Morgunblaðið - 12.07.2014, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014
KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR
FYRIR HANN OG HANA
Kynntu þér aðventuferðir á uu.is
Aðventuferðir
Sívinsælar ferðir á frábæru verði.
Tryggðu þér sæti tímanlega.
BERLIN 27.–30. nóv., 4.–7. des.
Verð frá86.500 KR.
MÜNCHEN 27.–30. nóv.
Verð frá 103.900 KR.
Verð eru á mann m.v. tvo fullorðna.
Úrval Útsýn er í Hlíðasmára 19, Kópavogi.
Sími 585 4000 www.uu.is
Ö
LL
V
E
R
Ð
E
R
U
B
IR
T
M
E
Ð
FY
R
IR
V
A
R
A
U
M
P
R
E
N
T
V
IL
LU
R
O
G
S
T
A
FA
B
R
E
N
G
L.
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Eyjafjörður
Þröstur Friðfinnsson hefur verið
ráðinn sveitarstjóri Grýtubakka-
hrepps frá 1. ágúst. Hann tekur við af
Guðnýju Sverrisdóttur sem gegnt
hafði starfinu í hvorki fleiri né færri
en 27 ár, lengur en nokkur starfandi
sveitarstjóri. Umsækjendur um
starfið voru 21.
Þröstur er frá Húsavík. Hann var
framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtæk-
isins Dögunar á Sauðárkróki síðast-
liðinn áratug en lét nýlega af störfum
þar. Áður var Þröstur útibússtjóri
Landsbanka Íslands í 15 ár, fyrst á
Kópaskeri en síðan á Sauðárkróki.
Pétur Ólafsson hefur verið ráð-
inn nýr hafnarstjóri Hafnasamlags
Norðurlands. Hörður Blöndal lætur
senn af störfum og Pétur tekur við af
honum 1. september. Pétur hefur
verið skrifstofu- og markaðsstjóri
Hafnasamlags Norðurlands í 16 ár.
Árleg Hríseyjarhátíð hófst í gær
og lýkur í dag. Þetta er fjölskyldu-
hátíð sem haldin hefur verið árlega
síðan 1997. Aðaldagskráin er í dag og
stendur frá hádegi og fram á kvöld. Á
kvöldvöku koma fram tónlistarmenn-
irnir Lára Sóley og Hjalti, Heimir
Ingimarsson og Ingó veðurguð.
Lokapunktur hátíðarinnar er síðan
varðeldur og brekkusöngur sem
Heimir Ingimarsson stjórnar.
Bæjarráð Akureyrar samþykkti í
vikunni að áfrýja til Hæstaréttar
tveimur dómum sem féllu í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra í júní, en þá
var Akureyrarbær dæmdur brotleg-
ur við uppsögn á tveimur fyrrverandi
slökkviliðsmönnum og bærinn jafn-
framt dæmdur til að greiða milljónir í
skaðabætur.
Það var niðurstaða dómsins að
Akureyrarbær hefði rift ráðningar-
samningum slökkviliðsmannanna fyr-
irvaralaust. Akureyrarkaupstaður
var dæmdur til að greiða þeim
skaðabætur, en samtals nam upp-
hæðin fimm milljónum króna. Auk
þess var bærinn dæmdur til að
greiða 2,1 milljón í málskostnað.
Hljómsveitin Todmobile gleður
Akureyringa og gesti þeirra um
helgina. Sveitin var með tónleika á
Græna hattinum í gærkvöldi og end-
urtekur leikinn í kvöld.
Mikill áhugi er á starfi sveitar-
stjóra í Eyjafjarðarsveit og ekki að
undra því það er góður staður. Um-
sóknir um starfið voru 56; 44 karlar
sóttu um og 12 konur. Umsóknar-
frestur rann út á mánudaginn og
nafnalistinn birtur eftir helgi.
Miðaldadagar á Gásum við
Eyjafjörð hafa fest sig í sessi og
verða haldnir um næstu helgi, 18. til
20. júlí. Fimmtudagskvöldið 17. júlí
má segja að forskot verði tekið á
sæluna; þá mun alþjóðlegur hópur
fornleifafræðinga kynna spennandi
rannsóknir um lífið á Gásum.
Dagskráin á svæðinu verður að
nokkru leyti með svipuðu sniði og
undanfarin ár, m.a. verða eldsmiðir
við vinnu. Boðið verður upp á leið-
sögn um minjasvæðið, leikarinn Elf-
ar Logi Hannesson leikur söguna
um fornmanninn Gísla Súrsson, skip
koma að landi á Gásum og flutt
verður örleikrit Helga Þórssonar
sem byggir á atburðum frá miðöld-
um og fólki sem komið hefur að Gás-
um.
