Morgunblaðið - 12.07.2014, Síða 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014
Systkinin Guðrún og Kalman le
Sage de Fontenay opna myndlistar-
sýninguna Sýn / Vision í Sögusetr-
inu á Hvolsvelli í dag kl. 17. Sýning
er tileinkuð föður þeirra Jean Rob-
ert Edouard le Sage de Fontenay
sem var fæddur 12. júní 1929 og
lést 12. júlí 1987.
„Jean var mikill unnandi lista, ís-
lenskrar náttúru, sögu og menning-
ar. Á yngri árum málaði hann
myndir í abstrakt stíl bæði í olíu og
vatnslit. Hann var krökkunum sín-
um mikill innblástur og sat ósjaldan
með þeim við föndur, málun og ým-
islegt sýsl. Hann var frumkvöðull á
sviði ræktunar, uppgræðslu og fóð-
urframleiðslu í Rangárþingi eystra.
Jean kom að stofnun Stórólfsvalla-
búsins og var þar farsæll bústjóri í
áratugi við góðan orðstír,“ segir
m.a. í tilkynningu.
Guðrún og Kalman eru bæði
grafískir hönnuðir frá Myndlista-
og handíðaskóla Íslands. Guðrún
sýnir landslagsmyndir unnar með
olíu á striga, en Kalman sýnir
myndir unnar annars vegar með
vatnslitum og hins vegar í tölvu.
Sýningin stendur til 17. ágúst nk.
Sýn opnuð í
Sögusetrinu
Vatnslitamynd Mynd Kalmans le
Sage de Fontenay af Eyjafjöllum.
AF ATP
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Bandaríski herinn yfirgaf varn-arsvæði sitt í Ásbrú árið2006 eftir tæpa 60 ára veru
og sú tilfinning læddist að manni
þegar ekið var inn á svæðið að það
hefði staðið autt síðan þá. Yfirgefinn
varðturn heilsaði gestum þegar inn á
svæðið var komið, rigningarsuddinn
varpaði gráum ljóma á eyðilegar
byggingarnar í kring og fáir voru á
ferli. Einstaka illa klæddir tónleika-
gestir sáust berjast gegnvotir við
vindhviðurnar er þeir stikuðu á milli
húsa. Einhver hefur greinilega
gleymt að tjá þeim að hefðbundnar
regnhlífar séu gagnslausar í ís-
lenskri veðráttu. Fljótlega tók að
glitta í Atlantic Studios, stóra
skemmu sem hýsir stærstu tónleika
hátíðarinnar, og ágætis haf einkabíla
bar vott um að fjöldi gesta væri þó-
nokkur. Olnboga þurfti sig í gegnum
hóp skjálfandi reyksugna sem
hírðust í skemmumunnanum áður
en ylurinn og ómurinn skall á köld-
um kinnum. Það var sem rambað
hefði verið á vin í eyðimörk. Skemm-
an var troðfull af fólki og stemningin
bar þess vott að hér væri eitthvað
spennandi í vændum.
Kvikmyndir í bland við tónlist
Dagskrá tónlistarhátíðarinnar
All Tomorrow’s Parties í fyrradag
byrjaði í raun klukkan hálfþrjú þeg-
ar kvikmyndinni Me and You and
Everyone We Know, eftir banda-
ríska leikstjórann Miröndu July, var
varpað á tjald í bíósalnum Keili.
Meðlimir ensku sveitarinnar Portis-
head, sem kemur einmitt fram á há-
tíðinni, hafa valið fjölda kvikmynda
til sýningar yfir helgina sem gestir
hátíðarinnar hafa jafnan aðgang að.
Fátt fer jafn vel saman og tónlist og
kvikmyndir og slík skipan tónlist-
arhátíðar því til eftirbreytni. Meðal
annarra mynda sem sýndar voru í
gær má nefna Djúpið eftir Baltasar
Kormák og hina margverðlaunuðu
dönsku mynd Jagten eftir Thomas
Vinterberg.
