Morgunblaðið - 12.07.2014, Page 49

Morgunblaðið - 12.07.2014, Page 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Það hefur verið æði sérstaktað fylgjast með ferli Morr-isseys í gegnum tíðina en maður er kominn á þann aldur að muna tímana tvenna, ef ekki þrenna, hvað það varðar. Er hann starfaði með Smiths varð hann að nokkurs konar hálfguði á ör- skömmum tíma en eftir að sú sveit lagði upp laupana árið 1987 hafa í listrænu tilliti skipst á skin og skúrir. Goðsögnin hefur þó styrkst jafnt og þétt með hverju árinu og dulmagnið í kringum þennan „athyglisverða“ mann, ef ég má orða það svo, verður æ meira. Í dag er það ekki endilega tónlistin sem fær fólk í gang; stingandi yfirlýsingar um menn og málefni eru iðulega fréttamat- ur og sú staðreynd að Morrissey er iðulega í hvarfi frá þeytivindu hins daglega amsturs hefur gert hann að nokkurs konar Stanley Kubrick dægurtónlistarinnar. Læti Sólóferill Morrisseys hófst með látum, Viva Hate (1988) er prýðisplata og smáskífurnar þar í kring eðall. Eftir að hafa runnið á rassinn með hinni værðarlegu Kill Uncle (1991) náði hann vopnum á nýjan leik með Your Arsenal (1992) og næstu ár voru gifturík meira og minna en margir sverja og sárt við leggja að meist- araverk hans sé Vauxhall and I (1994) þó að sú söguskoðun sé til- tölulega ný af nálinni. Þegar Maladjusted (1997) kom út var áhugi á Morrissey orðinn lítill og næstu ár hvarf hann sjónum. Aftur sneri hann svo árið 2004 með You Are the Quarry og tvær plötur fylgdu í kjölfarið. Með nýjustu plötunni er hann að rjúfa fimm ára þögn á út- gáfusviðinu og þó að plöturnar séu svona og svona þá býr Morr- issey yfir miklu aðdráttarafli hvað tónleika varðar, sem eru iðulega vel sóttir. Hann er nú á stalli með þessum rosknu rokkstjörnum sem „Túllinn“ snýr aftur Ekki allra World Peace Is None of Your Business er tíunda hljóðsversplata Morrisseys. selja upp tónleika trekk í trekk þrátt fyrir að útgáfutíðnin sé ekki neitt merkileg. Gamalgróið Síðasta haust var mikill sirk- us í kringum sjálfsævisögu Morr- isseys sem var gefin út sem „Penguin Classic“, nokkuð sem þótti vera ekta Morrissey. Áhugi hans á heimsþekktum menningar- vörumerkjum er þekktur og þann- ig var His Master’s Voice t.a.m. endurvakið á sínum tíma, ein- göngu til að gefa út plötur Morr- isseys. Og í janúar á þessu ári gekk hann inn í svipaðar pæl- ingar er hann skrifaði undir samning við hið gamalgróna Har- vest Records, sem tilheyrir Capi- tol Records. Fyrir tveimur árum talaði Morrissey reyndar um að setjast í helgan stein en hann hef- ur greinilega endurskoðað þær áætlanir og það þrátt fyrir að veikindi hafi plagað hann nokkuð að undanförnu. Samningurinn við Harvest hljómar þannig upp á tvær plötur en auk þess vinnur hann að skáldsögu. Platan var tekin upp af Joe Chiccarelli (White Stripes, Beck, Strokes) og hljómsveit Morrisseys sá um spilamennskuna. Lögum af henni hefur verið lekið út í formi sérkennilegra kynningarmynd- banda þar sem Morrissey fer með texta lagana við naumhyggjuleg- an undirleik. Pamela Anderson kíkir t.d. í heimsókn í einu þeirra. Ekta Morrissey. Mojo hefur þegar lýst því yfir að þetta sé besta plata Morrisseys í tuttugu ár á meðan Stephen Thomas Erlewine, aðalritstjóri allmusic.com, lýsti því á Fésbók- inni að þetta væri skrítnasta plata Morrisseys til þessa. Aðspurður hvort hann meinti „Southpaw Grammar“ (plata Morrisseys frá 1995 sem byrjar á ellefu mínútna lagi) sagði hann: „Algerlega.“ Sitt sýnist hverjum að vanda og þið sem þetta lesið getið rannsakað þetta sjálf frá og með mánudeg- inum. Í öllu falli er „túllinn“ snú- inn aftur. » Fyrir tveimur ár-um talaði Morrissey reyndar um að setjast í helgan stein en hann hefur greinilega endur- skoðað þær áætlanir …  Morrissey verður æ meiri ugluspeg- ill eftir því sem árin líða  Nýjasta plata kappans kallast World Peace Is None of Your Business Tvær myndlistarsýningar verða opnaðar í sýningarsalnum Anarkíu, Hamraborg 3 í Kópavogi, í dag kl. 15, annars vegar sýning Huldu Vil- hjálmsdóttur og hins vegar sýning Jóhönnu V. Þórhallsdóttur. Yf- irskrift sýningar Huldu er Trén í kring og sýnir Hulda fimm stór ol- íumálverk sem öll snúast um sama viðfangsefni: Svefnherbergið og rúmið. „Í myndunum vekur hún upp undraheim svefnherbergisins þar sem við dveljum svo stóran hluta ævinnar en er þó fyrir okkur eins og annar heimur, heimur svefns og drauma,“ segir í tilkynn- ingu. Sýning Jóhönnu, sem er söng- kona og kórstjóri, nefnist Þögli kórinn og er fyrsta einkasýning hennar. „Jóhanna stjórnaði um árabil ótal munnum og augum með tónsprota sínum. Hún las í svipbrigði kórsins og stillti saman hreyfingar andlita og raddbanda. Jafnframt skynjaði hún þær tilfinningar sem andlitið bæði felur og opinberar. Myndverk hennar fjalla um öll þessi syngjandi andlit og þær tilfinningar sem búa að baki,“ segir m.a. um verk hennar í tilkynningu. Svefnherbergið Hulda Vilhjálms- dóttir við eitt verka sinna. Hulda og Jóhanna sýna í Anarkíu Andlit Málverk eftir Jóhönnu V. Þórhallsdóttur af sýningu hennar. L L L 16 16 12 ★ ★ ★ ★ ★ ÍSL. TAL „Besta íslenska kvikmynd sögunnar!” Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Fréttablaðið Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar EARTH TO ECHO Sýnd kl. 2 - 4 - 6 - 8 DELIVER US FROM EVIL Sýnd kl. 10 VONARSTRÆTI Sýnd kl. 4:30 - 7:30 22 JUMP STREET Sýnd kl. 8 - 10:20 MILLIONWAYS TO DIE Sýnd kl. 10:10 AÐ TEMJA DREKANN 2D Sýnd kl. 2 - 5 TÖFRALANDIÐ OZ 2D Sýnd kl. 2 14ÍSL. TAL TÖFRANDI MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA "Þú sérð ekki fyndnari mynd í sumar!" -T.V., Biovefurinn.is "Ég hló svo mikið að ég skammaðist mín”!" -Guardian Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.