Morgunblaðið - 05.05.2014, Qupperneq 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2014
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is SVANIR SKILJA EKKI –„Bráðfyndin og skemmtileg sýning...“
Fréttablaðið
SPAMALOT (Stóra sviðið)
Fös 9/5 kl. 19:30 30.sýn Lau 17/5 kl. 19:30 32.sýn Lau 24/5 kl. 19:30 34.sýn
Lau 10/5 kl. 16:00 31.sýn Sun 18/5 kl. 19:30 33.sýn Sun 25/5 kl. 19:30 35.sýn
Salurinn veltist um af hlátri. Fáránlega skemmtilegt!
Svanir skilja ekki (Kassinn)
Mið 7/5 kl. 19:30 23. sýn Lau 17/5 kl. 19:30 25.sýn
Fös 9/5 kl. 19:30 24. sýn Sun 18/5 kl. 19:30 26.sýn
Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur um undarlegt eðli hjónabandsins.
Eldraunin (Stóra sviðið)
Fim 8/5 kl. 19:30 5.sýn Fim 15/5 kl. 19:30 7.sýn Fim 22/5 kl. 19:30 9.sýn
Sun 11/5 kl. 19:30 6.sýn Fös 16/5 kl. 19:30 8.sýn Fös 23/5 kl. 19:30 10.sýn
Tímalaust meistaraverk - frumsýning 25.apríl.
Litli prinsinn (Kúlan)
Lau 10/5 kl. 14:00 Aukas. Sun 11/5 kl. 16:00 14.sýn Sun 18/5 kl. 14:00
Lau 10/5 kl. 16:00 Aukas. Lau 17/5 kl. 14:00 Sun 18/5 kl. 16:00
Sun 11/5 kl. 14:00 13.sýn Lau 17/5 kl. 16:00
Falleg sýning um vináttuna og það sem skiptir máli í lífinu.
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Furðulegt háttalag –★★★★★- HA, DV
Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið)
Fim 8/5 kl. 20:00 Fös 23/5 kl. 20:00 Fös 6/6 kl. 20:00
Fös 9/5 kl. 20:00 Lau 24/5 kl. 20:00 Lau 7/6 kl. 20:00 lokas
Sun 11/5 kl. 20:00 Lau 31/5 kl. 20:00
Fim 22/5 kl. 20:00 Sun 1/6 kl. 20:00
Ótvíræður sigurvegari Olivier Awards 2013.
BLAM (Stóra sviðið)
Þri 13/5 kl. 20:00 1.k Lau 17/5 kl. 14:00 Fös 20/6 kl. 20:00 aukas
Mið 14/5 kl. 20:00 2.k Sun 18/5 kl. 14:00 6.k Lau 21/6 kl. 20:00 aukas
Fim 15/5 kl. 20:00 3.k Sun 18/5 kl. 20:00 7.k Sun 22/6 kl. 20:00 lokas
Fös 16/5 kl. 20:00 4.k Fim 19/6 kl. 20:00 aukas
Sýning ársins í Danmörku 2012, 6 Grímutilnefningar 2013. Aðeins þessar sýningar!
