Morgunblaðið - 12.07.2014, Page 33

Morgunblaðið - 12.07.2014, Page 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014 ✝ SigurðurGuðnason fæddist á Sunnu- hvoli við Miðstræti í Vestmannaeyjum 3. desember 1931. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Vestmannaeyja 6. júlí 2014. Foreldrar hans voru Guðni Gríms- son, skipstjóri og útgerðarmaður, f. 1904, d. 1996, og Lovísa Sigurðardóttir húsmóðir, f. 1908, d. 1979. Syst- ir Sigurðar var Kristín Inga, f. 1928, d . 1967. Hinn 3. desember 1954 kvæntist Sigurður Lilju Ársæls- dóttur, f. 22.4. 1933. Lilja er dóttir Ársæls Sveinssonar út- gerðarmanns, f. 1893, d. 1969 og Laufeyjar Sigurðardóttur 1981, maki Jóna Gréta Grétars- dóttir. Sonur þeirra er Guðjón Týr, f. 2010, b) Kristinn Erling- ur, f. 1989, c) Guðný Erla, f. 1995, og d) Sigurður, f. 1999. Sigurður fór fyrst á sjóinn 14 ára gamall. Hann lauk fiski- mannaprófi frá Stýrimanna- skóla Íslands árið 1953 og stundaði eftir það sjómennsku til ársins 1974. Hann gerði út bátinn Maggý VE 111 ásamt föður sínum til ársins 1965 og var 2. stýrimaður á Ísleifi VE frá 1967 til 1974. Eftir það vann hann sem netamaður á neta- verkstæðum í Vestmannaeyjum til ársins 1995. Sigurður var virkur félagi í skátafélaginu Faxa í Vest- mannaeyjum á yngri árum og á efri árum var hann félags- maður í Félagi eldri borgara í Vestmannaeyjum. Útför Sigurðar fer fram frá Landakirkju í dag, 12. júlí 2014, og hefst athöfnin klukkan 14. húsmóður, f. 1895, d. 1962. Börn Sig- urðar og Lilju eru 1) Laufey, f. 1955, maki Gunnar Rafn Einarsson, f. 1955. Börn þeirra eru a) Sigurður Björn, f. 1981, b) Hjörvar, f. 1992 og c) Ásta Lilja, f. 1994, unn- usti Anton Björns- son. 2) Lovísa, f. 1959, maki Guðmundur Sv. Hermannsson, f. 1957. Börn þeirra eru a) Guðrún Lilja, f. 1983, maki Björn Ívar Karls- son. Dætur þeirra eru Emma Sól, f. 2006, og Ásta Lovísa, f. 2012. b) Arnar, f. 1988, unnusta Snærós Vaka Magnúsdóttir. 3) Guðni, f. 1963, maki Olga Sædís Bjarnadóttir, f. 1963. Börn þeirra eru a) Sverrir Marínó, f. Sumarið var tíminn og þá kvaddir þú þennan heim. Kæri pabbi, þú elskaðir sól og sum- aryl, að sitja með mömmu í sól- húsinu og fá til þín börnin þín, barnabörn og gesti sem bar að garði (helst að hafa kaffi og með- læti á boðstólum). Þetta voru gleðistundir eins og ávallt með þér, alltaf glaður, jákvæður og til í að rétta hjálparhönd. Við erum þakklát fyrir að hafa átt þig að og fyrir ógleym- anlegar stundir sem við höfum átt með þér. Toppurinn var þeg- ar stórfjölskyldan náði öll að fara út um jól og áramót árið 2008. Þér fannst mikið gaman að hlusta á íslenska tónlist og tókst það yfirleitt fram yfir sjónvarpið og ekki var nú verra að hafa einn kaldan í þjóðhátíðarkrús með. Þér fannst gaman að spila og varst duglegur að spila með eldriborgurum og fjölskyldu þinni og oft tekið í spil heima hjá þér. Þá varst þú ekki Skuldari fyrir ekki neitt þegar að elda- mennsku kom, flottur kokkur og naust þess að elda og bardúsa í eldhúsinu. Svona er endalaust hægt að rifja upp góðar minn- ingar um góðan föður. Við viljum af alhug þakka því starfsfólki sem annaðist hann á Heilbrigðisstofnun Vestmanna- eyja í það rúma ár sem hann dvaldi þar. Og við gætum mömmu okkar fyrir þig elsku pabbi, sem þú unnir svo heitt. Takk fyrir allt og allt. