Morgunblaðið - 12.07.2014, Page 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014
Stuttar fréttir ...
● Hluthafar
99,4% hluta í fast-
eignafélaginu Eik
skráðu sig fyrir nýj-
um hlutum í hlut-
falli við eignarrétt í
hlutafjárútboði fé-
lagsins sem lauk 5.
júlí síðastliðinn.
Þetta kemur fram í
tilkynningu til
Kauphallarinnar.
Alls voru nýir hlutir í boði fyrir 750
milljónir króna að markaðsvirði. Allir
hluthafar nema einn tóku þátt í hluta-
fjáraukningunni.
Veruleg umframeftirspurn var eftir
hlutum í Eik og var forgangsréttar-
höfum gefinn kostur á að skrá sig fyrir
hlutum umfram forgangsrétt sinn. Í til-
kynningunni segir að félagið sé nú vel í
stakk búið að halda áfram til að nýta
sér þau tækifæri sem fást á markaði.
Fasteignafélagið Eik
klárar hlutafjáraukningu
Forstjóri Garðar
H. Friðjónsson.
Við afnám fjármagnshafta hér á landi
er mikilvægt að gjaldeyrisvaraforð-
inn haldist sterkur og að ekki sé rask-
að stöðugleika þjóðarbúsins og fjár-
málakerfisins. Þetta kemur fram í
mati stjórnarmanna í framkvæmda-
stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eftir
umræður um fjórðu eftirfylgni-
skýrsluna um Ísland, sem fram fóru á
mánudaginn og greint var frá á
heimasíðu sjóðsins undir lok vikunn-
ar.
Framkvæmdastjórnin fagnar
áframhaldandi bata í efnahagsmálum
hér á landi og aðgerðum til að takast á
við afleiðingar fjármálahrunsins. Hún
lýsir yfir ánægju með endurnýjun
sem átt hefur sér stað á áætlun um af-
nám fjármagnshafta frá árinu 2011 og
leggur áherslu á að dregið verði með
öguðum hætti úr fjármagnshöftum í
því skyni að auka tiltrú og hagvaxt-
arhorfur.
Framkvæmdastjórnin telur Seðla-
bankann hafa fylgt peningamála-
stefnu í samræmi við aðstæður og
hún hafi stuðlað að lægri verðbólgu.
Við endurskoðun á lögum um bank-
ann sé mikilvægt að stjórnvöld standi
vörð um fjárhagslega traustan, sjálf-
stæðan og ábyrgan seðlabanka, enda
sé það grundvöllur fyrir trúverðugri
stefnumótun og stýringu verðbólgu-
væntinga.
Fram kemur í mati stjórnarinnar
að enn sé verk óunnið við að ná mark-
miðum stjórnvalda um jafnvægi í rík-
isfjármálum og lækkun opinberra
skulda. Frumvarp til laga um opinber
fjármál sem nú liggur fyrir Alþingi
myndi hins vegar styðja vel við fram-
gang þeirra áforma.
Góður hagvöxtur framundan
Í skýrslunni sem lögð var fyrir
framkvæmdastjórn sjóðsins kemur
fram að sjóðurinn spáir 3% hagvexti
að meðaltali næstu ár. Íslensku efna-
hagslífi stafi mest ógn af áhrifum
vegna efnahagsþróunar utan Íslands
og óvissu í tengslum við afnám fjár-
magnshaftanna.
Gæta skal aga við afnám hafta
AGS Eftirfylgniskýrsla um Ísland var rædd í vikunni í stjórn sjóðsins.
Horfur góðar en
ýmsir áhættuþætt-
ir að mati AGS
Hermann Guðmundsson, fyrrver-
andi forstjóri olíufélagsins N1, hefur
ásamt öðrum fjárfestum gengið frá
kaupum á heildsölufyrirtækinu
Kemi af eignar-
haldsfélaginu
Hólmsteini
Helgasyni.
Í samtali við
Morgunblaðið
segir Hermann
að skrifað hafi
verið undir kaup-
samkomulag í
síðustu viku. „Ég
og Lúðvík Matt-
híasson, sem
starfaði með mér hjá Bílanausti, fór-
um fyrir hópi nokkurra einstakl-
inga.“
Kemi hefur verið í rekstri í tutt-
ugu ár. Fyrirtækið flytur inn og
dreifir efna- og öryggisvörum til fyr-
irtækja og einstaklinga á borð við
smurolíur, hreinsiefni, koppafeiti og
öryggishjálma. Að sögn Hermanns
eru engar breytingar fyrirhugaðar á
rekstrinum á þessari stundu. „Nú
munum við einblína á það að kynnast
rekstrinum og starfsfólki. Í fram-
haldi af því verður unnið að stefnu-
mótun og framtíðaráætlunum.“
Aðspurður um aðdragandann að
kaupunum segir Hermann að hann
hafi íhugað það um skeið að stofna
sitt eigið fyrirtæki frá grunni. „Ég
þekkti hins vegar til eiganda Kemi
og við tókum tal saman og eitt leiddi
af öðru. Eftir nokkra mánuði höfðum
við náð samkomulagi um að ég og
fleiri fjárfestar keyptum félagið.“
Hermann segir að fyrirtækið hafi
lengi verið í traustum rekstri og eng-
ar langtímaskuldir hvíli á félaginu.
Fram kemur í ársreikningi Kemi
að hagnaður síðasta árs hafi numið
tæplega 28 milljónum króna eftir
skatta. Eignir Kemi eru hátt í 190
milljónir króna og eigið fé fyrirtæk-
isins var um 156 milljónir króna í
árslok 2013. Á árinu 2013 störfuðu
alls sextán hjá félaginu.
hordur@mbl.is
Hermann kaupir
fyrirtækið Kemi
Stöðugur rekstur Kemi hagnaðist
um 28 milljónir á síðasta ári.
Gengið frá kaupum í síðustu viku
Hermann
Guðmundsson
!"#
$!
% %
$""
$"%
"%
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
#%
%
!%""
$!"$$
"
%""
$"$
$
"%
#
!"!
$!" #
!
% $
$"%
$#
"
"
$!%#
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Ökufærni er lykilatriðið
þegar ungmenni hefja akstur.
Hvar fær ungmennið þitt kennslu?
Hluti námsins fer fram í fullkomnum ökuhermi
Áhersla lögð á færni nemenda og öryggi þeirra í umferðinni
Allt kennsluefni innifalið
Ökukennsla www.bilprof.is
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 • Opið 10-17 alla daga.
Hringdu
núna
og bóka
ðu
ökuskól
ann
ÖKUSKÓLINN Í MJÓDD
– yfir 40 ár í fagmennsku.
Þekking og reynsla í fyrrirúmi
Fyrirtæki og verslanir
Sumarleikföng í úrvali
www.danco.is
Heildsöludreifing
45cm boltar
Flottir á
trampólín
Boltar
Kútar
30%
afsláttur
af sumar-
leikföngum
Sápukúlur
Vatnsbyssur
Fötur
YooHoo