Nú er bjart allan sólarhringinn
svo það kemur varla mjög að sök, en
Rarik hefur tilkynnt að rafmagns-
laust verði í Svarfaðardal að austan
á mánudaginn frá kl. 10.30 til 14.30.
Dagskrá haustsins í Hofi liggur
að miklu leyti fyrir og til margs að
hlakka. Í september halda Björgvin
Halldórsson og Bubbi Morthens
saman tónleika; Bó og Bubbi, og Ný-
dönsk treður upp. Í október verða
Led Zeppelin-heiðurstónleikar, en
fullt var út úr dyrum á tvennum slík-
um í Hörpu í mars, auk þess sem
Mannakorn heldur tónleika í tilefni
40 ára afmælis hljómsveitarinnar.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ungur nemur Þór vann KR 2:0 á Þórsvellinum í fyrrakvöld. Oft er fjörið ekki minna aftan við áhorfendastúkuna því
þar kemur ungviðið saman meðan á leik stendur, m.a. þessi Þórsari og KR-ingur, báðir með hárgreiðsluna á hreinu.
Sveitarstjórar og sveitahátíðir
Borgarráð felldi tillögu borgar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um
rýmkun á reglum um sölu
byggingarréttar á fundi sínum á
fimmtudag. Tillagan fól meðal
annars í sér að einstaklingum yrði
aftur boðið að fá 90% af kaupverði
byggingarréttar að láni til átta
ára og að 7% staðgreiðsluafsláttur
yrði veittur.
Þá felldi meirihluti borgarráðs
tillögu sjálfstæðismanna um að
stofnaður yrði vinnuhópur til að
rýna betur í þau svæði og skipu-
lag sem þeir segja að hafi sætt
mestri gagnrýni síðan aðal-
skipulag borgarinnar var sam-
þykkt, þar á meðal byggingar-
svæði við gömlu höfnina og
flugvöllinn í Vatnsmýri.
Tvær tillögur felldar í borgarráði
Fyrri eigendur
Húsasmiðjunnar
viðurkenna al-
varleg brot á
samkeppnis-
lögum með sátt
sem þeir hafa
gert við Sam-
keppniseftirlitið.
Í sáttinni felst
meðal annars að
þeir greiði 325
milljónir króna í sekt.
Málið varðaði ólögmætt samráð
Byko og Húsasmiðjunnar og brot
Húsasmiðjunnar og Steinullar gegn
ákvörðun samkeppnisráðs.
Á meðal þess sem fyrri eigendur
Húsasmiðjunnar viðurkenndu voru
regluleg samskipti við Byko um
verð, birgðastöðu o.fl. í því skyni að
hækka verð eða vinna gegn verð-
lækkunum á svonefndum grófum
byggingarvörum. Einnig að þeir
hefðu gert sameiginlega tilraun
með Byko til að fá Múrbúðina til
þess að taka þátt í samráðinu um
verð á grófvöru og að fylgjast með
aðgerðum Múrbúðarinnar á mark-
aði með Byko.
Viðurkenndu alvar-
leg brot á sam-
keppnislögum
Samráðið náði m.a.
til sölu á timbri.
Stofnuð hafa verið samtök um raf-
mynt og svonefnda blockchain-
tækni á Íslandi. Samtökin eru vett-
vangur fyrir áhugamenn um raf-
ræna mynt á Íslandi. Á stofn-
fundinum var kosið í stjórn og lög
félagsins sett.
Hilmar Jónsson, stjórnarmaður í
samtökunum, er bjartsýnn um
framtíð rafmynta. „Með stofnun
samtakanna er verið að sameina þá
sem vinna með rafmyntir á Íslandi
og blockchain-tæknina. Hingað til
hafa margir verið í sínu horni og
vonandi sameinar þetta framtak
stækkandi hóp áhugamanna um
rafmyntir. Samtökin munu starf-
rækja vefsíðu, halda fundi og koma
á legg samræðuvettvangi fyrir upp-
byggjandi umræðu, en við teljum
að rafmyntir séu til frambúðar.
Rafmyntir munu þróast mikið á
næstum árum. Þær verða notenda-
vænni og búast má við mun meiri
notkun.“
Samtök um rafræna
gjaldmiðla stofnuð