Morgunblaðið - 12.07.2014, Síða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Reynsla Íbúðalánasjóðs af útleigu
húsnæðis til vissra hópa er slæm,
enda getur tjónið verið mikið.
Þetta segir Sigurður Erlingsson,
forstjóri Íbúðalánasjóðs, en tilefnið
er þau ummæli Heru O. Einarsdótt-
ur, félagsráðgjafa í Reykjanesbæ, í
Morgunblaðinu í gær að mörgum
hafi verið synjað um leigu hjá sjóðn-
um á Suðurnesjum vegna þess að
þeir væru á vanskilaskrá.
Fram kemur í mánaðarskýrslu
ÍLS í maí að sjóðurinn eigi 349 íbúðir
á Suðurnesjum sem eru í útleigu, 413
íbúðir sjóðsins eru þar í sölu og sam-
tals 50 íbúðir í hans eigu voru auðar.
Sigurður Erlingsson, forstjóri
Íbúðalánasjóðs, segir synjanirnar
ekki eiga við öll vanskil.
„Horfa þarf á eðli vanskila. Þetta á
ekki við öll vanskil. Það eru ákveðin
alvarleg vanskil sem við horfum á.
Við synjum fólki um leigusamninga á
grundvelli slíkra vanskila.“
– Hver er skýringin á því að slík
vanskil koma í veg fyrir að leiga til
umræddra einstaklinga sé heimiluð?
„Það eru tvær ástæður. Í fyrsta
lagi er það ekki hlutverk Íbúðalána-
sjóðs að leysa félagslegan vanda.
Það er ekki hluti af starfsemi sjóðs-
ins. Það er númer eitt. Í öðru lagi
höfum við reynt að teygja okkur eins
langt og við getum með því að sam-
þykkja að leigja fólki með tiltekna
gerð af vanskilum. Við samþykkjum
ekki hvaða vanskil sem er. Reynsla
okkar er sú að þegar vissir hópar
eiga í hlut getum við lent í miklu
tjóni. Það er stundum þannig að við
fáum ekki greidda leiguna.“
Lagaskylda sveitarfélaga
– Hvað telurðu að sé heppilegt að
gera til þess að fólk geti fengið leigu-
húsnæði og búið við öryggi?
„Sveitarfélög hafa ákveðnar
skyldur lögum samkvæmt gagnvart
ákveðnum félagslegum hópum. Það
er þá fólk með lágar tekjur eða erf-
iðar félagslegar aðstæður. Þar er
hrein og klár lagaskylda til staðar.
Þegar fólk er með meðaltekjur og
mikil vanskil þá er erfiðara að eiga
við það. Það er bara þannig. Okkur
er ekki heimilað að vera með slíka
leigustarfsemi til aðila sem eru með
mikil og alvarleg vanskil. Eina und-
antekningin frá þessari reglu er þeg-
ar um er að ræða gerðarþola sem
hafa misst eignina til okkar og þeir
fá að leigja hjá okkur áfram.“
Ekki náðist í Eygló og Dag
Fram kom í Morgunblaðinu í gær
að biðlistar eftir félagslegu húsnæði
á höfuðborgarsvæðinu og í Reykja-
nesbæ hefðu lengst frá því í fyrra-
haust. Nú er 1.621 einstaklingur/fjöl-
skylda á biðlista en voru 1.473 í
fyrrahaust. Ekki náðist í fulltrúa
Reykjavíkurborgar á velferðarsviði
við vinnslu þeirra fréttar.
Af því tilefni óskaði blaðamaður
eftir viðtali við Dag B. Eggertsson
borgarstjóra. Aðstoðarmaður Dags
boðaði viðtal en úr því varð ekki.
Þá var óskað eftir viðtali við Eygló
Harðardóttur, félags- og húsnæðis-
málaráðherra, en ekki náðist í ráð-
herrann. Bæði Dagur og Eygló boða
viðmiklar aðgerðir í húsnæðismálum
á næstu misserum.
Tapa miklu
fé á að leigja
vanskilafólki
Forstjóri ÍLS segir það fara eftir eðli
vanskila hvort ósk um útleigu sé synjað
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Reykjanesbær Mörgum hefur verið
synjað um leiguhúsnæði hjá ÍLS.
936 íbúðir í útleigu
» Íbúðalánasjóður var með
936 íbúðir í leigu í maí.
» Sjóðurinn var þá með 1.010
íbúðir í sölu en 116 íbúðir í eigu
hans voru þá auðar, 22 voru í
vinnslu og 12 óíbúðarhæfar.