Dagbók Jazzsöngvarans (Nýja sviðið)
Fim 8/5 kl. 20:00 Lau 17/5 kl. 20:00 Lau 31/5 kl. 20:00
Fös 9/5 kl. 20:00 Lau 24/5 kl. 20:00
Nýtt verk frá CommonNonsense sem færðu okkur Tengdó, Grímusýningu ársins 2012
Ferjan (Litla sviðið)
Þri 6/5 kl. 20:00 16.k Þri 20/5 kl. 20:00 25.k Lau 31/5 kl. 20:00 32.k
Mið 7/5 kl. 20:00 17.k Mið 21/5 kl. 20:00 aukas Sun 1/6 kl. 20:00 33.k
Fim 8/5 kl. 20:00 aukas Fim 22/5 kl. 20:00 26.k Þri 3/6 kl. 20:00 34.k
Fös 9/5 kl. 20:00 18.k Fös 23/5 kl. 20:00 27.k Mið 4/6 kl. 20:00 35.k
Sun 11/5 kl. 20:00 19.k Lau 24/5 kl. 20:00 aukas Fim 5/6 kl. 20:00 aukas
Mið 14/5 kl. 20:00 20.k Sun 25/5 kl. 20:00 28.k Fös 6/6 kl. 20:00 36.k
Fim 15/5 kl. 20:00 21.k Þri 27/5 kl. 20:00 29.k Lau 7/6 kl. 20:00 37.k
Fös 16/5 kl. 20:00 22.k Mið 28/5 kl. 20:00 30.k Mið 11/6 kl. 20:00 38.k
Lau 17/5 kl. 20:00 23.k Fim 29/5 kl. 20:00 31.k Fim 12/6 kl. 20:00
Sun 18/5 kl. 20:00 24.k Fös 30/5 kl. 20:00 aukas Fös 13/6 kl. 20:00
Fyrsta leikrit Kristínar Marju eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar
Hamlet litli (Litla sviðið)
Þri 6/5 kl. 10:00 * Lau 10/5 kl. 13:00 ** Fim 15/5 kl. 10:00 *
Mið 7/5 kl. 10:00 * Sun 11/5 kl. 13:00 Fös 16/5 kl. 10:00 *
Fim 8/5 kl. 10:00 * Þri 13/5 kl. 10:00 * Sun 18/5 kl. 13:00
Fös 9/5 kl. 10:00 * Mið 14/5 kl. 10:00 *
Harmsaga Hamlets fyrir byrjendur. * Skólasýningar. **Táknmálstúlkuð sýning
Der Klang Der offenbarung Des Göttlichen (Stóra svið)
Mið 28/5 kl. 20:00 1.k Fim 29/5 kl. 20:00 2.k Fös 30/5 kl. 20:00 3.k
Myndlistarverk fyrir svið eftir Ragnar Kjartanson. Tónlist Kjartan Sveinsson
★★★★ – SGV, Mblamlet
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Fuglinn blái (Aðalsalur)
Þri 13/5 kl. 20:00
Leiklestur
Wide Slumber (Aðalsalur)
Lau 24/5 kl. 20:00 Sun 25/5 kl. 20:00 Mán 26/5 kl. 20:00
Miða má nálgast hjá Listahátíð í Reykjavík
Danssýningin Death (Aðalsalur)
Fim 29/5 kl. 20:00 Fös 30/5 kl. 20:00
Stund milli stríða (Aðalsalur)
Fös 9/5 kl. 20:00
sem er takmarkandi í þeim miðað við
það sem gerist víða erlendis. Sam-
keppnin um bestu hljómsveitar-
stjórana er hörð svo það kallar á út-
sjónarsemi og að grípa tækifærin
þegar þau gefast.
Við Íslendingar eigum líka stór-
kostlegt listafólk sem Sinfóníu-
hljómsveitin á að mínum dómi að
leggja áherslu á að vinna með. Til
dæmis Önnu Þorvaldsdóttur sem
vann Tónlistarverðlaun Norður-
landaráðs. Daníel Bjarnason er einn-
ig að gera frábæra hluti, vinnur með
stærstu og virtustu hljómsveitum í
heimi sem panta og frumflytja verk
eftir hann. Og Ólafur Arnalds, sem
vann nýlega BAFTA-verðlaunin, var
að spila með okkur á Airwaves. Sam-
vinnu við íslenska listamenn, á borð
við þau og ýmsa fleiri ónefnda, þarf
að efla og auka.“
Spennandi tilraunaverkefni
Hvernig er aðsókn að Sinfóníu-
tónleikum?
„Aðsóknin er frábær. Við eigum
ákaflega tryggan áheyrendahóp sem
hefur margfaldast við flutninginn í
Hörpu. Ég hef mikinn áhuga á að ná
beinu sambandi við áheyrendur og
hlusta vel á þeirra skoðanir. Við
stefnum á að verða mun virkari á
samfélagsmiðlum en verið hefur og
styrkja okkur í hinum rafræna heimi
og viljum byggja upp gagnvirkt sam-
band við áheyrendur. Við sem störf-
um í Sinfóníunni erum hér í umboði
áheyrenda okkar og þjóðarinnar allr-
ar.“
Spurt hefur verið hvort lítil þjóð
hafi efni á að reka sinfóníuhljómsveit.
Þér finnst væntanlega að við höfum
efni á því.
