Morgunblaðið - 12.07.2014, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Þau Julian Burbos frá Argentínu
og Patrizia Angela Sanmann, sem
er hálfur Þjóðverji og hálfur Ítali,
hlakka mikið til þess að horfa á
fótboltalandslið sín spila úrslitaleik
HM í knattspyrnu á sunnudaginn.
„Ég held að hið ótrúlega gerist
og Argentína standi uppi sem sig-
urvegari. Það getur allt gerst í fót-
bolta,“ segir Julian en hann telur
Þjóðverja vera sigurstranglegri á
sunnudaginn. Julian hefur búið á
Íslandi í fimm ár ásamt eiginkonu
sinni frá Ekvador og syni þeirra,
Elias. Julian, sem er sjávarlíffræð-
ingur að mennt og starfar hjá Haf-
rannsóknastofnun, býst við að
mjótt verði á munum á morgun.
„Ef við vinnum verður það 1-0
eða 2-1. Við höfum sterka
vörn og ef við vinnum verð-
ur það ekki með miklum
mun,“ segir Julian.
Patrizia starfar sem leið-
sögumaður á hvalaskoð-
unarskipinu Andreu og hef-
ur búið á Íslandi í sex ár
ásamt íslenskum manni sín-
um. Þau eiga tveggja mánaða
gamla dóttur. Hún vonar að
leikurinn endi ekki eins og á
móti Brasilíu heldur verði
spennandi allan tímann.
„Mér finnst mun
Ingileif Friðriksdóttir
Björn Már Ólafsson
Bráðabirgðasamningar hafa náðst
milli Sjúkratrygginga Íslands (SÍ)
og Slökkviliðs höfuðborgarsvæð-
isins (SHS) um sjúkraflutninga á
höfuðborgarsvæðinu. Stjórn SHS
samþykkti samninginn síðdegis í
gær, en Kristján Þór Júlíusson heil-
brigðisráðherra hafði áður staðfest
hann fyrir sitt leyti. Samningurinn
er gerður til níu mánaða og gildir
frá 1. júlí 2014 til og með 31. mars
2015. Stefna samningsaðilar að
gerð langtímasamnings með gild-
istöku 1. apríl 2015. Samningar um
sjúkraflutninga á höfuðborgar-
svæðinu runnu út í ársbyrjun 2012
og hefur SHS sinnt þessari þjónustu
án samnings síðan.
„Það er ánægjulegt að samn-
ingur sé kominn á, og gott að við
þurfum ekki lengur að vera með
þessa öryggisþjónustu samnings-
lausa í langan tíma,“ sagði Kristján
Þór í samtali við mbl.is í gær.
Kristján Þór segir samninginn
vera gerðan á grundvelli þeirra
fjárheimilda sem hann hafi úr að
spila á þessu ári.
„Síðan erum við sammála um það
að vinna að gerð langtímasamnings
um sjúkraflutninga á þessu svæði
og það verður það næsta sem við
gerum.“
Birgir Finnsson varaslökkvi-
liðsstjóri segir gott að óvissu sé
eytt. „Við höfum verið samnings-
laus í tvö og hálft ár og mikil óvissa
hefur ríkt um þjónustuna. Nú er bú-
ið að koma henni frá næstu 9 mán-
uðina og vonandi tekst að gera
langtímasamninga.“ Með langtíma-
samningum vonast stjórn SHS eftir
því að fjölgað verði um eina starfs-
stöð. „Við leggjum mikla áherslu á
það að komið verði á starfsstöð í
byggingu sem við erum að byggja á
Skarhólabraut í Mosfellsbæ. Þetta
hefði mikilvæg áhrif á viðbragðs-
tímann á höfuðborgarsvæðinu.“
Loks samið um
sjúkraflutninga
Bráðabirgðasamningar hafa náðst
Síðustu samningar runnu út 2012
Morgunblaðið/Kristinn
Samningar Stjórn SHS leggur
áherslu á fjölgun starfsstöðva.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Skipulagsyfirvöld í Reykjavík hafa
til samþykktar útlit fyrirhugaðs hót-
els við Hverfisgötu 103 og er stefnt
að því að hefja framkvæmdir við
byggingu þess eftir verslunar-
mannahelgi.
Hótelið verður hundrað herbergja
og hluti af keðjunni Keahótelum.
Eins og Morgunblaðið hefur sagt frá
var það niðurstaða umhverfis- og
skipulagsráðs Reykjavíkurborgar að
byggingin stæðist ekki kröfur um út-
lit og yfirbragð og tæki ekki mið af
sérkennum svæðisins í kring. Var
verktaka því gert að gera breytingar
á útliti hússins. Hótelið hefur nú ver-
ið endurhannað og birtast hér mynd-
ir af endanlegum teikningum í fyrsta
sinn opinberlega. Skipulagsráð hef-
ur samþykkt endanlegt útlit hótels-
ins en á hins vegar eftir að sam-
þykkja einstök atriði vegna
byggingarinnar. Sigurður Andrés-
sson, eigandi SA verks ehf., vonast
eftir endanlegri afgreiðslu bygging-
arfulltrúa á þriðjudaginn kemur.
