Morgunblaðið - 12.07.2014, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 12.07.2014, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014 vELFERÐARRÁÐUNEYTIÐ Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða Velferðarráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vest- fjarða (HSV). Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára frá 1. október 2014. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 með síðari breytingum. Starfssvæði stofnunarinnar önnuðust áður heilbrigðis- stofnanirnar á Ísafirði og Patreksfirði. Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðis- greinum og starfar í tengslum við háskóla á sviði fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Heilbrigðis- stofnun Vestfjarða er með fjölmennustu vinnu- stöðum á Vestfjörðum þar sem starfa að jafnaði um 200 manns í um 140 ársstörfum, ársvelta er um 1,6 milljarðar króna. Forstjóri ber ábyrgð á að HSV starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem ráðherra setur honum. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og þjónustu stofnunarinnar, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt. Forstjóri skal hafa háskólamenntun og reynslu af rekstri og stjórnun sem nýtist honum í starfi. Hann skal einnig hafa þekkingu og reynslu á sviði heilbrigðisþjónustu. Gerð er krafa um hæfni í mannlegum samskiptum ásamt leiðtogahæfileikum. Hæfni umsækjenda verður metin af nefnd skv. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 40/2007 um heilbrigðis- þjónustu. Um launakjör forstjóra fer sam- kvæmt ákvörðun kjararáðs, sbr. lög nr. 47/2006 um kjararáð. Ráðuneytið hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um embættið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sveinn Magnússon, skrifstofustjóri, sveinn.magnusson@vel.is. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil skulu berast velferðar-ráðuneytinu, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 150 Reykjavík, eða á netfangið: postur@vel.is eigi síðar en 31. júlí nk. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið hefur verið tekin. Velferðarráðuneytinu, 10. júlí 2014. Starf á skrif- stofu UMSB Ungmennasamband Borgarfjarðar óskar eftir starfsmanni á skrifstofu sambandsins í nýtt og spennandi starf á sviði tómstunda- mála í Borgarbyggð. Um er að ræða fullt starf. Helstu verkefni eru skipulagning og yfir- umsjón með íþrótta- og tómstundaskóla fyrir börn í 1.–4. bekk, sumarstarfi grunn- skólabarna og starfsemi félagsmiðstöðva í Borgarbyggð ásamt öðrum verkefnum á sviði tómstunda og íþróttamála. Menntunar- og hæfniskröfur: Menntun á sviði uppeldis-, félags- eða tómstundamála er kostur. Frumkvæði og sjálfstæði í starfi auk grunnþekkingar á tölvum, í t.d. word og excel. Þekking á íþrótta- og tómstundastarfi ungmenna er kostur. Nánari upplýsingar um starfið og starf- semi UMSB gefur framkvæmdastjóri í síma: 869 7092 eða umsb@umsb.is Umsóknarfrestur er til 23. júlí 2014 og skal skila umsóknum ásamt ferilskrá á netfangið umsb@umsb.is eða á skrifstofu UMSB á Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og verður öllum umsóknum svarað. vELFERÐARRÁÐUNEYTIÐ Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands Velferðarráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Norður- lands (HSN). Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára frá 1. október 2014. Heilbrigðisstofnun Norðurlands starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 með síðari breytingum. Starfssvæði stofnunarinnar nær frá Blönduósi til Þórshafnar og sinnir þeim verkefnum sem áður voru á herðum heilbrigðisstofnananna á Blönduósi, Sauðárkróki, Fjallabyggð, Heilbrigðisstofnun Þingeyinga og heilsugæslustöðvanna á Dalvík og Akureyri. Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðisgreinum og starfar í tengslum við háskóla á sviði fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Heilbrigðis- stofnun Norðurlands er með fjölmennustu vinnustöðum á Norðurlandi þar sem starfa að jafnaði um 450 manns í um 330 ársstörfum, ársvelta er um 4 milljarðar króna. Forstjóri ber ábyrgð á að HSN starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem ráðherra setur honum. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og þjónustu stofnunarinnar, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt. Forstjóri skal hafa háskólamenntun og reynslu af rekstri og stjórnun sem nýtist honum í starfi. Hann skal einnig hafa þekkingu og reynslu á sviði heilbrigðisþjónustu. Gerð er krafa um hæfni í mannlegum samskiptum ásamt leiðtogahæfileikum. Hæfni umsækjenda verður metin af nefnd skv. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 40/2007 um heilbrigðisþjónustu. Um launakjör forstjóra fer samkvæmt ákvörðun kjararáðs, sbr. lög nr. 47/2006 um kjararáð. Ráðuneytið hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um embættið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sveinn Magnússon, skrifstofustjóri, sveinn.magnusson@vel.is. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil skulu berast velferðarráðuneytinu, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 150 Reykjavík, eða á netfangið: postur@vel.is eigi síðar en 31. júlí nk. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið hefur verið tekin. Velferðarráðuneytinu, 10. júlí 2014. Raðauglýsingar Tilboð/útboð Bókaveisla Hin landsfræga og margrómaða júlíútsala er í fullum gangi. 50% afsláttur. Við erum í Kolaportinu, hafnarmegin í húsinu. Opið um helgina kl. 11-17. Til sölu Reykjavíkurborg Innkaupaskrifstofa Reykjavíkurborgar Borgartún 12-14, 105 Reykjavík Sími 411 1042/411 1043 Bréfsími 411 1048 Netfang: utbod@reykjavik.is SAMNINGSKAUP Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod Innkaupadeild Reykjavíkurborgar og byggðasamlagið Strætó bs., fyrir hönd Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, óskar eftir áhugasömum aðilum til þess að taka þátt í innkaupaferli um akstursþjónustu almenningssamgangna á Suðurnesjum. Samningskaup þessi eru auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Óskað er eftir umsóknum frá akstursaðilum sem geta uppfyllt lámarkskröfur laga nr. 73/2001 um fólks- og farmflutninga ásamt reglugerð nr. 528/2002 um fólksflutninga á landi. Samningskaupagögn á geisladiski verða afhent frá 15. júlí 2014 í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, Reykjavík Umsóknum skal skila eigi síðar en: kl. 14:00 þann 21. ágúst 2014 til skrifstofu Sambands Sveitafélaga á Suðurnesjum, Skógarbraut 945, 235 Reykjanesbæ. 13262

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.