Morgunblaðið - 12.07.2014, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 12.07.2014, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014 Hallur Guðmundsson fagnar í dag 44 ára afmæli sínu. Hannhyggst eyða deginum utan borgarmarkanna. „Stefnan erað fara í útilegu en það er aldrei að vita hvernig veðrið fer með þær áætlanir.“ Hann er giftur Ásdísi Huld Helgadóttur og eiga þau tvær dætur, Hildi Þóru og Helgu Guðnýju. Þegar Hallur var ungur dvaldi hann í Hollandi í eitt ár sem skipti- nemi og hefur æ síðan verið ötull stuðningsmaður hollenska lands- liðsins í knattspyrnu. Spurður hvort hann stefni því ekki á að horfa á leikinn í dag segist hann þó ekki vera viss. „Þeir fóru ansi illa með mig í síðasta leik svo ég veit ekki hvort ég horfi á leikinn. Ég hefði viljað sjá þá fara í úrslitin en þeir spiluðu því miður bara grískan varnarfótbolta á móti Argentínu,“ segir Hallur. Hallur leikur á bassa með hljómsveitunum Bad Days og Varsjár- bandalaginu ásamt því að vera staðgengill lögsögumanns Ásatrúar- félagsins. Þá vinnur hann einnig á Bókasafni Kópavogs. Í haust hyggst hann þó breyta til og setjast aftur á skólabekk. „Ég er að fara í nám á Bifröst sem kallast HHS, en í því felst hagfræði, heim- speki og stjórnmálafræði. Þetta er skemmtilega fjölþætt og ég er mjög spenntur fyrir því að hefja námið. Ætli þetta sé ekki fín gráða fyrir þá sem vita ekki hvað þeir ætla að verða þegar þeir verða stórir,“ segir Hallur kíminn. sh@mbl.is Hallur Guðmundsson er 44 ára í dag Afmælisbarn Hallur er stuðningsmaður hollenska landsliðsins en telur þó óvíst að hann horfi á viðureign dagsins við brasilíska liðið. Stefnan tekin út fyrir borgarmörkin Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Dóra María, Sigl- firðingur og starfsmaður á Ol- ís Siglufirði, átti þrítugsafmæli 10. júlí. Dóra á eina dóttur, Jónínu Guðnýju Gunn- arsdóttur, f. 2003. Systkini Dóru eru Sigurður Sverrisson, f. 1973, og Ása Guðrún Sverrisdóttir, f. 1979. Foreldrar hennar eru Sverrir Jónsson, f. 1954, og Guðný Sölvadóttir, f. 1953. Árnað heilla 30 ára Ellert Ólafsson, verkfræðingur og fram- kvæmdastjóri Tölvu- og stærð- fræðiþjónust- unnar, er 70 ára í dag, 12. júlí. Ellert tekur á móti gestum á veitingahúsinu Cata- línu í Hamraborg, Kópavogi, á milli 17 og 19 í dag. Vinir og velunnarar eru hjartanlega velkomnir. 70 ára Reykjavík Ásdís Bjarnþrúður fæddist 17. september kl. 6.22. Hún vó 3.310 g og var 47 cm löng. Foreldrar hennar eru Fanney Bjarnþrúður Þórsdóttir og Óskar Jakob Þórisson. Nýir borgarar H allfríður Ólafsdóttir fæddist í Reykjavík 12. júlí 1964 en ólst upp í Kópavogi í húsi sem foreldrar hennar byggðu á Kársnesinu. „Það var mik- ið frelsi og fjör með börnunum í göt- unni og leikirnir færðust oft niður í fjöru eða upp í álfaborgirnar á Borgarholtinu.“ Tónlistarferillinn Grunnskólanám stundaði Hall- fríður í Kársnesskóla og í Kvenna- skólanum í Reykjavík, og hún tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1984. Hallfríður stundaði því næst tónlistarnám við Tónlistar- skólann í Reykjavík og lauk einleikaraprófi og blásarakennara- prófi 1988. Þá fór hún utan til náms og hlaut Postgraduate Diploma frá Royal Northern College of Music í Manchester 1989 og Diploma of Advanced Studies frá Royal Aca- demy of Music (RAM) í London 1991. Eftir veturlangt nám í París flutti hún heim til Íslands og hefur unnið við tónlistarkennslu og flautu- leik í Reykjavík frá 1992, fyrstu árin í leikhúsum borgarinnar og í Ís- lensku óperunni, en aðalstarf hennar síðastliðin sautján ár hefur verið að leika með Sinfóníuhljómsveit Ís- lands. Var pikkolóflautuleikari hljómsveitarinnar frá janúar 1997 en aðeins tveimur árum seinna leiðari flautudeildar, 1. flauta, frá 1999. „Meðfram starfinu í hljómsveitinni hef ég leikið alls kyns kammertónlist í hjáverkum, m.a. með kammer- hópnum Camerarctica sem við hjón- in stofnuðum strax við heimkomu ásamt vinum okkar.“ Hallfríður Ólafsdóttir, tónlistarkona og rithöfundur – 50 ára Fjölskyldan Ármann, Gunnhildur Halla, Hallfríður og Tryggvi Pétur eftir tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpu þar sem Hallfríður lék einleikskonsert eftir Mozart með hljómsveitinni. Bjó til Maxímús Músíkús Stjórnandinn Við flutning á Eldi eftir Jórunni Viðar á tónleikum Kítóns, Tónafljóði, sem haldnir voru í Hörpu til þess að fagna tónlist kvenna. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Þú átt alltaf erindi til okkar Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.