Morgunblaðið - 12.07.2014, Síða 47
Ljósmynd/leroefotos.com
Ljósmynd/Birta Rán
Ljúfir Sviðsframkoma Kurt Vile
and the Violators var mjög jarð-
bundin en lagið Jesus Fever var
hápunktur tónleika sveitarinnar.
Síðrokk Luke Sutherland var flottur á fiðlunni með Skotunum í Mogwai.
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014
Regnbogapönk nefnist sýning með
verkum eftir Gunnhildi Þórðar-
dóttur sem opnuð verður í Slúnka-
ríki á Ísafirði í dag kl. 17.
„Titill sýningarinnar hefur skír-
skotun í hið mikla litaval regnbog-
ans, í pönk og DIY-menningu. Gunn-
hildur skoðar pönkið sem samfélags-
legt tæki til að hafna ríkjandi
viðhorfum og neyslusamfélaginu.
Sýningin fjallar um þörf mannsins
til að gera hlutina á eigin forsendum
og nauðsyn grasrótarstarfsemi í
hverju samfélagi,“ segir m.a. í til-
kynningu. Þar kemur fram að Gunn-
hildur nýtir efni sem til fellur og
endurnýtir í listaverk en sjálfbærni
er henni ofarlega í huga.
Í tengslum við sýninguna gefur
Gunnhildur út ljóðabókina Gerðu
það sjálf ljóð/DIYPoetry. Á morgun,
sunnudag, er íslenski safnadagurinn
og þá tekur Gunnhildur þátt í lista-
mannaspjalli kl. 12.
Gunnhildur lauk BA í listasögu og
fagurlistum frá Listaháskólanum í
Cambridge árið 2003 og MA í list-
stjórnun frá sama skóla árið 2006.
Þetta er 14. einkasýning Gunn-
hildar, en hún hefur einnig tekið þátt
í fjölda samsýninga bæði hér- og er-
lendis. Sýningin stendur til 9. ágúst
og er safnið opið alla daga kl. 12-22.
Ókeypis aðgangur. Nánari upplýs-
ingar um sýninguna eru á edinborg-
.is og gunnhildurthordardottir.com.
Regnbogapönk í Slúnkaríki
Sjálfbærni Gunnhildur Þórðardóttir nýtir efni sem til fellur og endurnýtir í
listaverk á Regnbogapönki en sjálfbærni er henni ofarlega í huga.
Dagskráin í dag á tónlistar-
hátíðinni All Tomorrow’s Parties
í Ásbrú er með góðu sniði.
Dagurinn hefst í bíósalnum
Keili, þar sem Wilbur Wants to
Kill Himself, All Is Lost, Bad-
lands og Rollerball verða sýndar
auk þess sem boðið verður upp
á „pop-quiz“ með Lord Sinclair.
Sveitirnar Fufanu, Kría Brekkan,
Eaux, Pharmakon og The Haxan
Cloak stíga á stokk í Andrews
Theater en Forest Swords, Sin
Fang, For a Minor Reflection, I
Break Horses, Devendra Ban-
hart, Interpol og Singapore
Sling ríða á vaðið í Atlantic
Studios. Plötusnúðarnir Benson
Is Fantastic, Declan Allen, Ben
Power og Barry Hogan halda
síðan stuðinu gangandi í plötu-
snúðatjaldinu svokallaða.
Interpol í Atl-
antic Studios
DAGSKRÁ ATP Í DAG
Sýningarsalur í Skipholti 35 • Seljabót 7, Grindavík • www.pgv.is • Sími 510 9700
• Barnalæsing
• Mikil einangrun
• CE vottuð framleiðsla
• Sérsmíði eftir málum
• Glerjað að innan
• Áratuga ending
• Næturöndun
VELDU VIÐHALDSFRÍTT
PVC gluggar og hurðir - íslensk framleiðsla fyrir íslenskt veðurfar