Morgunblaðið - 05.05.2014, Page 30

Morgunblaðið - 05.05.2014, Page 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014 VIÐTAL Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Arna Kristín Einarsdóttir tók við stöðu framkvæmdastjóra Sinfón- íuhljómsveitar Íslands síðastliðið haust og er því rétt að ljúka sínu fyrsta starfsári í nýju starfi en hún var áður tónleikastjóri hljómsveit- arinnar. Spurð um stöðuna, stefnu- mótun og áherslur segir Arna: „Sin- fóníuhljómsveit er dálítið eins og stórt skip á siglingu. Þú breytir ekki hratt um stefnu enda hlutirnir fast- mótaðir og skipulagðir langt fram í tímann. Skipstjórar þurfa þó stund- um að geta verið skjótir til ákvarð- ana. Það er hins vegar einstakt tæki- færi að fá að taka við stjórninni á þeim tímamótum sem hljómsveitin stendur á, nýflutt í tónlistarhús þar sem allar aðstæður eru á heims- mælikvarða og hljómsveitin hefur möguleika á að ná listrænu flugi nú sem aldrei fyrr.“ Leit að aðalhljómsveitarstjóra Spurð um þau umskipti sem það var fyrir Sinfóníuhljómsveitina að fara úr Háskólabíói í Hörpu segir Arna: „Þetta breytir öllu. Harpa hef- ur sett okkur í nýtt alþjóðlegt sam- hengi. Einleikarar og hljómsveit- arstjórar sækjast eftir að koma og vinna með okkur. Það er hins vegar mikið og flókið ferli að flytja stofnun á milli staða. Að fara úr sal sem var hannaður fyrir bíó í sal sem er hann- aður fyrir sinfóníska tónlist þar sem allt heyrist reynir miklu meira á hljóðfæraleikarana en gefur hljóm- sveitinni um leið möguleika á að vaxa og dafna. Við búum því einstaklega vel og erum þakklát fyrir að vera í þessu glæsilega tónleikahúsi.“ Hvað er framundan hjá hljómsveit- inni? „Í þessari viku er heiðursstjórn- andi okkar VladimirAshkenazy að stjórna hljómsveitinni. Hann er risi í íslensku tónlistar- og menningarlífi. Hann stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands og byggði upp, stofnaði Listahátíð í Reykjavík og lagði grunninn að byggingu tónlistarhúss- ins Hörpu með því að fara fyrstur af stað með söfnun fyrir tónlistarhúsi fyrir um 30 árum í London. Að hafa fengið að kynnast og vinna náið með Ashkenazy og Þórunni eiginkonu hans er mér persónulega ákaflega dýrmætt. Eftir þrjár vikur kemur Osmo Vänskä, fyrrverandi aðal- hljómsveitarstjóri, að stjórna hljóm- sveitinni í þriðju sinfóníu Mahlers á Listahátíð. Hann er algjör galdra- maður með tónsprotann. Næsta starfsár hefst svo á því að hljómsveitin spilar á bresku tónlist- arhátíðinni Proms 22. ágúst sem er gríðarlegur heiður, einstakt tækifæri og mikil landkynning. Það er því allt- af eitthvað spennandi framundan hjá okkur. Hljómsveitin stendur líka á ákveðnum tímamótum því við erum að hefja leit að nýjum aðalhljómsveit- arstjóra og þurfum að finna réttu manneskjuna til að vinna með okkur. Ég held að það séu mikil tækifæri í stöðunni. Í leikhúsum eru listrænir stjórnendur heimafólk en hjá okkur eru aðalhljómsveitarstjórar, sem einnig eru listrænir stjórnendur, allt- af að utan. Það myndast ákveðin dýnamík að fá utanaðkomandi aðila að starfa með og margt hægt að læra af erlendum hljómsveitarstjórum. Þeir þurfa hins vegar líka að vera til- búnir að hlusta á það hvernig við ger- um hlutina því að mörgu leyti eru að- stæður okkar sérstakar og ýmislegt Nýtt alþjóð- legt samhengi  Arna Kristín Einarsdóttir er framkvæmdastjóri Sinfóníu- hljómsveitar Íslands » Stundum finnstmér ég nánast vera í trúboði. Ég trúi svo sterkt á tón- listina og það afl sem í henni býr. Tónlistin talar beint til tilfinn- inganna og hjálpar fólki að komast í samband við sjálft sig. Hún hjálpar okkur að finna til og ég vil skapa sem flestum umgjörð og færi á að upplifa og heyra stórkostleg- ustu tónverk manns- andans. Harpa breytti öllu „Einleikarar og hljómsveitarstjórar sækjast eftir því að koma og vinna með okkur,“ segir Arna Kristín Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Heimili og hönnun föstudaginn 9. maí Í blaðinu verða kynntir geysimargir möguleikar og sniðugar lausnir fyrir heimilin. Skoðuð verða húsgögn og hönnun fyrir stofu, hjónaherbergi, barnaherbergi og innréttingar bæði í eldhús og bað. SÉRBLAÐ HEIMILI & HÖNNUN –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA: fyrir kl. 16 mánudaginn 5.maí.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.