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Laufey, Lovísa, Guðni og fjölskyldur. Ljúfar minningar koma upp í huga mér þegar ég rita niður nokkur orð til að kveðja afa Sigga, eins og hann var ávallt kallaður af fjölskyldunni. Þeir ófáu rúntar sem ávallt enduðu niðri á bryggju að kíkja á bátana, allir litlu hrekkirnir sem einkenndu hann og hættu ekkert þrátt fyrir að maður væri kominn á þrítugsaldur og skiln- ingsleysið af hverju maður þurfti alltaf að skipta af æsi- spennandi sjónvarpsefninu sem maður var að horfa á svo afi gæti hrotið yfir báðum fréttatímun- um. Afa, sem gamall sjómaður, fannst fiskur alls ekki vondur og var signi fiskurinn alveg í sér- stöku uppáhaldi. Ég gleymi því aldrei einn veturinn sem ég bjó hjá ömmu og afa þegar fiskurinn sem hangið hafði yfir bílskúrs- hurðinni undanfarna mánuði var horfinn. Næstu daga lyktaði húsið ekki vel að mati borgarbarnsins en afi aftur á móti þrælsáttur því matseðill næstu daga fyrir öll mál var siginn fiskur. Afi Siggi var ekki maður margra orða en naut sín vel þeg- ar fjölskyldan kom saman á Herjólfsgötunni. Hann fylgdist stoltur í stólnum sínum með um- ræðum fjölskyldunnar og ávallt tilbúinn að útskýra tengsl manna ef fólk vissi ekki um hvern verið væri að ræða. Ég, sem aðkomupeyi, segi ávallt stoltur þegar Eyjamenn spyrja hverra manna ég sé að ég sé barnabarn Sigga Guðna og Lilju Ársæls því merkara fólk í mínum augum er vart hægt að finna. Er ég því ákaflega þakklátur fyrir að hafa haft afa Sigga svona lengi í mínu lífi og fengið að kynnast honum svo vel. Hvíldu í friði elsku afi Siggi. Arnar Guðmundsson. Elsku afi Siggi, það er bæði með þakklæti og sorg sem ég kveð þig að þessu sinni. Ég á margar góðar minningar um þig enda hef ég í gegnum tíðina sótt mikið í að vera hjá ykkur ömmu og alltaf liðið eins og heimilið ykkar sé mitt annað heimili, þótt það sé í öðru bæjarfélagi. Ég ætla ekki að vera orð- margur, enda var það ekki þinn stíll að hafa mörg orð um hlut- ina, en það sem þú gafst svo vel í staðinn var góð nærvera, traust, húmor og umhyggja. Það sem er mér efst í huga á þessari stundu, fyrir utan sorgina, er þakklæti fyrir að hafa átt þig sem afa og að stelpurnar mínar hafi fengið að kynnast þér. Emma Sól hitti naglann á höf- uðið þegar hún minntist þín núna í vikunni, en hún sagði ein- læglega: „Alltaf þegar maður hitti afa Sigga, þá var hann svo góður!“ En þannig munum við minnast þín og munum við halda minningu þinni á lofti enda eig- um við mörg skemmtileg og góð minningabrot sem munu hjálpa okkur að fylla upp í það skarð sem nú hefur verið höggvið við fráfall þitt. Bless elsku afi og takk fyrir allt. Saknaðarkveðja, Guðrún Lilja og fjölskylda. Það er með trega sem við kveðjum kæran afa okkar, sem var okkur svo kær, sem var alltaf gott að koma til og tala við um sjóinn, vinnunna, skólann og allt milli himins og jarðar. Það var stutt á milli okkar, þú bjóst í næsta húsi við okkur og var oft hlaupið út til afa og ömmu og oft- ar en ekki þegið eitthvert góð- gæti og setið og spjallað, svo var nú afi alltaf til í að skutla manni ef maður nennti ekki að labba. Um áramót var aldrei neitt mál þótt maður vísaði vinum sín- um heim í partí til ömmu og afa, alltaf tekið vel á móti öllum, allir hjartanlega velkomnir og oftar en ekki ef hann þekkti ekki ein- hvern var spurt: „og hverra manna ert þú væni/vina mín?