Morgunblaðið - 12.07.2014, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Sveiflur og óstöðugleiki í loftlögum
yfir landinu, eins og ríkjandi hefur
verið að undanförnu, leiðir til þess
að skúraleiðingar gætu orðið víða
um land á næstunni. Þetta segir Ein-
ar Sveinbjörnsson veðurfræðingur
um hvernig vindar blása og veðrátta
verður á næstunni. „Með lægðum og
lægðardrögum sem hér verða á
sveimi má segja að fremur vætu-
samt verði á næstunni, sunnan- og
vestanlands. Yfirleitt þýðir slíkt að
betra veður er nyrða, en vegna þess
hver sveiflan í loftlögunum er gætu
einnig orðið einhverjar skúrademur
norðanlands og eystra,“ segir Einar.
Þessa veðurspá er rétt að setja í
samhengi við að á morgun, 13. júlí,
hefjast hundadagar. Oft er því hald-
ið fram – og það er nánast þjóðtrú –
að ef rigni fyrsta dag þeirra haldist
sú veðrátta þá alla, þ.e. fram í áliðinn
ágúst. Aðrir segja að á hundadögum
snúist veðráttan. Hafi verið þurrt
snúist veðráttan, vætu fylgi þurrkur
og aftur öfugt. Bláköld vísindin
benda til annars nú.
Adrenalín í heyskap
Bændur og fólk í ferðaþjónustu
eru sjálfsagt þær stéttir sem mest
eiga undir því að veðrátta sé sæmi-
leg. Á Suðurlandi hefur heyskapur
gengið þokkalega. Í uppsveitum
Árnessýslu hafa þurrir dagar inni á
milli þeirra blautu gert gæfumuninn.
Í fyrri slætti, sem nú er víða lokið,
hafa þeir náð inn þurru heyi og eru
því sloppnir fyrir horn. Bændunum
þykir annars samanburðurinn við
síðasta sumar nokkuð hagstæður,
enda lá þá í rigningu dögum saman.
Það aftur leiddi til þess að hey voru
léleg og á útmánuðum fyrr á þessu
ári þurftu dýralæknar oft að sinna
kúm í sleni, sem rekja mátti til lélegs
fóðurs.
Um heyskap norðanlands er stöð-
unni vel lýst í fésbókarfærslu bónda
í Húnavatnssýslum: „Held það sé nú
bara fyrir svæsnustu adrenalínfíkla
að standa í heyskap í svona veður-
fari. Hvenær má maður fara að
gleyma hvað maður vældi yfir
þurrkum fyrir tveimur árum?“
Leikskólar og HM
„Íslendingar elta veðrið,“ segir
Tryggvi Marinósson, forstöðumaður
tjaldsvæðisins að Hömrum við
Akureyri. Hann segir þá breytingu
hafa orðið á ferðavenjum landans
síðustu ár að Íslendingar séu mest á
ferðinni í júlí. Þar hafi til dæmis
sumarlokun leikskóla, sem ráði
miklu hjá barnafólki, afgerandi
áhrif. „Við getum því búist við tals-
verðri aðsókn hingað á næstunni,
þegar svo bætist við að HM í knatt-
spyrnu er að ljúka og það er rigning
í kortunum fyrir sunnan. Þá verða
hér margir á næstunni á landsmóti
skáta, sem hefst 20. júlí og stendur í
eina viku,“ segir Tryggvi.
Vísindin benda til vætu
Lægðir yfir landi og rigning í kortum Óstöðugt loft Þjóðtrúin segir sitt og
hundadagar að hefjast Bændur í bobba Ferðaþjónusta finnur fyrir ástandinu
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gaman Feðgarnir Benjamin Bohn og Óskar Benjamínsson Bohn spiluðu kubb í blíðviðri á tjaldsvæðinu á Hömrum á
Akureyri í gær. Mæðgurnar Auður Sturludóttir og Elísa Petra Bohn voru í hinu liðinu þegar myndin var tekin.
