Morgunblaðið - 12.07.2014, Síða 43

Morgunblaðið - 12.07.2014, Síða 43
Maxímús Músíkús „Hugmyndina að fræðsluverkefn- inu um músíkölsku músina Maxímús Músíkús fékk ég árið 2005, þegar börnin mín tvö voru á besta aldri fyrir skemmtisögur, og nú er það verðlaunaverkefni með fjórar met- sölubækur, geisladiska og tónleika. Það hefur verið mikið ævintýri að fá að vinna að þessu verkefni ásamt myndskreyti bókanna, Þórarni Má Baldurssyni, í samstarfi við Sinfóníuhljómsveitina og marga aðra aðila sem hafa stutt verkið. Bækurnar eru komnar út á sjö öðrum tungumálum og tónleikar með sögunum hafa verið haldnir víða um heim, m.a. hjá Berlínar- fílharmoníunni. Það gleður mig ósegjanlega í hvert sinn sem ég fæ sögur af börnum og fullorðnum sem hafa notið þess að heyra sögurnar og tónlistina sem fylgir þeim og pínu óraunverulegt að hugsa til þess hversu margir það eru sem hafa að- gang að honum Maxímús Músíkús núna. Það var stórkostlegt að fá æðstu viðurkenningu þjóðarinnar, Riddarakrossinn, fyrir þetta starf, núna á þjóðhátíðardaginn.“ Hallfríður hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín, m.a. Honorary Associate of the Royal Academy of Music árið 2002, en sú nafnbót veitist þeim fyrrverandi nemendum RAM sem notið hafa vel- gengni í starfi. Hún var bæjar- listamaður Garðabæjar árið 2003 og hlaut Fjöruverðlaunin og Barna- bókaverðlaun Reykjavíkurborgar ársins 2008 fyrir bókina Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina auk Riddarakross hinnar íslensku Fálkaorðu á þessu ári eins og áður sagði. „Ég er mikil baráttumanneskja fyrir því að allir eigi að fá að vera eins og þeim er eiginlegt og fá jafnan rétt, virðingu og tækifæri burtséð frá staðalímyndum og viðteknum venjum. Ég hef séð ástæðu til þess að vekja athygli á tónlist kvenna og er í stjórn Kítóns, Félags kvenna í tónlist. Okkur tókst að halda stóra tónleika til þess að fagna tónlist kvenna í Eldborgarsal Hörpu nú í vor sem vöktu mikla athygli og gríðarlega lukku.“ Fjölskylda Eiginmaður Hallfríðar er Ármann Helgason, f. 5.1. 1964, tónlistar- maður. Foreldrar hans: Ingveldur Einarsdóttir, f. 15.11. 1930, hús- freyja og hannyrðakona, og Helgi Gunnarsson, f. 4.4. 1928, d. 5.5. 1990, véltæknifræðingur og deildarstjóri Tækniskóla Íslands. Börn Hallfríðar og Ármanns eru Gunnhildur Halla, f. 27.5. 1997, og Tryggvi Pétur, f. 29.8. 1999. Systkini Hallfríðar eru Tómas Björn Ólafsson, 14.5. 1955, verk- fræðingur, María Ólafsdóttir, f. 15.7. 1960, læknir, Kristín Anna Ólafs- dóttir, f. 6.11. 1965, líffræðingur. Foreldrar Hallfríðar eru Stefanía María Pétursdóttir, f. 16.8. 1931, húsfreyja og skjalavörður auk fé- lagsstarfa í þágu kvenna, og Ólafur Tómasson, f. 26.5. 