Morgunblaðið - 12.07.2014, Page 6

Morgunblaðið - 12.07.2014, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014 Bæjarráð Hafn- arfjarðar fól í gær lögmanni að birta stefnu á hendur Stál- skipi, útgerð- arfyrirtæki í bænum. Stefnan er komin til vegna sölu fyr- irtækisins á tog- ara sínum til Rússlands, sem bæjarráð telur stangast á við lög. Þá telur bæj- arráð einnig að Stálskip hafi virt að vettugi lög þegar fyrirtækið seldi allan sinn kvóta til útgerða utan bæjarins. Lögin varða til- kynningarskyldu fyrirtækis þegar það hyggst selja hlutfallslega mik- ið magn kvóta úr sveitarfélagi en sveitarfélagið á þá forkaupsrétt á kvótanum. Hefur bæjarráð óskað eftir því að sjávarútvegsráðherra ógildi sölu kvótans úr bæjarfélaginu, því ekki hafi verið farið að lögum við söluna. Bæjarráð hefur áður gagn- rýnt að Fiskistofa hafi ekki til- kynnt um framsal aflaheimildanna. „Nú snýst málið um hvort lögin um forkaupsréttarákvæði sveitar- félaga séu einhvers virði og að þeim sé fylgt. Bæjarráð hefur ósk- að eftir viðbrögðum ráðherra og verður athyglisvert að sjá hvort hann beitir sér í málinu. Við bíð- um eftir ákvörðun hans,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs. sh@mbl.is Birta Stál- skipi stefnu Rósa Guðbjartsdóttir Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um þjófnað úr bíl við Landspítalann á Hringbraut í gær. Par sást brjótast inn í bílinn og meðal þess sem það tók var vega- bréf manns sem er á leiðinni til út- landa strax eftir helgi. Að sögn lög- reglu sér viðkomandi nú fram á að fara í utanlandsferðina án vega- bréfsins. Lögregla höfðar því til samvisku fólksins sem braust inn í bílinn, því að vegabréfið er því gagnslaust en mikið er í húfi fyrir manninn að fá það í hendur. Vegabréfi stolið rétt fyrir utanlandsferð Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Þetta er búið að vera heilmikil há- tíð og fjölmargir sáu sér fært að taka þátt í henni með okkur,“ segir Samúel Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri heildsölu- og rekstrarvörusviðs hjá Rekstrar- landi, en á einungis fimm dögum tókst að finna nýtt húsnæði og koma verslun Rekstrarlands í stand. Eldri verslun fyrirtækisins varð eldi að bráð í bruna í Skeifunni og er nýja verslunin til húsa að Mörkinni 4. Til að halda upp á opn- unina var starfsmönnum þeirra fyr- irtækja sem urðu illa úti í brun- anum boðið í grill. Aðspurður segir Samúel ljóst að allir þeir sem að verkinu komu hafi unnið mikið afrek. „Allir sem komu að þessu mega vera mjög stoltir og á það við um starfsfólk okkar, birgja, þjónustuaðila og alla þá sem hafa hjálpað okkur. Í raun hafa allir verið boðnir og búnir að gera allt til að þetta gæti gengið upp,“ segir hann. Í fermetrum talið er hið nýja hús- næði Rekstrarlands svipað að stærð og það sem eyðilagðist í brunanum. Að sögn Samúels er verslunarrýmið nokkuð stærra en hið gamla en lagerhlutinn er hins vegar heldur minni. „En þetta er stærð og stað- setning sem hentar okkur vel.“ Fönn er hvergi á förum Ari Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri þvottahússins Fann- ar, segir í tilkynningu að þrátt fyrir áfallið sem Fönn hafi orðið fyrir í brunanum hafi verið ákveðið að halda rekstri áfram. Hafa þegar verið gerðar ráðstafanir sem gera fyrirtækinu kleift að þjónusta við- skiptavini sína áfram. Vill Ari sér- staklega koma á framfæri þökkum til þeirra slökkviliðsmanna sem lögðu sig í hættu við að bjarga verð- mætum. „Sérstaklega var það mikil upplifun fyrir okkur að sjá í návígi hugrekkið sem slökkviliðsmenn sýndu í viðureigninni við eldhafið,“ er haft eftir Ara í tilkynningu. „Allir sem komu að þessu mega vera mjög stoltir “  Hugrekki slökkviliðsmanna er mönnum ofarlega í huga Morgunblaðið/Eggert Opið Fjölmargir lögðu leið sína í nýja verslun Rekstrarlands í Mörkinni. VIÐTAL Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra segir áform sín og ríkis- stjórnarinnar um að leggja fram hallalaust fjárlagafrumvarp í haust, fyrir árið 2015, í engu hafa breyst þrátt fyrir þá spá Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins að halli á fjárlögum næsta árs geti orðið um 0,5% og spá AGS fyrir fjárlög ársins 2016 sé sú að hall- inn geti orðið 1,3% af vergri