Íslensku lífstíðarrokkararnir í
HAM opnuðu dagskrána í Andrew’s
Himnar opnast yf-
ir háværri herstöð
Theater og var ágætur fjöldi manns
mættur í salinn til að berja kappana
augum. Þeim fylgdi síðan Spirituali-
zed Acoustic Mainline sem stökk í
skarðið fyrir bandarísku rokksveit-
ina Swans sem þurfti að draga sig úr
leik sökum veikinda. Ekki var að sjá
að um uppfyllingu væri að ræða og
almenn ánægja á meðal tónleika-
gesta. Skipuleggjendur hátíðarinnar
hafa staðið sig vel í að dreifa hljóm-
sveitum á milli Atlantic Studios og
Andrew’s Theater svo tónleikarnir
skarist ekki og bæði sviðin eru nokk-
uð heillandi. Sá galli er hins vegar á
gjöf Njarðar að sviðin eru fremur
langt hvort frá öðru og íslenskir veð-
urguðir ekki þekktir fyrir miskunn-
semi. Það enduðu því margir í plötu-
snúðatjaldinu fyrir utan Atlantic
Studios þegar þeir ætluðu að bregða
sér yfir á hitt sviðið. Þar var auk
þess ágætis stemning en meðlimir
Mogwai, Spiritualized og Fuck Butt-
ons sáu meðal annars um að halda
fjörinu gangandi.
Hljóðveggur og gítarsarg
Hægkjarnarokksveitin Low var
fyrst til að stíga á svið í Atlantic
Studios en henni fylgdi bandaríska
sveitin Shellac með hinn umdeilda
Steve Albini í fararbroddi. Sviðs-
framkoma sveitarinnar var fremur
frumleg en trommarinn fékk mikla
athygli. Tilraunakennt hávaðarokkið
skilaði sér ágætlega út í salinn þar
sem áheyrendur skiluðu hávaðanum
til baka í formi klapps. Þá var komið
að hinum hárprúða Kurt Vile sem
steig á pall ásamt sveit sinni, The
Violators. Undirritaður er mikill
fylgjandi þeirrar jarðbundnu indí-
rokkssenu sem Vile tilheyrir og
plata kappans, Smoke Ring for My
Halo, verður að teljast með betri
plötum ársins 2011. Platan Wakin on
a Pretty Daze er að sama skapi
virkilega fín og lagið „Never Run
Away“ fangar allt það sem senan
snýst um. Hápunktur tónleika hans
var engu að síður þegar lagið „Jesus
Fever“ af Smoke Ring for My Halo
var tekið. Það er í raun eina lag hans
sem er betra í lifandi flutningi en í
heyrnartólum. Sviðsframkoma
kauða er nefnilega fremur lág-
stemmd og bætir litlu við annars frá-
bæra tónlist.
Síðrokksrisarnir í Mogwai voru
síðastir til að troða upp en Skotarnir
gerðu það líka með glæsibrag. Sveit-
in hefur fyrir löngu fest sig í sessi
sem ein mikilvægasta síðrokkssveit
síðustu tveggja áratuga. Tónlistin er
á köflum mjög angurvær og lög á
borð við „Tracy“, „Take Me Some-
where Nice“, „Summer“ og „I Know
You Are, But What Am I?“ með fal-
legri lögum sem maður hefur heyrt.
Allt annað var þó upp á teningnum í
gærkvöldi og þvílíkan kraft hefur
maður sjaldan heyrt. Sveitin var
ofurþétt og hljóðveggurinn skall aft-
ur og aftur á áheyrendum með mjög
svo samstilltu gítarsargi. Sveitin
varpaði listaverki af nýútkominni
plötu sinni, Rave Tapes, á vegginn
fyrir aftan sviðið og kom það vel út í
bland við ljósasýningu sem var
örugglega ekki ætluð flogaveikum.