1928, verkfræð- ingur og póst- og símamálastjóri. Þau eru búsett í Kópavogi. Úr frændgarði Hallfríðar Ólafsdóttur Hallfríður Ólafsdóttir Björn Jóhannsson bóndi á Ljósavatni og ráðsmaður og smiður á Akureyri Kristín María Benediktsdóttir frá Múla í Þingeyjarsýslu, húsfreyja á Akureyri Tómas Björnsson kaupmaður á Akureyri Margrjet Þórðardóttir húsfreyja á Akureyri Ólafur Tómasson rafmagnsverkfræðingur og póst- og símamálastjóri Þórður Stefánsson Thorarensen frá Hörgárdal, gullsmiður á Akureyri Anna Jóhannsdóttir frá Eyjafirði, húsfreyja á Akureyri Björn Hinrik Guðmundsson frá Vindhælishreppi, bóndi í Skaga- firði, síðar búsettur á Siglufirði Stefanía Margrét Jóhannesdóttir frá Ólafsfirði, húsfreyja og saumakona á Siglufirði Pétur Björnsson kaupmaður á Siglufirði og fulltrúi í Reykjavík Stefanía María Pétursdóttir húsfreyja og skjalavörður í Reykjavík og Kópavogi og vann við félagsstörf í þágu kvenna Þóra Jónsdóttir húsfreyja á Siglufirði og í Reykjavík Hallfríður Þórðardóttir frá Hólum í Öxnadal, hús- freyja og hannyrðakona í Hrísey og á Siglufirði Jón Kristinn Kristinsson útvegsbóndi á Ystabæ í Hrísey og kennari og fiskmatsmaður á Siglufirði Stefán Kristinsson prestur á Völlum í Svarfaðardal Sigríður Thorlacius rithöfundur og þýðandi, vann við félagsstörf í þágu kvenna og barna Afmælisbarnið Hallfríður. ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014 Jakob Ragnar Valdimar Möllerfæddist á Stóra-Bergi á Hóla-nesi við Skagaströnd 12. júlí 1880. Foreldrar hans voru Ole Peter Christian Möller, f. 1854, d. 1917, kaupmaður, síðast á Hjalteyri, og k. h. Ingibjörg Gísladóttir, f. 1853, d. 1942, húsmóðir. Jakob lauk stúdentsprófi 1902 og stundaði verkfræðinám í Kaup- mannahöfn og læknisfræðinám í Reykjavík en lauk ekki námi. Hann var ritari í Landsbankanum í Reykjavík 1909-1915 en gerðist þá ritstjóri Vísis. Hann barðist fyrir auknu verslunarfrelsi, bauð sig fram í alþingiskosningunum 1919 og vann óvæntan sigur þegar hann felldi þá- verandi forsætisráðherra, Jón Magnússon, af þingi. Hann féll síðan af þingi 1927 þegar hann bauð sig fram fyrir Frjálslynda flokkinn. Jakob var kjörinn aftur á þing 1931 fyrir Sjálfstæðisflokkinn og sat þar óslitið þar til hann varð sendi- herra árið 1945. Hann sat einnig í bæjarstjórn Reykjavíkur 1930–1945 og var stjórnarformaður og síðar fram- kvæmdastjóri Sjúkrasamlags Reykjavíkur frá stofnun þess 1937 til 1945. Jakob varð fjármálaráðherra í þjóðstjórninni 1939 og einnig dóms- málaráðherra um tíma þar til utan- þingsstjórnin tók við 1942. Við skipan fyrsta sendiherra ís- lenska lýðveldisins í Danmörku varð Jakob Möller fyrir valinu. Hann gegndi því embætti þar til hann þurfti að segja af sér sökum aldurs. Eiginkona Jakobs var Þóra Guð- rún Þórðardóttir Möller, f. Guðjohn- sen, f. 9.11. 1887, d. 25.5. 1922, hús- móðir. Foreldrar hennar voru Þórður Guðjohnsen, verslunarstjóri á Húsavík, og Þuríður Indriðadóttir. Synir þeirra voru Gunnar Jens, framkvæmdastjóri Sjúkrasamlags Reykjavíkur, Ingólfur, skipstjóri í Reykjavík, Baldur, ráðuneytisstjóri og skákmeistari, og Þórður, yfir- læknir við Kleppsspítala. Dóttir Jak- obs og Elínar Einarsdóttur var Helga Kristín, sem giftist Thor Rich- ardssyni Thors framkvæmdastjóra. Jakob Möller lést 5.11. 