Morgunblaðið - 05.05.2014, Síða 36

Morgunblaðið - 05.05.2014, Síða 36
MÁNUDAGUR 5. MAÍ 125. DAGUR ÁRSINS 2014 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Langlífustu tvíburar Íslandssögunnar 2. „Og nú er hún dáin“ 3. Hvolpur féll ofan í holu og drukknaði 4. Sendir henni 15 sms á dag »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Sýningin Önnur lykt/Un autre Parf- um verður opnuð í Verksmiðjunni á Hjalteyri í dag klukkan 17.00. Hún er afrakstur vikulangrar starfsdvalar í Verksmiðjunni og mikilvægur áfangi listasmiðjunnar Delta Total. Þátttak- endur í smiðjunni eru nemar og kenn- arar í listaskólum í Frakklandi og Myndlistaskólanum á Akureyri. Önnur lykt í Verk- smiðjunni á Hjalteyri  Rósalind Gísla- dóttir messósópr- an kemur fram á hádegistónleikum í Hafnarborg ásamt Antoníu Hevesi píanóleik- ara á morgun, þriðjudaginn 6. maí, klukkan 12. Yfirskrift tónleikanna er Ástir og óvissa og á efnisskránni eru aríur eft- ir Bizet, Mascagni og Verdi. Rósalind syngur á hádegistónleikum  Borgarleikhúsið hefur ráðið Hrafn- hildi Hagalín Guðmundsdóttur og Hlyn Pál Pálsson sem nýja leiklistar- ráðunauta. Hrafnhildur á m.a. að hlúa að íslenskum leikskáldum, sem starfa fyrir leikhúsið, og annast verkefni sem varða nýsköpun, þýðingar og leik- gerðir. Hlynur á m.a. að sitja í verk- efnavalsnefnd og starfa sem dramatúrg. Ráðunautar ráðnir í Borgarleikhúsið Á þriðjudag Austan 8-13 m/s. Skýjað með köflum á Norður- og Vesturlandi, annars rigning, einkum suðaustanlands. Hiti frá 5 stigum með austurströndinni, upp í 15 stig vestantil. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt 3-8 m/s og bjart með köfl- um, en 8-13 m/s undir kvöld og fer að rigna sunnan- og aust- anlands. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast um landið vestanvert. VEÐUR „Auðvitað er það alltaf leið- inlegt að segja nei. En plan- ið var bara að byrja tímabil- ið aðeins seinna og þess vegna passaði þetta mót ekki nógu vel fyrir mig að þessu sinni,“ sagði Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastari sem hafnaði boði á Dem- antamótið í Doha í Katar sem fram fer á föstudag. Hún vonast til að fá boð á mótin í Róm og New York síðar í sumar. » 1 Hafnaði boði á Demantamót Á eftir að muna lengi eftir þessari leiktíð „Það er frábær tilfinning að hafa end- að markahæstur í deildinni eftir langt og skemmtilegt tímabil, sem ég á eft- ir að muna eftir lengi,“ sagði Alfreð Finnbogason sem varð markakóngur hollensku úr- valsdeild- arinnar í knatt- spyrnu með 29 mörk. Hann er á förum frá Heeren- veen. » 11 „Ég hef trú á því að sú staðreynd að Haukar unnu alla þrjá leiki liðanna í deildinni eigi eftir að spila svolítið með Hafnarfjarðarliðinu,“ sagði Guð- laugur Arnarsson, þjálfari Fram, fyrir úrslitaeinvígi Hauka og ÍBV í hand- knattleik karla sem hefst í kvöld á Ásvöllum. Hann útilokar hins vegar ekki að ævintýri Eyjamanna geti haldið áfram. »12 Heldur ævintýri ÍBV áfram í úrslitunum? ÍÞRÓTTIR | 12 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Boltinn er farinn að rúlla á knatt- spyrnuvöllum landsins og spark- kverúlantar farnir að spá í spilin. En þó að karlaboltinn í meistaraflokki njóti mestrar athygli er einnig heil- mikið um að vera í yngri flokkunum, eins og sást á því að um helgina voru samhliða tvö knattspyrnumót, Voda- fone-mótið, sem Víkingur stóð fyrir í ellefta sinn fyrir 7. flokk, og Stjörnu- mót TM, sem Stjarnan í Garðabæ hélt fyrir 5., 6. og 7. flokk. Mótin eru haldin fyrir bæði kyn, en þannig hittist á í gær að á báðum stöðum voru kvennaflokkar að spila. Voru því eflaust margar af framtíðar landsliðskonum Íslands á ferðinni í gær á Víkingsvelli og Stjörnuvelli. Valgeir Sigurðsson, formaður barna- og unglingaráðs Stjörn- unnar, segir að 2.200 ungir iðkendur hafi sótt mótið, sem haldið sé yfir tvær helgar. „Það eru gríðarlega margir foreldrar sem koma að fram- kvæmdinni og skipulagningunni,“ segir Valgeir, en einnig komi eldri leikmenn Stjörnunnar að dómgæslu. Mótið sé því samvinnuverkefni af bestu gerð, sem sýni gróskuna í yngri flokkunum. Valgeir segir að kvennaknattspyrna hafi verið í örum vexti síðustu árin og að mót af þessu tagi styðji við þann vöxt. Þórhallur Víkingsson, formaður barna- og unglingaráðs Víkings, tek- ur í sama streng. Mótið hafi verið haldið í ellefu ár, og stelpur hafi komið inn í það fyrir nokkrum árum. Hann segir að mikil gróska sé hjá Víkingum í kvennaboltanum og svip- að gildi um önnur félög. Kvenna- landsliðið spili þar stóran þátt. „Með aukinni velgengni hefur umfjöllun aukist og það hleypti þessu af stað, en svo hafa félögin gripið boltann.“ Stelpurnar storma í stórsókn  Mikil gróska í yngri flokkum kvenna  Fjölmennt á mótum um helgina Morgunblaðið/Golli Vodafone-mótið Þessi ákveðna Skagastúlka var einungis ein af um níu hundruð þátttakendum á Vodafone-móti Víkings um helgina. Morgunblaðið/Guðm. Sv. Hermannsson Stjörnur á Stjörnuvelli Fjöldi stúlkna tók sömuleiðis þátt í Stjörnumóti TM í gær, en um 2.200 manns af báðum kynjum kepptu fyrir sitt lið á mótinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.