lands- framleiðslu. Réttum megin við núllið „Það hefur ekkert breyst í þeim efnum. Ég stefni að því að leggja fram hallalaus fjárlög í haust, fyrir árið 2015, rétt eins og fjárlagafrumvarpið fyrir árið í ár var án halla, og nú stefn- ir í að jöfnuður ríkissjóðs fyrir árið í ár verði jákvæður um tæp tvö prósent af vergri landsframleiðslu. Við vinnum að sjálfsögðu áfram að því að halda ríkissjóði áfram réttum megin við núllið, til framtíðar,“ sagði Bjarni í samtali við Morgunblaðið í gær. Störfum fjölgað um yfir 4.000 - Nú segir AGS í spá sinni að ákveðnar tekjur falli til á þessu ári sem muni ekki falla til á því næsta og þarnæsta. Hvernig ætlið þið þá að ná þessum markmiðum um hallalaus fjárlög? „Það er vissulega eitthvað til í þeim hluta spár AGS og við höfum allan tímann gert okkur grein fyrir því. En ég bendi á að það eru aðrir hlutir sem eru að vinna með okkur. Hér hefur verið vaxandi hagvöxtur og fjölgun starfa í landinu. Störfum hefur fjölgað hér á landi um yfir fjögur þúsund frá því árið 2013 og það munar nú um minna, ekki satt? Með aðhaldssemi í ríkisrekstrinum er raunhæft að halda ríkis- sjóði áfram hallalausum og koma þannig í veg fyrir frek- ari lántökur ríkissjóðs,“ sagði fjármálaráðherra. Bjarni var spurður með hvaða hætti myndi koma til frekari niður- skurðar hjá hinu opinbera í fjárlaga- frumvarpi fyrir næsta ár: „Við erum með viðvarandi aðhalds- kröfu í ríkisrekstrinum, til þess að tryggja að ávallt sé verið að forgangs- raða að nýju og gæta að því að fjár- munir hins opinbera nýtist sem best. Þrátt fyrir það sjáum við fyrir okk- ur að geta bætt í á einstaka sviðum en ég verð að bíða með það fram á haust- ið að útlista hvernig við ætlum að láta þær áherslur birtast. Það á heilmikil vinna eftir að fara fram hér í fjármála- ráðuneytinu og öðrum ráðuneytum ríkisstjórnarinnar áður en hægt verð- ur að upplýsa í smáatriðum hvernig fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2015 mun líta út,“ sagði Bjarni. „Auðvitað er þetta krefjandi verk- efni, því hefur enginn mótmælt. En við teljum að þetta sé mögulegt og það sé afar mikilvægt að koma í veg fyrir frekari skuldasöfnun hjá ríkinu og reyndar að það geti skipt sköpum varðandi þann stöðugleika og aga sem þarf að innleiða í opinber fjármál. Það er algert lykilatriði að slá því ekki á frest og forsenda þess að við vinnum okkur með varanlegum hætti út úr vandanum,“ sagði Bjarni Benedikts- son fjármálaráðherra. Hallalaus fjárlög stefnan  Fjármálaráðherra segir spá AGS um halla á fjárlögum næsta og þarnæsta árs engu breyta um stefnu ríkisstjórnarinnar  „Aðrir hlutir eru að vinna með okkur“ Morgunblaðið/Styrmir Kári Fjölgun starfa Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra bendir á að mikil fjölgun starfa frá 2013, eða yfir fjögur þús- und störf, vinni með ríkissjóði. Þá bendir ráðherrann á að það sama eigi við um aukinn hagvöxt hér á landi. Í fjárlagafrumvarpinu sem Bjarni Benediktsson lagði fram á Alþingi þann 1. október 2013 fyrir fjárlagaárið í ár var gert ráð fyrir því að 458,7 milljóna króna tekjuafgangur yrði á ríkissjóði í ár. Nú er eins og áður er komið fram gert ráð fyrir að tekjuafgangur verði sem nemur tæplega 2% af vergri landsframleiðslu. Miðað við landsframleiðslu síðasta árs gæti afgangurinn orðið um 3,7 milljarðar króna. Sömuleiðis er gert ráð fyrir að hagvöxtur á þessu ári verði tæplega 3,3%. Annað jákvætt teikn er að verð- bólga um þessar mundir er hin lægsta sem mælst hef- ur í 10 ár, samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Hagstof- unnar, sem gefin var út 4. júlí sl. Spáð er 2,5% verðbólgu á þessu ári og 3,4% á næsta ári. Meiri afgangur en áætlað var JÁKVÆÐ TEIKN Á LOFTI Í EFNAHAGSLÍFINU Bjarni Benediktsson Haust 1 17. - 27. september Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Glæsileg ferð til Kanada þar sem þrjár stórborgir Ottawa, Montreal og Toronto, verða heimsóttar. Njótum þess að aka um blómlegar sveitir og þorp, kynnumst sögu landnemanna og förum á söfn. Siglum á hinu fræga St. Lawrance fljóti og skoðum hina mögnuðu Niagarafossa. Verð: 289.800 kr. á mann í tvíbýli. Sp ör eh f. Fararstjóri: Jónas Þór Niagarafossarnir í Kanada

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.