Morgunblaðið - 12.07.2014, Síða 48

Morgunblaðið - 12.07.2014, Síða 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014 Gamanmynd um feitan, mið-aldra karl og fyrrverandibarnastjörnu í salsa semákveður að rifja upp gamla salsatakta til að ganga í augun á íðilfögrum yfirmanni sínum og tak- ast um leið á við sjálfumglaðan sam- starfsmann sinn sem girnist yfir- manninn fagra. Hljómar ágætlega, ekki satt og ætti ekki að klikka. En það klikkar engu að síður, þrátt fyrir ágætan leikarahóp, fjöruga tónlist og litríkar pallíettuskyrtur. Cuban Fury stendur ekki undir nafni sem gam- anmynd fyrr en í miðja mynd er komið. Fram að því er í mesta lagi hægt að flissa með nefinu. Í byrjun myndar kemur fram að söguhetjan, Bruce Garrett, var sem ungur drengur einn færasti salsa- dansari Englands en hætti að dansa eftir að hópur drengja gekk í skrokk á honum fyrir dansiðkunina. Garrett er einhleypur feitlaginn skrifstofu- maður með lítið sjálfstraust og lætur óþolandi samstarfsmann sinn, hinn sjálfumglaða Drew, niðurlægja sig daglega í vinnunni. Dag einn er nýr forstjóri fyrirtækisins sem þeir starfa fyrir kynntur til sögunnar, hin fagra Julia, og verður Garrett ást- fanginn af henni en Drew setur sér það markmið að fleka hana. Garrett kemst að því að Julia stundar salsa- dans af ástríðu, sér sér leik á borði og fer að rifja upp gamla takta á nám- skeiði. Áætlun Garretts um að dansa sér leið að hjarta Juliu virðist þó ekki ætla að virka því Drew er sífellt í vegi fyrir honum. Þótt myndin sé álíka laus við grín og undanrenna við fitu þá eru ein- staka atriði skondin í henni. Ber þar hæst dansbardaga Garretts og Drews á bílastæði og skondinn náunga, Bejan, sem Garrett kynnist á salsanámskeiði og leggur honum línurnar hvað varðar útlit og fram- komu. Felst það m.a. í að raka af sér bringuhár, maka sig í brúnkukremi og klæðast flegnum og glansandi skyrtum. Kayvan Novak leikur Bej- an og er langfyndnastur í myndinni þó að vísu þurfi ekki mikið til. Chris O’Dowd er aftur á móti hræðilega pirrandi í hlutverki Drews, í raun svo óþolandi að það er varla hægt að hlæja að honum. Rashida Jones leik- ur Juliu með prýði en fær ekki úr miklu að moða þegar kemur að gríni. Karlarnir eru kjánar og konurnar hafa vit fyrir þeim og ein þeirra er systir Garretts, leikin af hinni marg- verðlaunuðu Oliviu Colman. Líkt og í tilfelli Jones er hlutverk hennar rýrt. Myndin er kynnt sem dansgam- anmynd en það er alltof lítið dansað í henni. Leikstjórinn hefði mátt nýta betur þokkalausan dans Nicks Frosts sem leikur Garrett. Í mynd- inni á hann að heilla alla með danstilburðum sínum sem er í raun hlægilegt því Frost er greinilega lé- legur dansari. Betur hefði farið á því að láta Garrett vera gersneyddan hæfileikum á dansgólfinu, þá hefði áætlun hans verið fjarstæðukenndari og fyndnari. Cuban Fury er ekki alslæm, hún á sína góðu spretti en á heildina litið er þetta slök gamanmynd. Salsa-menn Nick Frost og Kayvan Novak í hlutverkum salsa-félaganna Garrett og Bejan í dans- og gamanmyndinni Cuban Fury. Grínskert gamanmynd Sambíóin Cuban Fury bbnnn Leikstjóri: James Griffiths. Aðalleikarar: Chris O’Dowd, Ian McShane, Nick Frost, Olivia Colman og Rashida Jones. Bretland, 2014. 