Lög af nýju plötunni voru tekin í
bland við gömul og hljóðgervillinn
fékk að njóta sín. Gamli slagarinn
„Ithica 27-9“ var mjög skemmti-
legur í lifandi flutningi og djöfulsins
krafturinn ætlaði að æra allt og alla.
Tónlistarmaðurinn og skáldið Luke
Sutherland kom auk þess mjög
ferskur inn og féll fiðluspil hans vel
saman við þungt sveimrokkið.
Mogwai lauk þar með fyrsta kvöldi
hátíðarinnar, sem verður frekar
minnst fyrir góða tónlist en veð-
urblíðu, enda um tónlistarhátíð að
ræða en ekki sauruga útihátíð. Þess
má geta að lögreglan beið eftir öku-
mönnum sem hugðust halda út á
Reykjanesbrautina og voru allir
látnir blása, sér og öðrum til öryggis
– góð fyrirmynd í samræmi við
kvöldið í heild.
»Hápunktur tón-leika hans var engu
að síður þegar lagið
„Jesus Fever“ af Smoke
Ring for My Halo var
tekið. Það er í raun eina
lag hans sem er betra í
lifandi flutningi en í
heyrnartólum.
All Tomorrow’s Parties 2014
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
13. júlí, Íslenski safnadagurinn: Ókeypis aðgangur
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
Svipmyndir eins augnabliks. Ljósmyndir Þorsteins Jósepssonar í Myndasal
Natríum sól á Veggnum, Innblástur á Torgi
Silfur Íslands í Bogasal, Silfursmiður í hjáverkum í Horni
Skemmtilegir ratleikir • Safnbúð og kaffihús
Opið í Nesstofu alla daga frá 13-17.
Leiðsögn um Urtagarðinn kl. 14, skemmtileg verkefni fyrir fjölskylduna í Nesstofu
Húsasafnið opið víða um land, nánar á heimasíðu
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið frá 10-17 alla daga.
Listasafn Reykjanesbæjar
DÆMISÖGUR ÚR DRAUMALANDINU
Karolína Lárusdóttir
29. maí – 17. ágúst
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Bátasafn Gríms Karlssonar
Hönnunarklasinn Maris
Listasafn Erlings Jónssonar
Opið virka daga 12-17,
helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
Ummerki sköpunar
Úrval nýrra verka
úr safneign Hafnarborgar
Sunnudagur 13. júlí
fjölbreytt dagskrá
á íslenska safnadaginn
fjölskylduleiðsögn, vinnustofa,
samtöl við listamenn, gönguferðir
Opið 12-17,
fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga.
www.hafnarborg.is, sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Verið
velkomin
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Leiðsögn Ástríðar
Magnúsdóttur sunnudag kl. 14
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 10-17, lokað mánudaga.
SPOR Í SANDI, Sigurjón Ólafsson - Yfirlitssýning 23.5. - 26.10. 2014
Sunnudagsleiðsögn kl. 14 - Halldór Björn Runólfsson safnstjóri - Ókeypis aðgangur
Í LJÓSASKIPTUNUM 5.7.-26.10. 2014
>>EKTA LOSTÆTI Úrval brasilískra myndbanda á kaffistofu safnsins
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906
SPOR Í SANDI, Sigurjón Ólafsson Yfirlitssýning 24.5. - 29.11. 2014
Sunnudagsleiðsögn kl. 14:30 - Birgitta Spur sýningarstjóri - Ókeypis aðgangur
Opið alla daga kl. 14-17, lokað mánudaga. www.lso.is
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sýningarnar, HÚSAFELL ÁSGRÍMS og FORYNJUR.
Sunnudagsleiðsögn kl. 15 - Eyrún Óskarsdóttir listfræðingur - Ókeypis aðgangur
Opið sunnudaga kl. 14-17.
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is