Morgunblaðið - 12.07.2014, Síða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. JÚLÍ 2014
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Það hefur verið æði sérstaktað fylgjast með ferli Morr-isseys í gegnum tíðina en
maður er kominn á þann aldur að
muna tímana tvenna, ef ekki
þrenna, hvað það varðar. Er hann
starfaði með Smiths varð hann að
nokkurs konar hálfguði á ör-
skömmum tíma en eftir að sú
sveit lagði upp laupana árið 1987
hafa í listrænu tilliti skipst á skin
og skúrir. Goðsögnin hefur þó
styrkst jafnt og þétt með hverju
árinu og dulmagnið í kringum
þennan „athyglisverða“ mann, ef
ég má orða það svo, verður æ
meira.
Í dag er það ekki endilega
tónlistin sem fær fólk í gang;
stingandi yfirlýsingar um menn
og málefni eru iðulega fréttamat-
ur og sú staðreynd að Morrissey
er iðulega í hvarfi frá þeytivindu
hins daglega amsturs hefur gert
hann að nokkurs konar Stanley
Kubrick dægurtónlistarinnar.
Læti
Sólóferill Morrisseys hófst
með látum, Viva Hate (1988) er
prýðisplata og smáskífurnar þar í
kring eðall. Eftir að hafa runnið á
rassinn með hinni værðarlegu Kill
Uncle (1991) náði hann vopnum á
nýjan leik með Your Arsenal
(1992) og næstu ár voru gifturík
meira og minna en margir sverja
og sárt við leggja að meist-
araverk hans sé Vauxhall and I
(1994) þó að sú söguskoðun sé til-
tölulega ný af nálinni.
Þegar Maladjusted (1997)
kom út var áhugi á Morrissey
orðinn lítill og næstu ár hvarf
hann sjónum. Aftur sneri hann
svo árið 2004 með You Are the
Quarry og tvær plötur fylgdu í
kjölfarið. Með nýjustu plötunni er
hann að rjúfa fimm ára þögn á út-
gáfusviðinu og þó að plöturnar
séu svona og svona þá býr Morr-
issey yfir miklu aðdráttarafli hvað
tónleika varðar, sem eru iðulega
vel sóttir. Hann er nú á stalli með
þessum rosknu rokkstjörnum sem
„Túllinn“ snýr aftur
Ekki allra World Peace Is None of Your Business er tíunda hljóðsversplata Morrisseys.
selja upp tónleika trekk í trekk
þrátt fyrir að útgáfutíðnin sé ekki
neitt merkileg.
Gamalgróið
Síðasta haust var mikill sirk-
us í kringum sjálfsævisögu Morr-
isseys sem var gefin út sem
„Penguin Classic“, nokkuð sem
þótti vera ekta Morrissey. Áhugi
hans á heimsþekktum menningar-
vörumerkjum er þekktur og þann-
ig var His Master’s Voice t.a.m.
endurvakið á sínum tíma, ein-
göngu til að gefa út plötur Morr-
isseys. Og í janúar á þessu ári
gekk hann inn í svipaðar pæl-
ingar er hann skrifaði undir
samning við hið gamalgróna Har-
vest Records, sem tilheyrir Capi-
tol Records. Fyrir tveimur árum
talaði Morrissey reyndar um að
setjast í helgan stein en hann hef-
ur greinilega endurskoðað þær
áætlanir og það þrátt fyrir að
veikindi hafi plagað hann nokkuð
að undanförnu. Samningurinn við
Harvest hljómar þannig upp á
tvær plötur en auk þess vinnur
hann að skáldsögu.
Platan var tekin upp af Joe
Chiccarelli (White Stripes, Beck,
Strokes) og hljómsveit Morrisseys
sá um spilamennskuna. Lögum af
henni hefur verið lekið út í formi
sérkennilegra kynningarmynd-
banda þar sem Morrissey fer með
texta lagana við naumhyggjuleg-
an undirleik. Pamela Anderson
kíkir t.d. í heimsókn í einu þeirra.
Ekta Morrissey.
Mojo hefur þegar lýst því yfir
að þetta sé besta plata Morrisseys
í tuttugu ár á meðan Stephen
Thomas Erlewine, aðalritstjóri
allmusic.com, lýsti því á Fésbók-
inni að þetta væri skrítnasta plata
Morrisseys til þessa. Aðspurður
hvort hann meinti „Southpaw
Grammar“ (plata Morrisseys frá
1995 sem byrjar á ellefu mínútna
lagi) sagði hann: „Algerlega.“ Sitt
sýnist hverjum að vanda og þið
sem þetta lesið getið rannsakað
þetta sjálf frá og með mánudeg-
inum. Í öllu falli er „túllinn“ snú-
inn aftur.
» Fyrir tveimur ár-um talaði Morrissey
reyndar um að setjast í
helgan stein en hann
hefur greinilega endur-
skoðað þær áætlanir …
Morrissey verður æ meiri ugluspeg-
ill eftir því sem árin líða Nýjasta
plata kappans kallast World Peace
Is None of Your Business
Tvær myndlistarsýningar verða
opnaðar í sýningarsalnum Anarkíu,
Hamraborg 3 í Kópavogi, í dag kl.
15, annars vegar sýning Huldu Vil-
hjálmsdóttur og hins vegar sýning
Jóhönnu V. Þórhallsdóttur. Yf-
irskrift sýningar Huldu er Trén í
kring og sýnir Hulda fimm stór ol-
íumálverk sem öll snúast um sama
viðfangsefni: Svefnherbergið og
rúmið. „Í myndunum vekur hún
upp undraheim svefnherbergisins
þar sem við dveljum svo stóran
hluta ævinnar en er þó fyrir okkur
eins og annar heimur, heimur
svefns og drauma,“ segir í tilkynn-
ingu. Sýning Jóhönnu, sem er söng-
kona og kórstjóri, nefnist Þögli
kórinn og er fyrsta einkasýning
hennar.
„Jóhanna stjórnaði um árabil ótal
munnum og augum með tónsprota
sínum. Hún las í svipbrigði kórsins
og stillti saman hreyfingar andlita
og raddbanda. Jafnframt skynjaði
hún þær tilfinningar sem andlitið
bæði felur og opinberar. Myndverk
hennar fjalla um öll þessi syngjandi
andlit og þær tilfinningar sem búa
að baki,“ segir m.a. um verk hennar
í tilkynningu.
Svefnherbergið Hulda Vilhjálms-
dóttir við eitt verka sinna.
Hulda og Jóhanna
sýna í Anarkíu
Andlit Málverk eftir Jóhönnu V.
Þórhallsdóttur af sýningu hennar.
L
L
L
16
16
12
★ ★ ★ ★ ★
ÍSL.
TAL
„Besta íslenska
kvikmynd sögunnar!”
Lilja Katrín Gunnarsdóttir,
Fréttablaðið
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
EARTH TO ECHO Sýnd kl. 2 - 4 - 6 - 8
DELIVER US FROM EVIL Sýnd kl. 10
VONARSTRÆTI Sýnd kl. 4:30 - 7:30
22 JUMP STREET Sýnd kl. 8 - 10:20
MILLIONWAYS TO DIE Sýnd kl. 10:10
AÐ TEMJA DREKANN 2D Sýnd kl. 2 - 5
TÖFRALANDIÐ OZ 2D Sýnd kl. 2
14ÍSL.
TAL
TÖFRANDI MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
"Þú sérð ekki fyndnari
mynd í sumar!"
-T.V., Biovefurinn.is
"Ég hló svo mikið að ég
skammaðist mín”!"
-Guardian
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.