„Útlínur hússins hafa ekki tekið
breytingum. Þær eru enn í samræmi
við deiliskipulagið. Skipulagsráð
vildi hafa bygginguna í anda eldri
húsa og hefur meðal annars glugg-
um nú verið breytt til að húsið sé í
eldri stíl,“ segir Sigurður.
Sigurður segir reiknað með að 35-
40 manns muni að meðaltali koma að
byggingu hótelsins og miða áætlanir
við að framkvæmdum ljúkí í maí eða
júní á næsta ári. Framkvæmdatím-
inn verður því stuttur, aðeins tíu eða
ellefu mánuðir.
Spurður hvort það sé Íslandsmet
segist Sigurður ekki telja að svo sé.
Áður hafi verið byggt hratt á Íslandi.
Hótelið verður byggt úr forsteyptum
einingum frá Loftorku og hraðar það
framkvæmdum. Bílakjallari verður
undir hótelinu með um 30 stæðum. Í
inngarði til vesturs verður garður
fyrir hótelgesti og viðskiptavini veit-
ingastaðar sem verður á jarðhæð.
Hulunni svipt af borgarhóteli
Framkvæmdir við nýtt hótel á Hverfisgötu 103 hefjast senn Breytingar gerðar á hönnun hótelsins
Skipulagsráð hafnaði gamla útlitinu Gluggum hefur verið breytt Stefnt að vígslu næsta sumar
Teikning/Opus/Birt með leyfi SA verks
Fyrir og eftir Nýtt útlit hótelsins er sýnt á vinstri myndinni (hvítt), það gamla á hægri myndinni (svart).
Á morgun, sunnudag, ætlar Julian að horfa á leikinn heima hjá sam-
landa sínum þar sem nokkrir Argentínumenn koma saman.
„Við munum annaðhvort fagna eða gráta saman,“ segir Julian bros-
andi, en vonast eftir að það verði hið fyrrnefnda. Hingað til hefur Julian
horft á HM með öðrum Argentínumönnum, ýmist á Stúdentakjall-
aranum eða í heimahúsum.
Patrizia segist ekki vera búin að ákveða hvar hún muni horfa á úrslita-
leikinn en hingað til hefur hún horft á leiki Þýskalands heima hjá sér.
„Það halda allir með Þýskalandi heima svo stemningin hefur verið góð
þar,“ segir Patrizia. Hún hélt með Þjóðverjum og Ítölum í upphafi móts og
er fegin því að Þýskaland hafi ekki dottið út úr keppninni líkt og Ítalir. „
Hefðu liðin mæst í keppninni hefði ég þó sennilega haldið með Ítalíu,“
segir Patrizia og hlær.
„Fagna eða gráta saman“
HVAR ÆTLA ÞAU AÐ HORFA Á ÚRSLITALEIKINN ?
skemmtilegra að horfa á spennandi
leik þar sem annað liðið er ekki bú-
ið að gera út um leikinn eftir hálf-
tíma,“ segir Patrizia. Hún segir tvö
góð lið vera að mætast á morgun.
„Argentínumenn voru flottir á
móti Hollendingum svo ég á von á
að þetta verði spennandi úrslita-
leikur. Ég spái því að leikurinn fari
3-1 fyrir Þýskaland,“ segir Pat-
rizia. Julian skýtur inn í að sama
hvernig leikurinn fari á morgun, þá
hafi Argentína náð betri árangri en
gestgjafar mótsins, Brasilía.
„Það er næstum því jafn gott og
að vinna HM. Brasilíumenn munu
ekki vera glaðir ef Argentína vinn-
ur mótið,“ segir Julian. Hann segir
tengslin milli Argentínu og Bras-
ilíu vera mjög sterk á flestum svið-
um en þegar komi að fótbolta sé
mikið hatur á milli nágrannaland-
anna.
„Ef við vinnum á morgun munu
þeir ábyggilega aldrei halda HM
aftur. Árið 1950 töpuðu Bras-
ilíumenn úrslitaleik á móti Úrúgvæ
á heimavelli. Það mun gera út af
við þá ef við vinnum bikarinn í
þeirra landi.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Úrslitaleikur Argentínumaðurinn Julian Burbos, sonur hans Elias Burbos og Patrizia Angela Sanmann.
Hlakka til úrslita-
leiksins í Brasilíu
Ósammála um úrslit en vonast bæði eftir spennandi leik
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
PARKETFLÍSAR
ekkert að pússa og lakka