„Sinfónían er lýðveldisbarn, stofn-
uð af miklum metnaði á fyrstu árum
sjálfstæðrar þjóðar. Gleymum því
ekki. Ef við höfðum efni á henni á erf-
iðum tímum 1950 ættum við að hafa
það í dag, en ég veit að þetta er engan
veginn sjálfsagt mál. Við Íslendingar
erum fámenn þjóð sem á ótrúlega
góða sinfóníuhljómsveit. Kannski bú-
um við í dag við meiri andlega fátækt
en við gerðum þá. Hvaða foreldri hef-
ur til dæmis ekki áhyggjur af tölvu-
notkun og sjónvarpsglápi barnanna
sinna? Við viljum gefa börnunum
okkar tækifæri til að eiga ríkt líf, ekki
bara í peningum talið heldur í and-
legum verðmætum. Einmitt þess
vegna er fræðsluhlutverkið ákaflega
mikilvægt í starfsemi Sinfóníu-
hljómsveitarinnar.
Síðan ég kom til starfa hjá hljóm-
sveitinni sem tónleikastjóri árið 2007
hef ég unnið markvisst að því innan
stofunarinnar að efla fræðslustarfið.
Það sem ég er einna stoltust af á ferl-
inum er stofnun Ungsveitar Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands þar sem tónlist-
arnemar fá tækifæri til að vinna með
frábærum hljómsveitarstjórum undir
leiðsögn hljóðfæraleikara úr Sinfón-
íuhljómsveitinni.
Nú erum við að undirbúa annað
mjög spennandi tilraunaverkefni sem
ég hlakka til að sjá hvernig þróast.
Hljómsveitin mun gerast nokkurs
konar lærimeistari eða mentor Skóla-
hljómsveitar Árbæjar og Breiðholts
og vinna náið með þeim yfir næsta
skólaár. Við fáum krakkana í heim-
sókn til okkar til að kynnast þeim og
svo fáum við að heimsækja þau á æf-
ingar. Þau koma svo fram á jóla-
tónleikunum okkar og væntanlega
vinnum við saman að tónleikum í
Hörpu um vorið.
Með þessu viljum við styðja við það
frábæra starf sem unnið er í skóla-
hljómsveitunum og leggja okkar lóð á
vogarskálarnar í tónlistarkennslu.“
Nánast í trúboði
Arna er lærður flautuleikari og lék
um tíma með Sinfóníunni. „Flautan
hefur fylgt mér síðan ég var níu ára,“
segir hún. „Ég lærði í tónlistar-
háskólum í Bandaríkjunum og Bret-
landi og starfaði sem flautuleikari í
fimmtán ár, bæði á Englandi og hér
heima, með Sinfóníuhljómsveitinni í
fjögur ár.“ En hvernig er fyrir hana
sem fyrrverandi flautuleikara
Sinfóníuhljómsveitarinnar að vera nú
framkvæmdastjóri hennar?
„Mér finnst það í raun ekki breyta
miklu. Þetta eru bara ólík hlutverk.
Og ég geri mér far um að viðhalda
vinnugleði þótt fengist sé við verkefni
sem oft á tíðum eru erfið og krefj-
andi. Þarna eru vinir mínir, kennarar
og leiðbeinendur og jafnvel nem-
endur mínir. Ég reyni að leiða þenn-
an hóp og það er gaman. Við erum til-
finninganæmt og gagnrýnið fólk, það
er ekki alltaf logn hjá listamönnum,
en mestu skiptir að ná listrænum
markmiðum og vera í stöðugri snert-
ingu við nýja tíma.
Fyrir mér er tónlistin aðalatriðið.
Stundum finnst mér ég nánast vera í
trúboði. Ég trúi svo sterkt á tónlist-
ina og það afl sem í henni býr. Tón-
listin talar beint til tilfinninganna og
hjálpar fólki að komast í samband við
sjálft sig. Hún hjálpar okkur að finna
til og ég vil skapa sem flestum um-
gjörð og færi á að upplifa og heyra
stórkostlegustu tónverk mannsand-
ans, eins og til dæmis 3. sinfóníu
Mahlers, sem hann sagði sjálfur að
innihéldi allan heiminn. Það er mín
ástríða.“
Morgunblaðið/Golli