Morgunblaðið - 12.07.2014, Qupperneq 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er ekki til neins að rökræða um
stjórnmál og trúmál í dag. Taktu skref afturá-
bak og skoðaðu það af hlutlægni.
20. apríl - 20. maí
Naut Nýttu þér samskiptahæfileika þína til
hins ýtrasta. Með áreynslu skerpir þú sam-
skipti og talar við fólk sem skilur þig illa.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt verkefnin hlaðist upp máttu
ekki vanrækja sjálfan þig. Fólk kemur saman
til að halda í mikilvægar fjölskylduhefðir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér mun strax líða betur við að biðja
um hjálp frá öðrum. Ef þig langar ekki að vita
eitthvað koma upplýsingarnar upp á yfirborð-
ið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert maður að meiri ef þú fylgir sann-
færingu þinni og lætur meirihlutann ekki hafa
áhrif á þig í ákveðnu máli. Slappaðu bara af
og slakaðu á.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þetta er góður dagur til samninga-
viðræðna og hvers konar viðskipta. Aðstæður
eru ekki heppilegar núna en hver veit nema
það breytist.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að kveðja fleiri til ef þér á að
takast að ljúka ætlunarverki þínu í tæka tíð.
Aðalatriðið er að segja ekkert vanhugsað sem
þú gætir séð eftir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hafðu hugfast að þarfir fólks eru
mismunandi svo það sem er þér fyrir bestu
þarf ekki að eiga við um aðra. Gefðu þér góð-
an tíma til undirbúnings, það margborgar sig
alltaf.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ýmsir hlutir sem þú ert að velta
fyrir þér trufla einbeitingu þína í vinnu. Dag-
urinn hentar þó ekki til að kaupa bíla eða
önnur fluningatæki.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Óvænt tækifæri berst þér upp í
hendurnar og þér er fyrir bestu að nýta þér
það til hins ýtrasta. Ef þú leggur þig fram um
að ná takmarki þínu ætti þér að takast ætl-
unarverkið.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Eftirsjá er alveg gagnslaus notkun
á hugarorku. Notaðu tímann til að kynna þér
þau mál sem snerta nútíðina svo ekkert geti
komið þér á óvart úr þeirri áttinni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú gætir fundið til einangrunar og ein-
manakenndar í dag. Lyftu þér upp og fáðu
þér orkuforða til framtíðarinnar. Hringdu í
klárustu manneskjuna sem þú þekkir og byrj-
aðu hugmyndavinnuna.
Gátan fyrir viku var þessi og eft-ir Pál Jónasson í Hlíð:
Haft um stelpu orðið er,
oft í heyflekk myndast hér,
það er sumum öpum á,
í því tösku geyma má.
Svona er lausn Hörpu á Hjarðar-
felli:
Nokkuð stálpað stelpuskott
stundum rakar skott á flekk.
Apinn með sitt eigið skott
að opnu skotti bílsins gekk.
„Nú er það skott, en ekki skot,“
segir Helgi R. Einarsson:
Telpuskottið skeleggt er,
skott í flekk má sjá,
skottið apinn skondið ber,
skott er bílnum á.
Og Guðmundur Arnfinnsson:
Stelpuskottið skottast víða,
skottið myndast flekknum á,
skottin ýmsa apa prýða,
í þeim tösku geyma má.
Enn sæki ég í vísnaskjóðu Páls
Jónassonar:
Hákarl þetta heiti ber
og hafís líka, trúðu mér,
latínu sá lesa kann,
á ljósum hesti nafnið fann.
Lausnir þurfa að berast fyrir
miðvikudagskvöld.
Í gær birtist hér gömul staka,
stöguð, „Komið er gat á kjólinn
minn“ eftir séra Jón á Bægisá. Mér
láðist að geta þess, að í „Íslenskum,
þjóðlögum“ séra Bjarna Þorsteins-
sonar, bls. 849, er sérstök stemma
við hana fengin frá Vigfúsi Sigurðs-
syni á Egilsstöðum. – „Hann er
töluvert vel að sér í söng og spilar á
Harmonium“ stendur þar. Hér er
önnur vísa stöguð:
Drepur lýs á darra staf
dúka jörðin, jörðin;
hún má prísa héðan af
Hornafjörðinn, fjörðinn.
Gaman er að heyra góða kvæða-
menn kveða viðlíkar vísur undir
sínu lagi.
Þá er þessi gamla barnagæla
ekki síður skemmtileg:
Gómakvörnin gengur mín
gamni meður sínu
sómabörnin sitja fín
sitt á hvoru hnénu.
