950, hjúkr-
unarfræðingur; Þórlaug Daníels-
dóttir, f. 27.2. 1952, bús. í Bandaríkj-
unum sem á og rekur íbúðir sem
hún leigir út; Svanhildur Daníels-
dóttir, f. 1.7. 1958, sérkennari á Ak-
ureyri; Friðjón Ásgeir Daníelsson, f.
1.8. 1967, múrari að mennt og vinn-
ur nú hjá Sjóvá.
Foreldrar Friðfinns eru Daníel
Pálmason, f. 21.6. 1912, d. 19.3. 1999,
bóndi í Gnúpufelli í Eyjafirði, og
Ingibjörg Bjarnadóttir bóndi f. 22.9.
1926, bús. í Gnúpufelli.
Úr frændgarði Friðfinns K. Daníelssonar
Friðfinnur K.
Daníelsson
Sigríður Gunnarsdóttir
húsfreyja á Leiti
Vigfús Nathanaelsson
bóndi á Leiti í Alviðru í Dýrafirði
Sigríður Gunnjóna Vigfúsdóttir
húsfreyja í Innri-Lambadal
Bjarni Sigurðsson
bóndi í Innri-Lambadal í Dýrafirði
Ingibjörg Bjarnadóttir
bóndi á Gnúpufelli
Guðrún Bjarnadóttir
húsfreyja á Felli
Sigurður Bjarnason
bóndi á Felli í Mýrahreppi
Þuríður Friðfinnsdóttir
frá Seljahlíð
Einar Hallgrímsson Thorlacius
frá Hrafnagili, fór til Vesturheims
Anna Rósa Einarsdóttir
húsfreyja á Gnúpufelli
Pálmi J. Þórðarson
bóndi á Gnúpufelli
Daníel Pálmason
bóndi á Gnúpufelli í Eyjafirði
Guðlaug Jónasdóttir
húsfreyja í Gnúpufelli
Þórður Daníelsson
bóndi víða í Eyjafjarðarsveit, síðast í Gnúpufelli
Afmælisbarnið Í garðinum heima.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014
Magnús Torfi Ólafsson fædd-ist á Lambavatni á Rauða-sandi 5.5. 1923, Foreldrar
hans voru Ólafur Sveinsson, bóndi
þar, og k.h. Halldóra Guðbjört
Torfadóttir húsmóðir.
Ólafur var sonur Sveins Magnús-
sonar, b. á Lambavatni, og k.h.,
Halldóru Ólafsdóttur húsfreyju.
Halldóra Guðbjört var systir Önnu
Guðrúnar, móður Torfa Jónssonar,
formanns kaþólskra leikmanna á Ís-
landi, föður Ólafs, fyrrv. ritstjóra
Þjóðviljans. Móðir Halldóru Guð-
bjartar var Guðbjörg Ólína, systir
Ólafs í Hænuvík, föður Guðbjarts,
hafnsögumanns í Reykjavík, föður
Dóru, ekkju Ólafs Jóhannessonar
forsætisráðherra.
Magnús Torfi varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri 1944.
Hann var blaðamaður við Þjóðvilj-
ann 1945-1962, lengst fréttastjóri er-
lendra frétta, og ritstjóri 1959-1962.
Hann var deildarstjóri í Bókabúð
Máls og menningar í Reykjavík
1963-1971,
Magnús Torfi var alþingismaður
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna 1971-1978, mennta-
málaráðherra 1971-1974, samgöngu-
og félagsmálaráðherra maí til sept-
ember 1974. Hann var blaðafulltrúi
ríkisstjórnarinnar 1978-1989. Magn-
ús Torfi sat í menntamálaráði 1967-
1971, var formaður Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík 1966-1967,
formaður Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna 1974-1982, formaður
sendinefndar Íslands á umhverf-
ismálaráðstefnu SÞ 1972. í sendi-
nefnd Íslands á allsherjarþingi SÞ
1974 og 1975 og á hafréttarráðstefnu
SÞ 1976, 1977 og 1978. Hann var for-
maður stjórnar Þjóðhátíðarsjóðs
1986-1994, og sat í stjórnarskrár-
nefnd frá 1986.
Kona Magnúsar Torfa var Hin-
rika Kristjana Kristjánsdóttir, f. 23.
ágúst 1920, d. 22.3. 2010, hjúkr-
unarfræðingur. Foreldrar hennar
voru Kristján Þórðarson og k.h. Sig-
urlína Kolbeinsdóttir. Börn þeirra
eru Ingimundur Tryggvi, Halldóra
Guðbjört og Sveinn Eyjólfur.
