Morgunblaðið - 12.07.2014, Side 10

Morgunblaðið - 12.07.2014, Side 10
Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014 - með dassi af spennu? Matur, morð, ást og ógnandi óvissa Fullkomin í fríið! VVVVV HEAT www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu Malín Brand malin@mbl.is Það er engum blöðum umþað að fletta að mun ódýr-ara var að ferðast umheiminn fyrir áratug en það er í dag. Eftir sem áður má halda kostnaði í lágmarki með því að ferðast létt og gista á farfugla- heimilum eða svipuðum gististöðum. Alli hefur þó ekki látið aukinn kostnað við ferðalög stöðva sig. Hann ferðast létt með það helsta í bakpoka og þar á meðal er kvik- myndatökuvélin, þrífóturinn og hljóðneminn. Svona hefur hann ferðast í um áratug. Hann kemur heim til Íslands á milli og vinnur bæði við að kvikmynda, ljósmynda og einstöku sinnum bregður hann sér út úr bænum sem leiðsögu- maður. Spurður hvort það sé ekki snúið að kvikmynda og klippa efnið til á þessum ferðalögum segir hann svo ekki vera. „Í fyrstu ferðinni minni árið 2004 til Suður-Ameríku hitti ég furðufugl sem í dag er vinur minn á Facebook. Hann var með fartölvu á ferðalaginu og ég spurði hann hvað hann væri eiginlega að gera með fartölvu í bakpoka- ferðalagi. Þá kom í ljós að hann var rithöfundur að skrifa bók og hafði góða afsökun fyrir farangrinum. Enn asnalegra þótti honum þó að ég skyldi vera með kvikmyndatökuvél á bakpokaferðalagi,“ segir Alli, sem ári síðar var kominn með fartölvuna með í farangurinn. Þá gat hann unnið efnið á ferðalaginu í stað þess að klára bloggið þegar heim var komið, eins og hann gerði eftir fyrstu ferðina. Til að byrja með var bloggið á íslensku en ekki voru allir sáttir við það svo hann skipti yfir í ensku. Eftirminnilegar langferðir Þegar menn eru lagðir af stað í langferð þýðir ekkert annað en að gefa sér góðan tíma og í fyrstu þremur ferðum Alla gaf hann sér fjóra mánuði í hverja ferð. „Eftir hrun fóru þær aðeins að styttast en á síðastliðnum árum hef ég getað ferðast í allt að sex mánuði sam- fleytt,“ segir hann, en á svo löngum tíma nær hann að mynda sér skoð- un á löndunum sem hann heimsækir og segir frá upplifuninni í víd- eóblogginu. Í fyrsta ferðalaginu heimsótti hann þrettán lönd í þrem- ur heimsálfum. Síðan þá hefur hann vídeóbloggað um tugi landa og hvert ferðalag er vissulega einstakt og eftirminnilegt. Hann hefur skoð- að rúm 30% af heiminum og segist ekki ætla að hætta flakkinu fyrr en hann er búinn með hundrað lönd í það minnsta, eða um 50% af heim- inum. Rótleysi er valmöguleiki Það er eitt og annað sem dreg- ur kjarkinn úr fólki þegar til stend- ur að kanna óravíddir hins óþekkta úti í hinum stóra heimi. Alli hefði farið fyrr af stað en raun bar vitni ef hann hefði ekki þurft að glíma við örlitla hræðslu. „Mig hafði dreymt um þetta síðan ég var átján ára en vandinn var sá að enskukunnátta mín var ekki nægilega góð svo ég þorði ekki að fara. En svo nátt- úrulega dreif ég bara í því að læra ensku og gat þá farið að ferðast,“ segir Alli, sem segir að það sem knýi hann áfram sé í raun réttri rót- leysi. „Ég vil ekki meina að rótleysi sé ættgengt eða eitthvað álíka. Margir krakkar segjast rótlausir af því að foreldrarnir drösluðu þeim út um allt. Ef svo er þá er ég með áunnið rótleysi. Þetta er valmögu- leiki hjá mér. Ég valdi á sínum tíma Vídeóbloggað í ára- tug um allan heim Kvikmyndagerðarmaðurinn Alfreð Möller, eða Alli Möller eins og hann er oftast kallaður, hefur verið á faraldsfæti í áratug. Hann hefur flakkað vítt og breitt um heiminn, kvikmyndað það sem fyrir augu ber og deilt því með áhugasömum á ver- aldarvefnum í vídeóbloggi sem hann hefur haldið úti lengi. Sýn hans á lífið og til- veruna er áhugaverð og margt sem kemur spánskt fyrir sjónir á ferðunum. Ljósmynd/Alli Möller Einstakt Taj Mahal á Indlandi er ein af fegurstu byggingum sem Alli Möller hefur séð. Kyrrðin er mikil á myndinni sem tekin var í ljósaskiptunum. Náttstaður Í Panama var eitt sinn ákveðið að sofa undir berum himni. Bak- pokinn góði þjónaði hlutverki kodda í þetta skiptið úti í vegarkanti. Á síðunni Traveltip hafa ferðalangar hvaðanæva sett inn góð ráð fyrir aðra ferðalanga. Hugmyndin er sú að ferðafólk geti sett inn alls kyns gagn- legar upplýsingar og ráð sem tengj- ast ýmsum áfangastöðum. Flokkað er niður eftir löndum og upplýsingarnar eru af ýmsum toga. Sem dæmi má nefna vel falin leyndarmál í verslun og mat, hverju má ekki missa af á merkilegum stöðum, hvað ber að var- ast, hvar óhætt er að drekka krana- vatn eða vatn beint úr ám og lækjum og síðast en ekki síst hvar er hag- kvæmt að gista. Vefurinn er einfaldur í notkun og tekur ört breytingum því upplýsing- arnar bætast stöðugt við þegar fólk vill deila einhverju með öðrum. Ann- að sem er sniðugt á síðunni er heim- skortið. Hver og einn getur hakað við þau lönd sem hann hefur heimsótt af lista undir kortinu og löndin litast um leið rauð á kortinu. Það kemur mörg- um á óvart hve víðförlir þeir reynast þegar öll ferðalögin um ævina eru tekin saman myndrænt. Vefsíðan www.traveltip.org Reuters Flakk Góð ráð má finna á vefnum. Prýðisráð ferðalanga Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.