Morgunblaðið - 12.07.2014, Page 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014
Ferðafélag Íslands
efnir til nýjungar í
starfsemi sinni, er
það skipuleggur
dagsferð 19. júlí nk. í
fótspor hins merka
þýska fræðimanns og
Íslandsvinar, Kon-
rads Maurers. Það
var árið 1858 sem
réttarsöguprófess-
orinn Maurer kom til
landsins og dvaldi
hér í sex mánuði til að rannsaka
íslenska menningu, einkum og
sér í lagi lög íslenska þjóðveld-
isins (930-1262).
Um þessa ferð sína skrifaði
Maurer stórmerka bók. Handrit
hennar var lengi talið glatað en
fannst síðan góðu heilli. Saga
þessa mikla ferðalags var því
ekki gefin út í meira en 130 ár,
uns Ferðafélag Íslands gerði það
í íslenskri þýðingu Baldurs Haf-
stað árið 1997. Á frummálinu er
Ferðasaga Maurers enn óútkom-
in, en unnið er að þýskri útgáfu á
vegum háskólans í München og
bæversku vísindaakademíunnar.
Má vænta þeirrar bókar á næsta
ári.
Víðförull fræðimaður
Konrad Maurer ferðaðist nán-
ast um landið allt, m.a. fór hann
norður um Sprengisand. Í vænt-
anlegri ferð Ferðafélagsins verð-
ur aðeins farið í hluta þessa
mikla ferðalags, um Suðurland.
Ferðin hefst með morgunverði kl.
8 í Dillonshúsi í Árbæjarsafni en
í því sögufræga húsi hélt Maurer
til þá tvo mánuði sem hann
dvaldist í Reykjavík. Þá stóð
Dillonshús á sínum upprunalega
stað við Suðurgötu 2, á horni
Túngötu. Húsið er raunar miklu
eldra en þessar tvær götur.
Frá Dillonshúsi verður haldið
austur að Skógum undir Eyja-
fjöllum og lýkur ferðinni að
kvöldi við Árbæjarsafn. Á leiðinni
verða margir staðir heimsóttir,
þar sem Maurer kom við. Má þar
nefna Arnarbæli í Flóa, Odda á
Rangárvöllum, Bergþórshvol,
Kross í Austur-Landeyjum,
Skóga, Gunn-
arshólma, Hlíð-
arenda, Stóra-Núp,
Skálholt, Mosfell í
Grímsnesi og Mosfell
í Mosfellsdal. Í ferð-
inni verða staðirnir
þó ekki heimsóttir í
þeirri röð sem Mau-
rer fylgdi. –
Leiðsögn í ferðinni
verður á þýsku og ís-
lensku. Um þýsku
leiðsögnina sér niðji
Maurers í sjötta lið í
beinan karllegg,
Martin Maurer, frá Augsburg í
Þýskalandi. Íslensku leiðsögnina
annast dr. phil Árni Björnsson,
Sigurjón Pétursson og undirrit-
aður.
Skerfur til sögu íslenskrar
stjórnskipunar og menningar
Mikilvægi framlags Konrads
Maurers til íslenskrar menningar
verður seint ofmetið. Það er
varla hægt að halda íslenskum
menningararfi á loft, án þess að
minnast skerfs hans.
Árið 1852 skrifaði Maurer bók
um íslenska þjóðveldið (930-
1262), „Upphaf allsherjarríkis á
Íslandi og stjórnskipan þess“,
sem þýdd var á íslensku 30 árum
síðar og gefin út í Reykjavík
1882. Maurer rannsakaði fornan
íslenskan rétt allt sitt líf og hélt
ótal fyrirlestra um efnið, bæði í
Þýskalandi og í Noregi. Hann
studdi Jón Sigurðsson og sjálf-
stæðisbaráttu Íslendinga. Hann
rannsakaði Íslendingasögurnar
og íslenskar bókmenntir. Hann
hvatti sr. Magnús Grímsson og
Jón Árnason til að safna íslensk-
um þjóðsögum, og safnaði þeim
sjálfur og gaf út á þýsku í Leip-
zig 1860.
Þróun evrópsks réttarkerfis
Lög þau og réttarfar sem Kon-
rad Maurer rannsakaði voru hin
forngermönsku lög sem giltu í
Þýskalandi, Niðurlöndum og á
Norðurlöndum frá ómunatíð. Frá
Noregi barst þessi löggjöf til
Færeyja og Íslands, og frá Ís-
landi áfram til Grænlands. Með
Englum, Jótum og Söxum barst
þetta réttarkerfi af meginlandinu
Ferð um slóðir
Konrads Maurers
á Suðurlandi
Eftir Jóhann J.
Ólafsson
Jóhann J.
