Morgunblaðið - 05.05.2014, Síða 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Leiðin út úr klípunni sem þú ert í er
ekki sú sama og þú rataðir í hana eftir. Erfitt
samtal sem þú kvíðir mun reynast þér auð-
velt.
20. apríl - 20. maí
Naut Það getur reynt á þig að halda heim-
ilisfriðinn. Ekki bregðast við. Ef þú vilt ekki
staðna verðurðu að sýna dirfsku.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert að velta því fyrir þér hvort þú
eigir að sýna meiri hörku í viðkvæmu máli.
Hugsun þín er skýr og þú ert tilbúin/n til að
sökkva þér niður í hlutina.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Notaðu daginn í dag til listsköpunar,
lyftu þér upp eða sæktu leikhús. Gerðu eitt-
hvað skapandi í dag og gefðu þér líka tíma til
að njóta lífsins með vinum þínum og kunn-
ingjum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Samræður þínar við foreldra þína og yf-
irmenn geta orðið svolítið erfiðar í dag. Ef þig
langar að verða hamingjusamri þá skaltu
bara líta upp. Láttu þau ekki raska ró þinni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er eitt varðandi hið fullkomna
samband, það er ekki til. Bakaðu, kauptu af-
skorin blóm eða finndu þér nýjan ilm.
23. sept. - 22. okt.
Vog Stundum breytast hugsanir manns og
svo breytist maður sjálfur. Gefðu þér tíma til
að njóta fegurðar náttúrunnar með þínum
nánustu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Fátt er betra en góðir vinir en
farðu varlega í að ráðleggja þeim í við-
kvæmum málum. Með yfirvegun skilar þú
bestum árangri. Mundu að aðgát skal höfð í
nærveru sálar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þér er óhætt að láta eitthvað eftir
þér í tilefni farsælla verkloka. Notaðu þitt líf-
lega ímyndunarafl til þess að búa til kraft-
miklar myndir af framtíðinni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert full/ur af krafti sem nýtist
til þess að koma þér áleiðis og ná árangri í
dag. Persónulegur stíll þinn laðar að þér nýja
vini og viðskiptavini.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það liggur við að menn þurfi að
hafa augu á hverjum fingri í fjármálaheimi
nútímans. Annars vegar eru kröfur vinnunnar
og hins vegar kröfur heimilis og einkalífs.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ættir að gera eitthvað fyrir sjálfa/n
þig, ekkert stórt, en það má margt gera án
mikillar fyrirhafnar eða kostnaðar. Gerðu eins
vel og þú getur núna.
Nú er í tísku að konur borðifylgjuna eftir fæðingu,“ skrif-
ar Davíð Hjálmar Haraldsson. „Er
það talið hollt enda vantar konur
oft ýmis nauðsynleg efni eftir með-
göngu og fæðingu:
Sængurkonan matinn metur
– mýgrút efna skorta kann –
og fylgjuna hún ótrauð etur.
Einstaka vill botnlangann.“
Hjálmar Freysteinsson orti þeg-
ar Guðni Ágústsson var orðaður við
fyrsta sæti Framsóknar í höfuð-
borginni:
Betri horfum Framsókn fagnar,
fylgið talsvert aukist gæti.
Annað hvort verður Ólafur Ragnar
eða Guðni í fyrsta sæti.
Friðrik Steingrímsson lagði orð í
belg:
Óli og Guðni enga hvetja
eða gefa nokkra von,
efstan finnst mér ætti að setja
Alfreð gamla Þorsteinsson.
Ólafur Stefánsson tók upp hansk-
ann fyrir Guðna:
Engan meira þeir óttast núna,
en endurræstan Flóamann,
sem tekur sviðið og teymir kúna,
teygir lopa og sögur kann.
Hjálmar velti fyrir sér hvort ekki
mætti fara lengra aftur:
Víst er Framsókn fylgissmá
en flest má leysa í pólitík.
Eystein Jónsson ætti að fá
í efsta sæti í Reykjavík.
Bjarki Karlsson velti þessu fyrir
sér:
Frammaranna fylgi hérna
furðu mikið yrði
ef byðu þeir fram bóndann erna
úr Brekku í Mjóafirði.