98 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Tónlistarmennirnir KK og Magnús Eiríksson koma fram á Kaffi Rósen- berg í kvöld kl. 22. Félagana þarf vart að kynna, báðir löngu orðnir þjóðkunnir og hafa komið víða við í tónlistinni, leikið djass, rokk, blús, sálartónlist, þjóðlög, rútubíla- söngva og sjómannalög. Á tónleik- unum spila þeir lög úr lagasafni hvor annars auk sameiginlegra lagasmíða en þeir hafa gefið út þrjár plötur með eigin efni. KK og Maggi í kvöld á Kaffi Rósenberg Tvíeyki Magnús Eiríksson og KK. Morgunblaðið/Sverrir Þemalag hátíð- arinnar Ein með öllu, sem haldin verður á Ak- ureyri 31. júlí til 4. ágúst, er komið út og nefnist það „Kossar og kandífloss (Ein með öllu 2014)“ og flutt af Summagleðinni. Í Summagleðinni eru Summi Hvanndal, bassaleik- ari og söngvari; Magni Ásgeirs- son, gítarleikari og söngvari; söngvarinn Valur Freyr og Haukur Pálmason slagverksleik- ari. Lagið samdi Summi Hvanndal en textann Summagleðin. Þeir sem vilja hlusta á lagið geta gert það á myndbandavefnum YouTube, á vefslóðinni www.youtube.com/ watch?v=FaIWiKMbwVs&feat- ure=youtu.be. Kossar og kandí- floss í Summagleði Magni Ásgeirsson tónlistarmaður Age of Extinction hefst fjórum árum eftir atburðina og uppgjörið í síðustu mynd, Dark of the Moon. Mark Wahlberg fer með hlutverk einstæðs föður sem dag einn kaupir gamlan trukk eða sjálfan Optimus Prime. Metacritic 32/100 IMDB 6.4/10 Sambíóin Álfabakka 14:00 3D, 17:15 3D, 20:30 3D, 22:20 Sambíóin Kringlunni 15:00, 18:15 3D, 21:30 3D Samb. Egilshöll 14:30, 16:40, 19:00, 20:00 3D, 22:10 3D Sambíóin Keflavík 22:10 3D Sambíóin Akureyri 14:30, 17:00 3D, 22:20 3D Transformers: Age of Extinction Sabotage er nýjasta mynd leik- stjórans og handritshöfundarins David Ayer sem sendi frá sér hina mögnuðu mynd End of Watch. Mbl. bbnnn Metacritic 42/100 IMDB 6.2/10 Sambíóin Álfabakka 20:00, 22:20 Sambíóin Egilshöll 20:00, 22:20 Sambíóin Akureyri 22:20 Sabotage 16 Þeir Nick Frost og Chris O’Dowd fara á kostum sem ólíklegustu salsakóngar í heimi. Mbl. bbnnn Metacritic 52/100 IMDB 6.3/10 Sambíóin Álfabakka 15:40, 20:00, 22:10 Sambíóin Kringlunni 17:50, 20:00 Sambíóin Akureyri 20:00 Sambíóin Keflavík 20:00 Cuban Fury Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is Tammy 12 Metacritic 39/100 IMDB 4.6/10 Sambíóin Álfabakka 13:30, 13:30 (VIP), 15:40, 15:40 (VIP), 17:50, 17:50 (VIP), 20:00, 20:00 (VIP), 22:20, 22:20 (VIP) Sambíóin Kringlunni 17:50, 20:00, 22:10 Sambíóin Egilshöll 15:30, 17:50, 20:00, 22:20 Sambíóin Akureyri 20:15 Sambíóin Keflavík 17:50, 20:00 Deliver Us from Evil 16 Metacritic 41/100 IMDB 6.6/10 Sambíóin Keflavík 22:15 Smárabíó 17:00, 20:00, 20:00 (LÚX), 