Morgunblaðið - 12.07.2014, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 12.07.2014, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014 Svissnesk hágæða hljómtæki Framúrskarandi hljómgæði Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Fimm íslenskar konur halda til Eng- lands í næstu viku og ætla þær að synda boðsund þaðan yfir Ermarsund til Frakklands og aftur til baka. Hópurinn, sem ber heitið Yfirlið, von- ast til að klára ferðalagið á undir 30 klukkustundum og munu þær skiptast á að synda eina klukkustund í senn, að sögn Sigrúnar Þuríðar Geirs- dóttur, einnar sundkvennana. Blað verður brotið í sögu íslensku sundíþróttarinnar með boðsundinu yfir Ermarsund, þar sem sundsveitin verður fyrsta íslenska sveitin til þess að synda Ermarsund fram og til baka að sögn Sigrúnar. Þá verður Sædís Rán Sveinsdóttir, einn meðlimur sundsveitarinnar, yngsti Íslending- urinn til að synda yfir Ermarsund, en hún er 21 árs gömul. Þær sem skipa Yfirlið ásamt þeim Sigrúnu og Sædísi eru Harpa Hrund Berndsen, Helga Sigurðardóttir og Corinna Hoffman. Sigrún segir sveit- ina hafa æft mikið fyrir sundið. „Við hittumst reglulega og syndum saman í klukkutíma. Um daginn þurftum við svo að vera tvær klukku- stundir í sjónum til að mega synda Ermarsundið,“ segir Sigrún. Hópur- inn þurfti að sýna fram á kuldaþol. „Vorum í tvo tíma í Nauthólsvíkinni og syntum á meðan. Ég verð að við- urkenna að þetta var erfitt. Manni er orðið kalt eftir 45-50 mínútur. Eftir það verður hausinn að standa sig,“ segir Sigrún. Yfir Ermarsund í annað sinn Sigrún er enginn nýgræðingur þegar kemur að því að synda yfir Ermarsund, en hún fór ásamt öðrum sundkonum í sundhópnum Sækúm yfir sundið í fyrra og var það í fyrsta sinn sem sundhópur eingöngu skip- aður konum synti yfir Ermarsund. Það tók Sækýrnar 19 klukkustund- ir og 32 mínútur að synda frá Eng- landi til Frakklands í fyrra og að sögn Sigrúnar er stefnt að því að synda fram og til baka á undir 30 klukku- stundum í ár. „Þetta er ævintýri og það er frá- bært að vera í sjónum,“ segir Sigrún og bætir við að það sé ótrúlega mikil tenging við náttúruna meðan á sundi standi, til að mynda hafi hún heyrt í mörgum hvölum undir sér þegar hún synti yfir sundið í fyrra. Yfirlið syndir til styrktar AHC- samtökunum. AHC er sjaldgæfur taugasjúkdómur sem einkennist af endurteknum, tímabundnum lömunarköstum sem yfirleitt ná til annarra líkamshliðarinnar í einu. „Það er ein hetja hér á Íslandi með þennan sjúkdóm og er það ung stúlka sem fer í þriðja bekk á næsta skóla- ári. Með sundinu langar okkur að safna fé til að finna lækningu á þess- um sjúkdómi,“ segir Sigrún. Hægt er að leggja málefninu lið; reikningur 0303-26-7207, kt: 0307725719. 30 klukkutíma sundferðalag Ljósmynd/Jóhannes Jónsson Yfirlið Fimm sundkonur sundhópsins Yfirlið ásamt liðstjórum, þeim Jóhannesi Jónssyni og Herði Valgarðssyni. Ljósmynd/Sigrún Þuríður Geirsdóttir Sundsprettur Sigrún Þuríður var meðlimur sundhópsins Sækýr sem synti yfir Ermarsund í fyrrasumar.  Synda yfir Ermarsund og til baka

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.