Bændur í Skagafirði hafa á orði nú
að tún þeirra séu svo svaðblaut eft-
ir rigningar að undanförnu að
dráttarvélar hreinlega dúi á svampi
þegar ekið sé út á túnin. Heyskapur
sé því erfiður, að því viðbættu að ef
hann hangi ekki þurr hrekist heyið
og þá séu góð ráð í meira lagi dýr.
Í Þingeyjarsýslum er mjög mis-
jafnt hve langt bændur eru á veg
komnir með heyskap. Kúabændur
eru almennt í góðum málum en
sauðfjárbændur sem beittu tún sín
eftir að sauðburði lauk standa ekki
jafn vel að vígi. „Vorið var með ein-
dæmum gott og sprettan sömuleið-
is. Margir komust
því vel af stað
með heyskap og
höfðu jafnvel lok-
ið fyrri slætti
þegar hér kom
norðanhvellur á
fimmtudaginn í
síðustu viku,“
sagði Erlingur
Teitsson, bóndi á Brún í Reykjadal.
Sjálfur segist hann vera búinn með
fyrri slátt og því ágætlega staddur.
Hjá nágrönnum Erlings í Mývatns-
sveit hefur heyskapurinn hins vegar
gengið upp og ofan.
Sprettan með eindæmum
HEYSKAPUR GENGIÐ UPP OG OFAN NORÐANLANDS
Erlingur Teitsson
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Í hesthúsahverfinu á Þórshöfn er líf-
legt dýrasamfélag en frístunda-
bændur hafa þar fleiri dýr en hesta
og kindur. Auk þeirra er þar dúfna-
kofi og hamingjusamar hænur líka á
rölti ásamt skrautlegum hana, sem
sér samviskusamlega um það að
mannfólkið sofi ekki frá sér sumarið.
Hænurnar sjá eiganda sínum fyrir
nægum eggjum og ekki er amalegt
að fá nýorpin egg daglega.
Fé hefur nú verið sleppt í haga, þó
ekki öllu, því fjögur pattaraleg lömb
eru enn á túninu við húsin.
„Þrjú þeirra eru þrílembingar og
ein ærin vildi ekki lambið sitt,“ sagði
Guðrún Þorleifsdóttir sem er vön að
hugsa um heimalninga sumarlangt
og gefa þeim mjólk. Lömbin komu á
spretti þegar Guðrún fyllti fötuna
þeirra með mjólk en fjórar túttur
eru á fötunni, svo lömbin geta öll
drukkið í einu.
„Þetta var ekki svona fljótlegt áð-
ur fyrr, þá þurfti að gefa hverju
lambi fyrir sig úr einum pela og það
var tímafrekt,“ sagði Guðrún.
Lömbin eru gæf og hafa gestir
tjaldsvæðisins getað fylgst með
þeim því tjaldstæðið er staðsett
móts við hesthúsahverfið.
Morgunblaðið/Líney Sig.
Þyrstir Guðrún Þorleifsdóttir gefur
heimalningunum mjólkurdropa.
Heimalning-
ar gleðja
tjaldgesti
á Þórshöfn
Gylfaflöt 7, Grafarvogi | Sími 587 8700 | www.krumma.is
Verð
15.900 kr.
Hjól fyrir börn
tveggja ára og eldriÖll bö
rn fá
sápukú
lur í
sumarg
jöf
www.fi.is
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Ferðafélag Íslands efnir til dagsferðar um
Suðurland á slóðir Konrads Maurers
laugardaginn 19. júlí.
Mæting er í Dillonshúsi í Árbæjarsafni kl. 08:00, byrjað
verður með morgunverði þar og þaðan ekið að Skógum
undir Eyjafjöllum og til baka um Bláskógaheiði og Mosfells-
dal með viðkomu á ýmsum stöðum sem Konrad Maurer
heimsótti í Íslandsferð sinni 1858.
Martin Maurer verður leiðsögumaður og fararstjóri.
Leiðsögn verður bæði á þýsku og íslensku.
Nánari upplýsingar eru á www.fi.is
Á slóðir
KONRADS MA
URERS