Morgunblaðið - 12.07.2014, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.07.2014, Blaðsíða 11
Ljósmynd/Jóhann Smári Í vinnunni Á milli ferðalaga vinnur vídeóbloggarinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Alli hér á Íslandi. Hann er lunk- inn með steady cam og hefur gert mörg myndskeiðin og auglýsingarnar. Hér er hann ásamt hópi við íslenskan sæ. að vera rótlaus og ég er það í dag af því að ég valdi það. Fyrst ég valdi það er það ekki neikvætt að vera rótlaus,“ segir Alli, sem getur varla beðið eftir að komast af stað í næsta ferðalag, sem að öllum líkindum verður í haust. Flandrið er lífsstíll sem hentar sumum en ekki öllum. Alli er ekki fjölskyldumaður og þar af leiðandi er þetta mögulegt. Að sjá heiminn gegnum linsu Kvikmyndatökuvélin sem Alli ferðast með er ekki af smæstu gerð. Hún er alvöru græja og tekur að- eins í, en án hennar vill hann ekki vera. „Ég hef ljósmyndað í tuttugu ár en fyrir rúmum tíu árum síðan byrjaði ég að kvikmynda og langaði í raun alla tíð mun heldur að kvik- mynda en ljósmynda. Þegar ég eignaðist kvikmyndatökuvél sá ég að svona vildi ég safna heimildum og segja sögu,“ segir hann. Eins og hægt er að ímynda sér á Alli heil ósköp af myndefni frá þeim 64 löndum sem hann hefur heimsótt og allt myndefnið geymir hann vel og vandlega og nýtir í fleira en vídeóbloggið. „Nú er ég til dæmis að myndskreyta þessi ferða- lög mín og fræði fólk betur um stað- ina og úr verða þættir sem verðar sýndir á IS TV, nýrri sjónvarpsstöð sem byrjar með útsendingar bráð- um.“ Þættirnir heita Ferðast fyrir klínk og kaus Alli að byrja á Ind- landi, en þar var hann árið 2011 og heillaðist mjög af landi og þjóð. Hann segir að Indland sé eitt af þeim löndum sem marga langi til að heimsækja en leggi ekki í. „Ég vil helst sýna fólki lönd sem það fer ekki til. Á listanum mínum eru lönd á borð við Norður-Kóreu og Íran.“ Þau eru á meðal þeirra landa sem Alli á eftir. Hvíta-Rússland er þar á meðal og verði hann snemma á ferð- inni í haust getur vel hugsast að hann byrji á Rússlandi, fari því næst um Hvíta-Rússland, Úkraínu ef ástandið þar hefur batnað, þaðan yfir til Georgíu, Íran, jafnvel inn til Pakistan eða Dubai. Svona hljómar gróf áætlun hjá vídeóbloggaranum Alla Möller, sem hefur einsett sér á ferðalögunum að vera ekkert að skipuleggja of mikið heldur taka því sem að höndum ber og ákveða hvar hann gistir þegar hann kemur á staðinn. „Ég hef ætlað á einhverja ákveðna staði og svo skipti ég jafn- vel um skoðun og fer í þveröfuga átt,“ segir hann. Því er ljóst að ekki er nokkur leið að vita hverju þessi maður tekur upp á næst en hægt er að fylgjast með honum á Facebook-- síðunni Ferðast fyrir klínk og á vef- síðunni www.lifestyle.is MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014 www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu Um Útlaga:  Morgunblaðið Fréttablaðið Meistaraleg flétta með sárum undirtón, saga af styrk mannsandans andspænis kúgun. BYLTINGAR- ANDI! Á undanförnum árum hefur Alli Möller komið að gerð nokkurra heimildarmynda. Ein þeirra sem ekki er komin út er um æskuvin, Olofs Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, sem var myrtur árið 1986. Aðalpersóna myndarinnar er Svíi sem búsettur var á Græn- landi síðustu æviárin en þeir Palme ólust að hluta upp saman og voru bestu vinir, að sögn Alla. Síðar vann hann sem smiður fyr- ir forsætisráðuneytið og bauð Palme honum að komast skör of- ar í góða stöðu. „Það hugnaðist honum ekki og segir í myndinni að það vildi hann ekki því hann væri smiður og ætti ekkert erindi í stöðu hjá forsætisráðherranum út á vinskapinn. Hann hætti að vinna fyrir hann og fluttist til Grænlands.“ Myndin er nánast tilbúin og leitar Alli nú að ein- hverjum sem er góður í sænsku og samsetningu. Æskuvinur Olofs Palme HEIMILDARMYND Í BIÐ Textílfélagið fagnar fjörutíu ára af- mæli í ár og meðal annars af því tilefni verður vegleg sýning í Halldórskaffi, Brydebúð og Suður-Vík í Vík í Mýrdal til 10. ágúst. Félagskonur í Textílfélag- inu eru 75 talsins og sýna 19 af þeim list sína á þessum sýningum og opið er á stöðunum þremur alla daga frá klukkan 11-23. Textílfélagið er einnig með sýningu í Fífilbrekku í Eyjafjarð- arsveit og stendur hún í allt sumar. Af- mælisárið verður viðburðaríkt hjá fé- laginu sem mun einnig standa fyrir sýningu í SÍM-húsinu, Hafnarstræti 16 í Reykjavík í október og í Bláa húsinu á Siglufirði í júlí. Endilega … … skoðið textíllist Listakonur Þær Jóna Sigríður, Þóra Björk, Guðrún og Herdís eru í textíllist. Hugleiðsla Alli reynir að hugleiða og stunda jóga á ferðalögum sínum. Ef vel er að gáð sést hann hér í lótusstellingu á góðum stað í Abu Dhabi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.