“ Endalaust er hægt að skrifa, en hér látum við staðar numið en höldum minningu þinni á lofti um ókomna tíð og takk fyrir að vera besti afi. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Héðan skal halda heimili sitt kveður heimilisprýðin í hinsta sinn. Síðasta sinni sárt er að skilja, en heimvon góð í himininn. (Vald. Briem) Guð blessi minningu hans. Sigurður Björn, Hjörvar og Ásta Lilja. Elsku afi Siggi, við sitjum hér og skrifum þessi orð og trúum því ekki að þú sért búinn að kveðja okkur. Það er svo erfitt að lýsa því hversu mikils virði þú varst okkur. Alltaf var svo gott að koma til ykkar ömmu Lilju og best fannst ykkur þegar öll fjölskyldan var saman komin, hvort sem það voru sunnudagskaffið, spilakvöldin á jólunum eða fjölskylduferð til Kanarí. Þessar stundir og fleiri eru okkur dýrmætar nú. Ávallt var stutt í hláturinn og grínið hjá þér og alltaf var nægur tími til þess að fara með okkur í bíltúr. Þá var nú nauðsynlegt að kaupa lottó og yfirleitt græddum við Prins Póló í leiðinni. Einnig þurfti að taka bryggjurúnt til þess að kenna okkur öll bátanöfn- in, eitthvað hefur einn slíkur þó dregist á langinn þar sem Siggi nafni þinn hafði á orði að það væri ekki hann afi sem keyrði hægt heldur væri það bara bíllinn sjálf- ur sem færi svona hægt yfir. Þó sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý. Því burt varst þú kallaður á örskammri stundu. Í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða, svo fallegur, einlægur og hlýr. En örlög þín ráðin – mig setur hljóða. Við hittumst samt aftur á ný. Megi algóður guð þína sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höf. ókunnur.) Elsku afi, takk fyrir samveru- stundirnar. Sverrir, Jóna Gréta, Kristinn, Guðný Erla, Sigurður og Guðjón Týr. Sigurður Guðnason skipstjóri og stýrimaður var einn úr ógleymanlegri áhöfn Ísleifs VE á þeim árum sem við vorum munstraðir þar um borð. Í hug- anum voru þeir tímar óslitið æv- intýri. Síldveiðar í Norðursjónum og síðar loðnuveiðar hér við land voru spennandi í þá daga. Skyldi torfan nást, myndum við sigla til Þýskalands eða Danmerkur, skyldi salan verða góð og myndi allt ganga vel? Verkefni hvers dags ærin og óvissan næg. Útivist að heiman löng og mjög reyndi á félagsskapinn og samheldni með- al skipverja. Þarna var Siggi á réttum stað. Þrautreyndur sjó- maður sem alltaf vissi hvað hann átti að gera, sérlega liðtækur í netaviðgerðum og alla jafnan jafnlyndur og geðgóður. En það gat fokið í Sigga og þegar sá gáll- inn var á honum var eftir því tek- ið. Það fór ekki fram hjá neinum ef Sigga mislíkaði eitthvað. Alltaf sneri hann framhliðinni að sam- ferðamönnum og ekki var pláss fyrir neitt baktjaldamakk. En honum rann líka fljótt reiðin og aldrei hafði það sem var tilefni reiðinnar nein eftirköst. Þegar skammirnar voru