Loks Ágúst Marinósson:
Fortíðina flestir þrá,
fnyk úr gömlum krúsum.
Best þeim kæmi í borg að fá
Bjart í Sumarhúsum.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af fylgjum, Framsókn og
Bjarti í Sumarhúsum
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG ER BÚIN AÐ LEITA ALLS STAÐAR.
ÉG FINN EKKI GLERAUGUN ÞÍN.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar ekkert getur
slökkt eldinn sem
brennur innra með ykkur.
GULRÆTURRADÍSUR
VORUM VIÐ EKKI BÚIN
AÐ TALA UM AÐ NOTA
EKKI BÚNINGA Í ÁR?
SÁSTU LISTANN MINN
YFIR LEIÐIR TIL AÐ HALDA
HÚSINU HREINU?
JÁ, JÓN.
ÉG SÁ HANN.
OG ÉG ÞURRKAÐI
AF FÓTUNUM Á
HONUM.
OG ÞÉR FINNST
STUNDUM EINS OG
ALLIR GANGI YFIR ÞIG
Á SKÍTUGUM SKÓNUM?
GÓLF-
EFNI
Eins og margsinnis hefur komiðfram er Víkverji mikill áhuga-
maður um Eurovision. Enda ekki
annað hægt, þegar jafn góð skemmt-
un og söngvakeppni höfðar líka til
þjóðrembunnar.
Nú er ekki nema rúmur sólar-
hringur þar til drengirnir í Pollapönki
stíga á sviðið í Kaupmannahöfn, og
spennan er mikil. Líklega hefur Evr-
ópa aldrei séð hljómsveit eða atriði á
borð við það sem Ísland býður upp á í
ár. Óvenjuleg atriði eiga það til að slá
annaðhvort rækilega í gegn í keppn-
inni eða skítfalla. Afsakið orðbragðið.
x x x
Reyndar virðist Evrópa tvískipt íafstöðu sinni til íslenska lagsins.
Að minnsta kosti ef marka má við-
brögð netverja á Youtube-rás keppn-
innar.
„Eru þeir samkynhneigðir?“ spyr
notandinn GegeGtHun. Lagið heitir
jú Enga fordóma og varla fer fólk að
láta sig slík málefni varða nema það
tilheyri minnihlutahópi sjálft, eða
hvað?
„Þið fáið 12 stig og heimsókn frá
mér til Íslands. Gangi ykkur vel, frá
Litháen,“ segir Kentas Mafioz.
„Þetta lag er alltof skemmtilegt
fyrir Eurovision!“ segir rtpe.
„Ég vissi alltaf að Ísland væri
svalt,“ segir Kate S.
En það er án efa notandinn bolix67
sem á skemmtilegustu athugasemd-
ina: „Þetta hljómar eins og sigurlag
úr keppni skipulagðri af ráðamönn-
um Evrópusambandsins. „Umburð-
arlyndi er sæla“ – sorglegt. Umberið
elítuna sem gefur almenningi í Evr-
ópu langt nef. Rétthugsunar-
kjaftæði.“
x x x
Víkverji hefur heyrt þá skoðunmeðal Íslendinga að lagið Enga
fordóma sé ekki nógu Eurovision-legt
til að komast áfram í aðalkeppnina.
Víkverji hefur hins vegar hlustað á
hin lögin sem keppa annað kvöld og
telur íslenska lagið sannarlega vera
meðal þeirra bestu.
Í því samhengi dettur Víkverja í
hug nokkuð sem hann lærði þegar
hann ferðaðist um dvalarsvæði skóg-
arbjarna fyrir nokkrum árum: Þú
þarft ekki að hlaupa hraðar en björn-
inn, bara hraðar en félagar þínir.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Og þetta er vitnisburðurinn: Guð hef-
ur gefið okkur eilíft líf og þetta líf er í
syni hans. (Fyrsta Jóhannesarbréf 5:11)
JEPPADEKK
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
Hljóðlát og endingargóð
jeppadekk sem koma
þér örugglega hvert
á land sem er.