1955. Merkir Íslendingar Jakob Möller 90 ára Guðrún Jónsdóttir Kristín Dagbjartsdóttir Kristín Gunnarsdóttir 85 ára Magnús Ingvi Vigfússon Ursula Einarsson 80 ára Hrafnhildur Guðmundsdóttir 75 ára Guðmundur Sigurðsson Haukur V. Guðmundsson Margrét Guðmundsdóttir 70 ára Auðbjörg Guðný Eggertsdóttir Ellert Ólafsson Herbert Hjálmarsson Ingibjörg Möller Ingigerður Axelsdóttir Jóhannes Pálmason Jóhann Sævar Guðmundsson Ólafur Ólafsson Sigrún Jósteinsdóttir Svanhildur Sigurðardóttir 60 ára Anna Kjartansdóttir Ágúst Halldórsson Árni Guðjónsson Guðjón Guðmundsson Herdís Jóna Agnarsdóttir Hólmfríður K. Zophoníasdóttir Jón Árelíus Ingólfsson Malgorzata Sabina Weyer Pétur Helgi Stefánsson Steinunn Jóhannsdóttir 50 ára Aðalheiður Guðmundsdóttir Ari Jóhannesson Björgvin Örn Jóhannsson Dagbjört S. Snæbjörnsdóttir Díana Margrét Hrafnsdóttir Hildur Sigurðardóttir Kristín Kristinsdóttir Kristjana O. Valgeirsdóttir Lovísa Björk Sigurjónsdóttir Stefán Laufdal Gíslason 40 ára Bergdís Björt Guðnadóttir Helga Berglind Valgeirsdóttir Margrét Jónsdóttir Óttar Sæmundsen Pálín Dögg Helgadóttir Rebekka Rós Ellertsdóttir Vigfús Ólafur Bjarkason 30 ára Andri Leifsson Ásdís Eir Símonardóttir Ásdís Erna Viðarsdóttir Birgir Egilsson Haraldur Gunnar Helgason Helgi Már Ólafsson Jóhanna Björt Guðbrandsdóttir Katrín Axelsdóttir Sandholt Kristinn Sigurðsson Kristrún Heiða Þórarinsd. Busk Magnús Bergur Magnússon Sigdís Þóra Sigþórsdóttir Svanur Þór Sigurðsson Sædís Arnardóttir Sunnudagur 90 ára Finnbogi Jónasson 85 ára Erla Aðalsteinsdóttir Guðrún Jörgensen 80 ára Karl Sigurðsson 75 ára Björn Þ. Guðmundsson Böðvar Valtýsson Theresa Oyinkwo Igbo 70 ára Elinóra Guðmundsdóttir Guðni Frímann Guðjónsson Gunnar M. Hansson Helga Jónsdóttir Húnn Snædal Rósbergsson Jóhann Finnsson Magnús Gíslason Sigurður Anton Hallgrímsson Sveinn Bárðarson 60 ára Bernhard Heiðdal Gísli Líndal Agnarsson Grétar Bjarni Guðjónsson Hrafnhildur Baldursdóttir Rósa Kristín Óskarsdóttir Sigurbjörn Heiðdal Smári Björgvinsson Trausti Klemenzson Þorbjörg Ragna Þórðardóttir Þórður Karlsson 50 ára Gerður Hrund Einarsdóttir Gígja Tryggvadóttir Guðrún Sigurbjörnsdóttir Haukur Jónsson Jens Magnús Magnússon Linda Björk Friðriksdóttir Margrét Harðardóttir Ólafur Baldursson Selma Jóhannesdóttir Sigurður Kristinn Friðriksson Unnur Ýr Björnsdóttir 40 ára Auður Kristín Árnadóttir Áslaug Bára Loftsdóttir Guðmundur Helgi Axelsson Gunnlaug Ragnheiður Sölvadóttir Heiðrún Guðmundsdóttir Íris Eva Bachmann Marcus Alexander Nolte 30 ára Adda Björk Ólafsdóttir Agnar Sæberg Sverrisson Aleksandra Monika Chlipala Andris Orlovs Ewelina Lul Frosti Hallfríðarson Guðríður Steingrímsdóttir Haukur Davíð Árnason Jens Harðarson Lára Ósk Hafbergsdóttir María Fernanda Reyes Orri Karlsson Signý Björg Guðlaugsdóttir Sigurjón Steinsson Stefán Berg Guðmundsson Steinunn Þóra C. Sigurðardóttir Sturla Már Hafsteinsson Thelma Gunnarsdóttir Tomasz Ryszard Borowski Wanwisa Pueon Þorvaldur Ólafsson Til hamingju með daginn Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ SPUNI Hönnuður Erla Sólveig Óskarsdóttir Veldu þinn lit úr rúmlega 50 litum sem í boði eru og við bólstrum stólinn eftir þínum óskum. STOFNAÐ 1956 Íslensk hönnun & handverk Bæjarlind 8-10 201 Kópavogur s: 510 7300 www.ag.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.