Þessi er úr ljóðabréfi Sigurðar
Breiðfjörð:
Ég er að róla um kollótt kot
kemst ei neitt af leti;
eftir jóla ringl og rot
rís ég nú úr fleti.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Gátan og gamlar vísur
stagaðar og óstagaðar
Í klípu
GÓÐ REDDING!
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HERRA DÓMARI, EF SKJÓLSTÆÐINGUR
MINN VERÐUR SÝKNAÐUR GÆTI HANN MISST
AF 10 MILLJÓN KRÓNA BÓKASAMNINGI.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... í brosinu þínu.
VÁ! SÁSTU
HANA ÞESSA?!
NEI.
EKKI ÉG HELDUR.
DR. ZOOK, ÉG ER Í SVO LÉLEGU
FORMI AÐ ÉG VERÐ MÓÐUR EF
ÉG LABBA UPP STIGA!
ÞARF ÉG
AÐ SELJA
KASTALANN
MINN?
LANGT SÍÐAN ÉG
HEF SÉÐ ÞIG.
ÉG VAR SOFANDI Í
SÍÐASTA MÁNUÐI.
Í
HEILAN
MÁNUÐ?
TJA, ÉG SNERI
MÉR Á HINA
HLIÐINA ÞANN
23.
JAHÁ! GETURÐU
EKKI SAGT ÞÉR
SJÁLFUR HVAÐ
ÞARF AÐ
GERAST?
Sá sem þetta skrifar er að öllu jöfnuseinþreyttur til vandræða en eft-
ir að hafa ekið um Álftanesveg er
mælirinn fullur.
Garðabær hefur komið sér upp
drullutipp, eða geymslusvæði fyrir
mold, rétt norðan við veginn í hvilft-
inni áður en komið er upp á Garða-
holt. Tippur þessi er gegnt garðalos-
un Garðabæjar, sem er annað
vandræðamál. Frá veginum séð lítur
tippur þessi út fyrir að vera grasi-
gróin hljóðmön en þegar betur er að
gáð er þetta í raun moldargeymsla
sem grafið er inn úr „bakdyramegin“
og mokað og upp á vörubílspalla. Þeir
sem moka moldinni upp á pallana
virðast varla starfi sínu vaxnir því oft
má sjá heilu skítahlössin hrynja af
pöllunum og niður á akveginn. Mis-
mikil umferð er í þennan tipp en engu
er líkara en sérlega mikið sé sótt í
hann í roki og rigningu. Þegar þannig
viðrar berst drullan upp á akveg og
þegar þetta er skrifað er ógeðið á
veginum slíkt að stórhætta getur
skapast þegar bílar renna í drullunni.
Stöndugt sveitarfélag eins og
Garðabær ætti að sjá sóma sinn í því
að hafa til taks vatnsbíl sem skolaði
drulluna af veginum – þótt ekki væri
til annars en að koma í veg fyrir slys,
sem óhjákvæmilega hlýtur að verða
ef heldur fram sem horfir. Er þá al-
veg ónefnd öll drullan sem lendir á
bílunum og berst um allar götur.
x x x
Staðsetning þessa drullutipps ernáttúrlega galin og fyrirfyndist
líklega hvergi annars staðar í þróuðu
borgarsamfélagi. Tippurinn var kom-
inn einhverjum árum áður en lagning
nýs Álftanesvegar hófst og virðist
ekki vera í neinum tengslum við þá
framkvæmd, en öll umgengni í kring-
um hana er til fyrirmyndar.
x x x
Það hefur verið gaman að fylgjastmeð kríunni á Álftanesi, sem
meira virðist vera af þetta árið en oft
áður. Það angrar Víkverja hins vegar
þegar fólk ryðst inn í varpið eins og
fílar í glervörubúð, að því er virðist í
þeim eina tilgangi að espa upp krí-
urnar, veifandi úlpum og prikum upp
í loftið. Er þess farið á leit að fólk láti
af þessari iðju og leyfi kríunum að
vera í friði með sitt varp.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Finnið og sjáið að Drottinn er góður,
sæll er sá maður sem leitar hælis hjá
honum. (Sálmarnir 34:9)
Útsölustaðir: Elko, Hagkaup, Bjarnabúð, Spilavinir nordicgames.is
Laser Maze
Geislabeygjandi þrautaleikur!
Beygðu og sveigðu
geislann til að ná
skotmarkinu!