Morgunblaðið - 12.07.2014, Side 21

Morgunblaðið - 12.07.2014, Side 21
FRÉTTIR 21Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014 BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Lífeyrissjóðurinn Stafir skerti líf- eyrisréttindi um 4,5% í september árið 2013. Gagnvart lífeyrisþegum kom lækkunin fram á níu mánaða tímabili, 0,5% í hvert sinn. Frá hruni nemur skerðingin 20,5%. Ólafur Sigurðs- son, fram- kvæmdastjóri Stafa, segir ástæðuna vera að ekki hafi tekist að ávaxta iðgjöld um 3,5% yfir lengri tíma líkt og regl- ur kveði á um vegna fjármálahruns- ins árið 2008. Samkvæmt ársreikn- ingi 2013 var raunávöxtun á síðastliðnum fimm árum 1,5%. Raun- ávöxtun ársins 2013 var 4,9%. „Þetta eru aðgerðir sem almennir sjóðir þurfa að fara í ef réttindi eru meiri en eignirnar,“ segir hann. Segja má að í þessu kristallist munurinn á almennum lífeyrissjóð- um og þeim sem reknir eru á ábyrgð hins opinbera. Lífeyrisréttindi sjóðs- félaga LSR hafa t.d. ekki verið skert. Á sama tíma er mikill halli á opin- bera lífeyriskerfinu. Ólafur segir að frá hruni hafi skerðing réttinda numið 20,5%. Fyrst 6%, svo 10% og loks 4,5%. Skömmu fyrir hrun hafi réttindin hins vegar verið aukin um 20%. „Við viljum gjarnan halda því til haga,“ segir hann og nefnir að ef leitað sé lengra aftur hafa réttindi verið aukin töluvert vegna verðhækkana á eign- um. Jafnframt hafi ávinnsla réttinda sjóðsfélaga verið tiltölulega há. Skerðingu réttinda var dreift yfir nokkurn tíma til að leyfa sjóðsfélög- um að njóta vafans á meðan unnið væri úr málum tengdum hruninu. Hann nefnir sem dæmi að sjóðurinn hafi átt skuldabréf á N1. Eftir hrun hafi það verið fært mikið niður og loks breytt í hlutafé. „Eftir því sem við fáum betri mynd af því hvernig eignirnar standa þótti okkur eðlilegt að bregðast við af ábyrgð og jafna eignir á móti skuldbindingum,“ segir hann. Hefur haldið í við verðbólgu Samkvæmt upplýsingum frá stjórnanda lífeyrissjóðs hefur lífeyr- ir almennu sjóðanna nánast haldið í við verðbólgu frá árinu 1998 þegar lög um lífeyrissjóði tóku gildi og er hrunið tekið með í reikninginn. Á sama tíma hafi meðalævi lengst, en það veikti stöðu lífeyrissjóða um 5% eða svo. Sjóðirnir hafi því ekki verið að skerða réttindi yfir lengra tíma- bil. Fram kom í ViðskiptaMogganum í byrjun mánaðarins að mikil gerjun hafi átt sér stað að undanförnu með- al stærstu lífeyrissjóða landsins um hvort þeir eigi að vera hlutlausir fjárfestar eða láta að sér kveða í stjórnum fyrirtækja í Kauphöll sem þeir eiga hlut í. Stjórnendur fjögurra af fimm stærstu sjóðunum kjósa að vera virkir í þeim félögum sem þeir eiga umtalsverðan hlut í. Anna Guðný Aradóttir, stjórnar- formaður Stafa, sagði í ársskýrslu að lífeyrissjóðurinn hefði samþykkt nýja eigendastefnu. „Fyrir hrun átti sjóðurinn ekki stóra hluti í félögum og hafði í raun ekki afskipti af starf- semi þeirra. Þetta breyttist eftir hrun og nú eiga Stafir tiltölulega stóra hluti í nokkrum félögum. Stafir geta ekki látið sitja við að velja stjórnarmenn og ætla þeim síðan að standa á eigin forsendum undir þeirri ábyrgð sem fylgir því að stjórna félögum.“ Virkur eigandi „Stafir ætla sér að vera virkur eig- andi og beita áhrifum sínum með því að taka þátt í störfum hluthafafunda og beita atkvæðarétti sínum í þágu hagsmuna sjóðfélaga,“ sagði hún. Á árunum fyrir hrun voru lífeyris- sjóðir almennt hlutlausir fjárfestar á markaði. Aðspurður hvort erfitt sé að kjósa með fótunum hér á landi um þessar mundir segir Ólafur svo vera. Seljanleiki bréfa sé misjafn. Erlend- is sé tiltölulega auðvelt að selja 0,5% hlut á stuttum tíma en hér geti það tekið lengri tíma. Aðspurður játar hann því að slík sala gæti kallað á gengislækkun. „Salan gæti skaðað okkur,“ segir Ólafur. Urðu að skerða lífeyrisrétt  Lífeyrissjóðurinn Stafir skerti lífeyrisréttindi um 4,5% í fyrra  Frá hruni nemur skerðingin 20,5% í þremur skrefum  Skömmu fyrir hrun voru réttindin aukin um 20% vegna verðhækkana á eignum Þróun lífeyris hjá tíu stærstu lífeyrissjóðunum Lífeyrisvísitalan sýnir breytingu á lífeyri tíu stærstu lífeyrissjóðanna á hverjum tíma. Vægi hvers lífeyrissjóðs fer eftir hreinni eign í samtryggingu. Heimild: Landsamband lífeyrissjóða 2.800 2.600 2.400 2.200 2.000 1.800 1.600 1.400 1.200 1.000 1. des. 20131. jan. 1998 1.000 2.752 2.289 2.189,67 Lífeyrisvísitala Neysluverðsvísitala Launavísitala (1.9. 2013) Meðal tíu stærstu » Stafir eru meðal tíu stærstu lífeyrissjóða landsins. » Til sjóðsins greiða starfs- menn fyrirtækja sem tilheyrðu Sambandi íslenskra samvinnu- félaga og félagsmenn í Rafiðn- aðarsambandi Íslands og Mat- væla- og veitingasambandi Íslands. » Sjóðurinn varð til við sam- runa Samvinnulífeyrissjóðsins og lífeyrissjóðsins Lífiðnar. » Yfir 50 þúsund manns eiga réttindi í sjóðnum. Ólafur Sigurðsson 20%-50% afsláttur til 8. ágúst TAKMARKAÐMAGN!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.