gengnar yfir var það mál búið. Sumrin á Ísleifi urðu að lokum mörg og alltaf var tilhlökkun hjá okkur að komast af stað á vorin. Tilhlökkunin var ekki síst bundin félögum okkar um borð og þar var Siggi eins og klettur í sjáv- arbrimi. Nú þegar Sigurður Guðnason er kvaddur í hinsta sinn er okkur efst í huga fölskvalaus vinátta hans og söknuður eftir gömlum tímum. Við rifjum upp samveru- stundir fyrri ára og áttum okkur enn betur en fyrr hve skipsfélag- ar frá fyrri tíð eiga stóran sess í huga okkar. Ísleifsárin okkar eru auðvitað langt að baki, þótt oft sé eins og þau séu nýliðin. Það er því eðli- legt að út hópnum sé farið að kvarnast. Með Sigurði Guðnasyni er genginn góður og traustur maður, sem við teljum okkur lán- sama að hafa kynnst. Við óskum fjölskyldu hans og öðrum ástvin- um samúðar og megi minningin um Sigurð leggja líkn með þraut. Pétur Bjarnason og Ingvar Viktorsson. Sigurður Guðnason erfidrykkjur Grand Grand Hótel Reykjavík Sigtúni 38, sími: 514 8000 erfidrykkjur@grand.is www.grand.is Hlýlegt og gott viðmót Fjölbreyttar veitingar í boði Næg bílastæði og gott aðgengi Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Rvík. • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hinrik Valsson ✝ Þökkum vinarhug og hlýju við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengda- föður, afa, sonar og bróður, RÍKHARÐS MÁS HARALDSSONAR, Melagötu 8, Neskaupstað, sem lést mánudaginn 16. júní. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað og á deild B2 á Landspítalanum. Laufey Þóra Sveinsdóttir, Stefán Ríkharðsson, Kristjana Ósk Jónsdóttir, Sæunn Svana Ríkharðsdóttir,Hólmsteinn Bjarni Birgisson, Unnur Marteinsdóttir, barnabörn og aðrir aðstandendur. ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og lang- afa, GUÐMUNDAR ÁRNASONAR, fv. stöðvarstjóra hjá Pósti og síma, Hvanneyrarbraut 29, Siglufirði. Sérstakar þakkir viljum við færa hjúkrunarfólki fyrir frábæra umönnun og alúð. Regína Guðlaugsdóttir, Þóra Guðmundsdóttir, Helena Guðmundsdóttir, Böðvar Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Sonur minn og bróðir okkar, EIRÍKUR BECK STEINGRÍMSSON, Hamraborg 16, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 15. júlí kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta Krabbameinsfélagið og Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna njóta þess. Ingibjörg Beck, Bjarni Steingrímsson, Páll Steingrímsson. ✝ Elskuleg móðir okkar og systir, KRISTÍN HAFDÍS JÓNSDÓTTIR, lést á krabbameinsdeild Landspítalans miðvikudaginn 9. júlí. Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 18. júlí kl. 13.00. Ingólfur Andri Sigfússon, Hörður Róbert Árnason, Mónika Rán Kristgeirsdóttir, Ingólfur Jónsson, Guðrún Sigurhjartardóttir, Marta Ólöf Jónsdóttir og frændsystkin. ✝ Innilegar þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HENRIKS LINNET, Árskógum 6. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar. Vernharður Linnet, Anna Bryndís Kristinsdóttir, Kristján Linnet, Jónína Guðnadóttir, Jóhanna Linnet, Gunnar Þór Benjamínsson, Svanhildur Jóna Linnet, Theodore Vougiouklakis, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.