Ólafsson
: : 535_1000
Grétar Haraldsson
Hrl. Lögg.fast.fyrirt. og skipasali
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fast.fyrirt. og skipasali
Berta Bernburg
Lögg. fasteignasali og leigumiðlari
Fasteignasala . Íbúðarhúsnæði . Skúlatún 2 . 105 Rvk
Efstaleiti 14, 103 R. Íbúð 308
Opið hús mánud. 14. júlí kl. 17.30-18.00
*GULLFALLEG ÚTSÝNISÍBÚÐ Í LÚXUSHÚSI*
Sérlega vönduð og falleg 156,8 fm 3ja-4ra herb. íbúð á 3. hæð í einu glæsi-
legasta lyftuhúsi landsins. Marmari á gólfum, skrautlistar í loftum og vandaðar
innréttingar. Mikil og vönduð sameign, setustofur, samkomusalur með eldhúsi,
billiardstofa, líkamsrækt, sauna, heitir pottar, sundlaug, sameiginleg geymsla og
þvottaaðstaða. Húsvörður. Verð 57,9 m.
Upplýsingar gefur Aðalheiður, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495.
adalheidur@stakfell.is.
Op
ið
hú
s
HVAMMUR OG GALTARHÖFÐI
Til sölu Jarðirnar Hvammur og Galtarhöfði í Norðuárdal í Borgarfirði.
Hér er um að ræða landmiklar náttúruperlur í glæsilegu umhverfi.
Land jarðanna liggur meðal annars að Norðurá. Síðustu ár hefur aðalega
verið búið með sauðfé og húsakostur í samræmi við það.
Mjög áhugaverðar jarðir sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson á skrifstofu
Fasteignarmiðstöðvarinnar. Sjá einnig fasteignamidstodin.is
Sprengjudrunur og
gnýr í F-16 árásar-
þotum fylla loftið, dáin
börn og særð fylla
spítalana á Gaza. For-
eldrar þeirra deyja
líka, einkum mæð-
urnar, og afi og amma
láta lífið þegar heim-
ilin eru sprengd í loft
upp. Stórskotaárásir
eru einnig af sjó, flot-
inn lætur sitt ekki eft-
ir liggja. Þeir tala um stríð Ísraels
við Hamas en það er ekki málið.
Þetta er stríð gegn gjörvallri pal-
estínsku þjóðinni.
Nú er í ljós komið eftir ísraelsk-
um heimildum að Netanyahu og
innsti hringurinn kringum hann
vissu um dauða unglingspiltanna
þriggja úr landránsbyggð rétt utan
við Hebron aðeins nokkrum
klukkustundum eftir að þeim var
rænt. Leyniþjónustan var líka
strax með á hreinu hverja hún taldi
seka og þeir hurfu nánast þegar í
stað og hefur ekkert til þeirra
spurst. Foreldrar
þeirra telja víst að
herinn hafi tekið þessa
tvo ungu menn strax,
og telja eins víst að
þeir hafi verið pynt-
aðir og drepnir.
En hvernig stendur
á þessari leynd? Af
hverju voru foreldrar
og almenningur ekki
látinn vita um örlög
ísraelsku piltanna
strax? Samkvæmt
grein á Electronic
Intifada var það vegna
þess að Netanyahu og hans menn
vildu nota tímann til að kynda upp
bál haturs og hefnda í Ísrael og til
að framkvæma alþjóðlega áróðurs-
herferð og fá leiðtoga heimsins til
að tjá sig um örlög drengjanna,
kenna Hamas-samtökunum um og
réttlæta þannig stórstríð gegn íbú-
um Gaza-svæðisins undir því yfir-
skini að verið væri að ganga af Ha-
mas-samtökunum dauðum.
Loftárásirnar á Gaza hafa lengi
verið í bígerð en mestu öfgamönn-
unum í ríkisstjórn Ísraels finnst
ekki nógu langt gengið. Utanríkis-
ráðherrann heimtar allsherjarárás
og innrás á Gaza. Forsætisráð-
herrann hefur kallað út 40 þúsund
manna varalið vegna Gaza og flutt
mikinn liðsafla að landamærunum.
Í þessum skrifuðum orðum lýsir
Abbas forseti því yfir að vænta
megi innrásar landhers innan fárra
stunda. Frumstæðar varnir and-
spyrnuhópanna, sem skjóta sínum
heimatilbúnu flaugum að Ísrael og
fæstar hæfa skotmarkið, eru not-
aðar af Ísraelsstjórn til réttlæta
lofthernaðinn. Enginn hefur þó lát-
ið lífið Ísraelsmegin, en á þremur
dögum hafa yfir 100 manns, að
stórum hluta börn, konur og aldr-
aðir, verið drepnir, flestir á heim-
ilum sínum. Um sjö hundruð
Mannréttindi og stríðsglæpir –
Eftir Svein Rúnar
Hauksson » Leyniþjónustan var
líka strax með á
hreinu hverja hún taldi
seka og þeir hurfu nán-
ast þegar í stað og hefur
ekkert til þeirra spurst.