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
Reiðskóli Topphesta á Kjóavöllum fagnar sínu 21. ald-
ursári um helgina. Reiðskólinn er rekinn af hjónunum
Jónínu Guðbjörgu Björnsdóttur og Þórði Rafni Guðjóns-
syni en saga skólans hófst á Borgarspítalanum þar sem
Jónína vann við iðjuþjálfun. „Þegar byrjaði ég að vinna á
Borgarspítalanum sem iðjuþjálfi lærði ég betur inn á
hesta. Ég ólst upp á sveitabæ og þar voru alltaf hestar en
þá var ég ekki mikil hestakona. Á spítalanum byrjaði ég
á sínum tíma á því að fara með þá sjúklinga sem ekki
máttu fara út upp í hesthús og láta þá moka og kemba
hestana. Það stytti daginn þeirra og kom að góðum not-
um,“ segir Jónína.
Skiptir börnin engu máli hvernig viðrar
Upp frá þessu sneri Jónína sér algjörlega að hesta-
mennsku. Hún og eiginmaður hennar byrjuðu á því að
kenna börnum í reiðskólanum ásamt því að selja ferða-
mönnum hestaferðir. „Þetta hefur gengið mjög vel hjá
okkur. Það er alltaf fullbókað hjá okkur í reiðskólann, en
við erum venjulega með 35 börn á hverju námskeiði.
Námskeiðin hefjast um leið og skólarnir klárast og lýkur
um miðjan ágúst,“ segir Jónína og bætir við að krakk-
arnir hafi mjög gaman af reiðskólanum.
„Það skiptir þau engu máli hvernig viðrar. Þau vilja
alltaf miklu frekar ríða út í stað þess að vera í skemm-
unni. Þau gefa ekkert eftir.“
Mikið verður um að vera hjá þeim hjónum um helgina,
en þau ætla að slá upp veislu í hesthúsahverfi í Kópavogi
á morgun, sunnudag.
„Barnabörnin, fjölskyldan og vinir okkar ætla að kíkja
á okkur og við ætlum að eiga góðan dag saman. Annars
fáum við líka fullt af fólki til okkar í dag [í gær. innsk.
blm.]. Þá ætlum við að vera með smá sýningu og þá getur
fólk séð hvað börnin hafa lært,“ segir Jónína.
Enn í fullu fjöri
Jónína átti 85 ára afmæli fyrr á árinu en þrátt fyrir há-
an aldur er hún enn í fullu fjöri. „Ég veit ekki hvað ég
verð lengi í þessu til viðbótar en ég er enn heilsugóð í
dag. Við hjónin eigum fyrirtækið og hestana en við erum
ekkert að hugsa um hvað gerist í framtíðinni. Hestarnir
eru orðnir gamlir eins og við en ég vona að þeir fari
seinna meir til Dýrafjarðar, þar sem guð er góður við þá.
Ég er mamma allra hesta og segi við fólk að ég tali við
strákana mína þegar ég vísa í hestana,“ segir Jónína.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Topphestar Jónína Guðbjörg Björnsdóttir, 85 ára, ásamt einum af nemendum reiðskólans og hesti hans.
Lét sjúklinga moka
og kemba hestunum
Fagna afmæli um helgina Segir guð góðan við hestana
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Afmæli Jónína stýrir nemendum af mikilli röggsemi.
Umhverfisstofn-
un hefur veitt
Stakksbraut 9
ehf., öðru nafni
United Silicon,
starfsleyfi fyrir
rekstur kísilverk-
smiðju á lóðinni
að Stakksbraut 9
á iðnaðarsvæðinu
í Helguvík. Leyf-
ið veitir heimild
til að framleiða allt að 100.000 tonn á
ári af hrákísil og allt að 38.000 tonn-
um af kísilryki og 6.000 tonnum af
kísilgjalli, að því er fram kemur í til-
kynningu á vef Umhverfisstofnunar.
Starfsleyfið hefur nú þegar öðlast
gildi og gildir það til 31. júlí 2030.
Í starfsleyfinu er lögð megin-
áhersla á að takmarka losun verk-
smiðjunnar til lofts enda er verk-
smiðjan fyrirhuguð í um tveggja
kílómetra fjarlægð frá byggð.
if@mbl.is
Kísilver fær
starfsleyfi
Helguvík Kísilver
rís á svæðinu.
SCREEN- OG
RÚLLUGARDÍNUR
Henta vel þar sem sól er mikil
en þú vilt samt geta séð út
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Hringdu og bókaðu tíma í máltöku
Meira úrval
Meiri gæði
Íslensk
framleiðsla
eftir máli
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. Sími: 588 5900 ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík. Sími: 421 2061
Glerárgötu 32, Akureyri. Sími: 462 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán.-fös. 11-18