22:35, 22:35 (LÚX) Borgarbíó Akureyri 20:00, 22:10 Háskólabíó 20:00, 22:35 Laugarásbíó 22:00 Earth to Echo Metacritic 52/100 IMDB 5.9/10 Smárabíó 13:00, 15:30, 17:40 Háskólabíó 15:40, 17:50 Laugarásbíó 14:00, 16:00, 18:00, 20:00 Borgarbíó Akureyri 15:40, 17:40 The Salvation 16 The Salvation er vestri með Mads Mikkelsen, sem sló síðast rækilega í gegn hér- lendis í kvikmyndinni Jagten, og Evu Green í aðal- hlutverkum. Myndin þykir sverja sig í ætt við hefð- bundna vestrahefð með svolítið skandinavískum snúningi. Mbl.bbbnn Metacritic 60/100 IMDB 7.5/10 Smárabíó 20:00, 22:10 Tarzan IMDB 4.7/10 Sambíóin Álfabakka 13:30, 15:40, 17:50 Sambíóin Akureyri 14:30, 17:50 Sambíóin Keflavík 15:40, 17:50 Sambíóin Egilshöll 14:30, 16:50 Sambíóin Kringlunni 15:40 Maleficent Sögumaður segir frá sögu valdamikillar álfkonu sem lifir í mýri skammt frá landa- mærum konungsríkis manna. Metacritic 56/100 IMDB 7,4/10 Sambíóin Álfabakka 13:30, 15:40, 17:50, 20:00 Sambíóin Egilshöll 14:30, 17:50 Edge of Tomorrow 12 Hermaður ferðast um tíma og rúm í stríði við geimverur. Mbl. bbbbn Metacritic 71/100 IMDB 8,2/10 Sambíóin Kringlunni 22:10 X-Men: Days of Future Past 12 Metacritic 74/100 IMDB 8.4/10 Háskólabíó 22:10 3D 22 Jump Street Eftir að hafa þraukað tvisvar sinnum í gegnum mennta- skóla bregða lögregluþjón- arnir Schmidt og Jenko sér í dulargervi í háskóla. Mbl. bbbmn Metacritic 71/100 IMDB 8,0/10 Laugarásbíó 20:00, 22:20 Smárabíó 20:00, 22:30 Háskólabíó 22:40 Borgarbíó Akureyri 20:00, 22:10 Að temja dreka sinn 2 Þegar Hiksti og Tannlaus uppgötva íshelli sem hýsir hundruð villtra dreka ásamt dularfullri persónu finna þeir sig í miðri baráttu um að vernda friðinn. Mbl. bbbnn Metacritic 77/100 IMDB 8,6/10 Laugarásbíó 14:00, 17:00 Smárabíó 13:00, 13:00 3D, 15:15, 15:15 3D, 17:30,, 17:30 3D Háskólabíó 15:00, 17:45, 20:00 Borgarbíó Akureyri 15:40 Jónsi og ridd- arareglan IMDB 6.0/10 Sambíóin Álfabakka 13:30 Vonarstræti 12 Mbl. bbbbm IMDB 8,5/10 Laugarásbíó 16:30, 19:30 Smárabíó 14:00 (LÚX), 17:00 (LÚX), 20:00, 22:40 Háskólabíó 15:00, 17:20, 20:00 Borgarbíó Akureyri 17:40 The Fault in Our Stars Mbl. bbbnn Metacritic 69/100 IMDB 8.4/10 Háskólabíó 17:20, 20:00, 22:40 Blended Eftir að hafa farið á slæmt stefnumót lenda Jim og Lauren í því að vera föst saman á hóteli með fjöl- skyldum sínum. Metacritic 31/100 IMDB 6,2/10 Sambíóin Álfabakka 17:40 A Million Ways to Die in the West 16 Mbl.bbmnn Metacritic 45/100 IMDB 6,3/10 Laugarásbíó 22:10 Heima IMDB 8.6/10 Bíó Paradís 22:00 Hross í Oss Mbl. bbbbn IMDB 7.2/10 Bíó Paradís 20:00 Eldfjall IMDB 7.2/10 Mbl. bbbbm Bíó Paradís 18:00 Andri og Edda Bíó Paradís 16:00 Antboy IMDB 5.6/10 Bíó Paradís 15:30 Clip IMDB 5.9/10 Bíó Paradís 22:00 Only in New York Bíó Paradís 20:00 The Gambler IMDB 7.9/10 Bíó Paradís 17:50 Welcome to New York 16 Mbl. bbbnn Metacritic 68/100 IMDB 5.1/10 Bíó Paradís 17:20 Kvikmyndir bíóhúsanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.