Morgunblaðið - 12.07.2014, Side 1
L A U G A R D A G U R 1 2. J Ú L Í 2 0 1 4
Stofnað 1913 162. tölublað 102. árgangur
ÉG ER
MAMMA
ALLRA HESTA
FLAKKAR UM HEIMINN
OG BLOGGAR
ALLI MÖLLER KVIKMYNDAR 10JÓNÍNA Í TOPPHESTUM 19
Fjölskyldulíf hjónanna Ernu Töns-
berg og Nicks Candy er harla ólíkt
því sem flestir eiga að venjast. Hún
er íslensk, hann fæddur á Írlandi en
uppalinn í Ástralíu. Þau kynntust á
heimssýningunni í Japan árið 2005
og eiga nú fjögur börn, hafa flakkað
á milli Japans, Íslands og Ástralíu
síðan þau kynntust en eru nú búsett
hérlendis, enda mikið mál að ferðast
á milli landa með fjögur ung börn.
Það fengu þau að reyna þegar þau
heimsóttu fjölskyldu Nicks úti í
Ástralíu um síðustu jól. Erna er við-
skiptafræðingur og stýrir rekstrar-
námi fyrir hönnuði í Háskólanum í
Reykjavík. Nick er menntaður leik-
ari en starfar nú með Sirkus Íslands,
þar sem hann iðkar meðal annars
loftfimleika af mikilli list.
Sunnudagsblað Morgunblaðsins
ræddi ítarlega við hjónin um sirkus-
lífið, listina og ástina, sem greinilega
á sér engin landamæri.
Sirkuslífið og ást án
allra landamæra
Sirkus og viðskiptafræði í eina sæng
Morgunblaðið/Eggert
Sirkusfjölskylda Erna Tönsberg og Nick Candy ásamt börnunum fjórum.
Norrænt þjóðdansa- og þjóðlagamót barna og unglinga hefur staðið yfir
síðustu daga. Mótið er haldið þriðja hvert ár á Norðurlöndum og er nú
haldið í annað sinn á Íslandi. Um 950 þátttakendur eru á mótinu, að sögn
Elínar Svövu Elíasdóttur, þjóðdansakennara barna og unglinga. „Dansinn
og tónlistin er þeirra tungumál,“ segir hún, en þátttakendur koma frá Ís-
landi, Danmörku, Finnlandi, Noregi, Færeyjum, Grænlandi og Svíþjóð.
Stíga þjóðlegan dans á þjóðdansa- og þjóðlagamóti
Morgunblaðið/Þórður
Nordisk barnlek, norrænu þjóðdansa- og þjóðlagamóti barna og unglinga, lýkur í dag
Bjarni Bene-
diktsson fjár-
málaráðherra
segir spá Al-
þjóðagjaldeyr-
issjóðsins um
halla á fjár-
lögum næsta og
þarnæsta ár
engu breyta um
áform hans og
ríkisstjórnar-
innar. „Við ætlum að leggja fram
hallalaust fjárlagafrumvarp í
haust,“ segir fjármálaráðherra í
samtali við Morgunblaðið.
Ráðherra segir að fjölgun
starfa og aukinn hagvöxtur vinni
með stjórnvöldum í þeim áform-
um.
Þá sé verðbólga hér í sögulegu
lágmarki miðað við síðustu tíu ár.
Lykilatriði sé að ríkissjóður efni
ekki til frekari skuldasöfnunar og
að í gangi séu viðvarandi aðhalds-
aðgerðir. agnes@mbl.is »6, 20
Stefnir að halla-
lausum fjárlögum
Bjarni
Benediktsson
Óstöðugt loft og lægðir sem
sveima yfir landinu leiða til þess að
gera má ráð fyrir rigningu víða um
land næstu daga. Þetta segir Einar
Sveinbjörnsson veðurfræðingur
sem býst við votviðri sunnanlands
og vestan jafnframt því sem hann
telur að skúrir verði norðanlands.
Hundadagar ganga í garð á
morgun, 13. júlí. Er trú margra sú
að veðrátta þann dag haldist hin
sama þaðan í frá fram í áliðinn
ágúst. Hvort sú er raunin er óvíst,
en rigning að undanförnu hefur þó
gert strik í reikning bænda víða og
heyskapur gengið misjafnlega.
Fólk í ferðaþjónustu hefur sömu
sögu að segja. sbs@mbl.is »18
Rigningarspá í upp-
hafi hundadaganna
Búskapur Heyjað í kapp við rigninguna.
Sigurður Erl-
ingsson, forstjóri
Íbúðalánasjóðs,
segir tvær ástæð-
ur fyrir því að
einstaklingum á
vanskilaskrá sé
neitað um leigu-
húsnæði hjá ÍLS.
„Í fyrsta lagi er
það ekki hlut-
verk Íbúðalánasjóðs að leysa fé-
lagslegan vanda … Í öðru lagi höf-
um við reynt að teygja okkur eins
langt og við getum með því að
leigja fólki með tiltekna gerð af
vanskilum.“ »19
Ekki ætlað að leysa
félagslegan vanda
Sigurður Erlingsson
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Raungengi krónunnar mun halda
áfram að styrkjast á næstunni og
fyrir vikið eykst kaupmáttur al-
mennings hvað varðar erlendar
vörur. Styrkingin mun gerast hægt
og sígandi.
Þetta er mat sérfræðinga á fjár-
málamarkaði sem spáðu um gengis-
horfur fyrir Morgunblaðið.
Regína Bjarnadóttir, forstöðu-
maður greiningardeildar Arion
banka, telur raungengið geta styrkst
um 5-10%. Það sé nú um 25% hærra
en þegar botninum var náð 2009.
Már Mixa fjármálafræðingur telur
skuldabréfaútboð ríkisstjórnarinnar
í evrum í sumar batamerki. Ágætar
líkur séu á að hægt verði að endur-
fjármagna erlendar skuldir. Það
ásamt hagvexti styrki gengið.
Ingólfur Bender, forstöðumaður
Greiningar Íslandsbanka, telur að
raungengið muni styrkjast ef spár
um hagvöxt rætast. Sú ákvörðun
Seðlabankans að auka reglubundin,
vikuleg kaup á gjaldeyri, úr 3 millj-
ónum evra í 6, renni frekari stoðum
undir að bankinn muni nýta sér nettó
gjaldeyrisinnflæði á næstunni til að
styrkja gjaldeyrisforðann. Áhrif
þessa á gengið verði líklega lítil.
MRaungengið »12
Gengi krónu á uppleið
Kaupmáttur eykst
» Raungengi er annað en
skráð nafngengi.
» Styrkist raungengið eykst
kaupmáttur hvað varðar er-
lendar vörur.
» Það er líklegt til þess að
örva einkaneyslu.
Sérfræðingar telja útlit fyrir að raungengi krónu haldi áfram að styrkjast
Skuldabréfaútboð ríkisstjórnarinnar eykur líkur á endurfjármögnun skulda