Magnús Torfi Ólafsson lést 3.11.
1998.
Merkir Íslendingar
Magnús Torfi
Ólafsson
90 ára
Guðborg Franklínsdóttir
Ólafur Ólafsson
Sesilía Þorsteinsdóttir
85 ára
Borgþór S. Olsen
Gunnar Lárusson
Lúðvík R.K. Guðmundsson
Sigurgeir Ingimarsson
80 ára
Bryndís Jónasdóttir
Erla Baldursdóttir
Hjördís Jónasdóttir
Ragnar Guðlaugsson
Ragnheiður Sigvaldadóttir
Sólveig Alexandersdóttir
Stefán Þór Óskarsson
75 ára
Guðrún Marsibil
Jónasdóttir
Júlíana Sigurðardóttir
Kristinn Benediktsson
Sigrún Garðarsdóttir
Sigurður Björgvin
Björgvinsson
70 ára
Grethe Wibeke Iversen
Hörður Sigmundsson
Ída Bergmann Hauksdóttir
Jóna Sigurbjörg Óladóttir
Karl Jóhann Ottósson
Maj-Britt Kolbr.
Hafsteinsdóttir
Vilmundur Víðir Sigurðsson
60 ára
Bjarndís Jónsdóttir
Kristján Sigurmundsson
Sighvatur Blöndahl
Magnússon
Sigrún Baldursdóttir
Sigurður Árnason
Þórdís Björg Kristinsdóttir
50 ára
Ásta Linda Helgadóttir
Björn Ingi Guðmundsson
Erling Sigurðsson
Helga Eiríksdóttir
Helgi Þorkell Kristjánsson
Jósef Gunnar Sigþórsson
Júlíana F. Harðardóttir
Kristinn Stefán Einarsson
Kristján Þ. Vilhjálmsson
Malgorzata Polinska
Sigurður Haraldsson
Snorri Emilsson
Sólrún B. Guðbjartsdóttir
Sævar Lúðvíksson
40 ára
Anna María Hjálmarsdóttir
Björn Arnar Kristbjörnsson
Heiðrún Þorsteinsdóttir
Helgi Vigfússon
Hrannar Már Sigmarsson
Hulda Orradóttir
Illugi Fanndal Birkisson
Ólöf Ósk Kjartansdóttir
Rúnar Páll Sigmundsson
Sólveig Björgvinsdóttir
Þórunn Ösp Björnsdóttir
Ægir Snær Sigmarsson
30 ára
Ewelina Olow
Ívar Jensson
Jaroslaw Serwatka
Jón Kolbeinn Guðjónsson
Lilja Helgadóttir
Óli Þór Hjaltason
Til hamingju með daginn
30 ára Kristín Erla er
Garðbæingur og er í fæð-
ingarorlofi.
Maki: Birgir Kristjánsson,
f. 1982, rekstrarstjóri hjá
KFC.
Börn: Karítas, f. 2007, og
Dagur Kári, f. 2013.
Foreldrar: Þórir Bald-
ursson, f. 1955, leið-
sögumaður hjá Kynn-
isferðum, og Auður
Guðmundsdóttir, f. 1962,
bókari hjá Samtökum at-
vinnulífsins.
Kristín Erla
Bech Þórisdóttir
30 ára Þorgrímur Tjörvi
er fæddur og uppalinn á
Höfn í Hornafirði og er ný-
fluttur þangað aftur til að
gerast ferðaþjón-
ustubóndi.
Maki: Birna Jódís Magn-
úsdóttir, f. 1987, ferða-
þjónustubóndi.
Dóttir: Katla Eldey, f.
2013.
Foreldrar: Halldór Tjörvi,
f. 1952, kennari, og
Amalía Þorgrímsdóttir, f.
1952, hjúkrunarfræðingur.
Þorgrímur
Tjörvi
30 ára Tui Hirv er fædd og
uppalin í Tallinn í Eistlandi
en fluttist til Íslands á síð-
asta ári og býr í Reykjavík.
Hún er klassískt menntuð
ljóðasöngkona og tónlist-
arfræðingur.
Maki: Páll Ragnar Pálsson,
f. 1977, tónskáld.
Sonur: Eiríkur Hirv, f.
2009.
Foreldrar: Indrek Hirv, f.
1956, ljóðskáld í Eistlandi,
og Pille Lehis, f. 1958,
vatnslitamálari í Eistlandi.
Tui
Hirv