Sveinn Rúnar
Hauksson
Þótt árin renni hjá
fyrr en þú hefðir kosið
og samtíminn dæmi þig
úreltan og jafnvel þótt
ævinni ljúki fyrr en þú
vildir, þá hef ég þá óbil-
andi trú að það verði
engin gengisfelling hjá
Guði, sem elskar okkur
út af lífinu. Því að ef
marka má hans skila-
boð til okkar þá erum
við óendanlega dýrmæt og eilífðar
verðmæti í hans augum.
Þegar fjaðrirnar taka
að reytast af
Dag einn mun sá tími yfir þig
renna sem snara að heilsan mun við
þér baki snúa. Líkt og þjófur að nóttu
mun hún aftan að þér læðast, taka þig
kverkataki, reka rýting í bakið á þér
og svíkja þig.
Hún mun taka af þér völdin og taka
til við að reyta af þér fjaðrirnar,
hverja af annarri, svo
þú mátt þín lítils. Þú
lækkar smám saman
flugið, þangað til þú
missir það alveg og
nauðlendir í eyðimörk
sem fangi í eigin líkama.
Hún mun þrengja að
þér, plokka af þér virð-
inguna og niðurlægja
þig. Hún mun ræna þig
mannlegri reisn svo þú
mátt þín lítils. Þú færð
engu breytt, þrátt fyrir
dýrmætan vina- og
kærleikshug, heitar og hjartnæmar
bænir. Þá verður þú að lokum dæmd-
ur úreltur af samfélaginu.
Að vera umvafinn englum
Hvað er betra í slíkum aðstæðum
en að fá að vera umvafinn vængjum
engla Guðs sem um síðir munu bera
þig í gegnum göngin dimmu, inn í
ljósið til lífsins, þangað sem þér hefur
verið búinn staður? Þangað sem tárin
verða þerruð, þar sem angist, kvöl og
harmur er ekki framar til?
Þangað sem allt verður nýtt og
kærleikur og fyrirgefning, gleði og
friður munu ráða ríkjum um eilífð?
Því að hulstrið mun með tímanum
hrörna og visna, fölna og eyðast, fyrr
eða síðar, hvort sem þér líkar betur
eða verr. Lífsvökvinn í líkamanum
mun þverra og ævinnar klukka hætta
að tifa. Það er gangurinn og við skilj-
um ekki af hverju eða eftir hverju er
farið.
Vissara að vera líftryggður
Já, hvað mun um líf þitt verða þeg-
ar ævinnar klukka hættir að tifa?
Hver ert þú þegar höfundur þinn
kallar líf þitt á sinn fund og þinn
innsti kjarni mun standa berstríp-
aður frammi fyrir skapara sínum?
Já, hver ert þú þá? Hvernig ætl-
arðu þá að afsaka þig? Hver á að
verja þig? Á hvað muntu þá vona? Á
hvað ætlarðu þá að treysta?
Mun þá ekki koma sér vel að vera
líftryggður? Sítengdur við lífið. Vera
með vorið vistað í sálinni og eiga eilíft
sumar í hjarta, svo þú fáir notið þess
sem fegurð augnabliksins hefur upp á
að bjóða um alla eilífð?
Þegar klukkur himinsins kalla
Að því mun óhjákvæmilega koma
að klukkur himnanna munu á þig
kalla þegar þú getur ekki meir þótt
þú hefðir feginn viljað. Með um-
hyggju, kærleika og fögnuði munu
þær hringja sál þína inn til himinsins
algrænu grunda, þar sem ríkir eilíf
sæla og gleði í faðmi lífsins. Lífsins
sem þú varst skapaður til og hefur í
rauninni alltaf þráð.
Þá munu englar minninganna lýsa
upp ljúfar myndir, sem taka að tala
og ylja. Og englar vonarinnar munu
lýsa þér fram veginn og bera þig inn í
dýrðina sem þú þráir að fá að upplifa
og þér var í rauninni alltaf ætluð.
Því að þótt heilsa, mannlegur heið-
ur, jafnvel vinir og virðing þig svíki og
hafni, þá mun ekkert gera líf þitt við-
skila við kærleika Guðs sem þér býðst
að meðtaka í syni hans, frelsaranum
okkar Jesú Kristi, og þú um síðir
munt fá að njóta og það um eilífð.
Látum því hið illa ekki ná tökum á
okkur og yfirbuga okkur heldur sigr-
um illt með góðu.
Með kærleiks- og sumarkveðju.
Lifi lífið!
Svikinn
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
»Mun þá ekki koma
sér vel að vera líf-
tryggður, sítengdur við
lífið, eiga eilíft sumar í
hjarta svo við fáum not-
ið fegurðar augnabliks-
ins um eilífð?
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld
og rithöfundur.