Morgunblaðið - 07.08.2014, Síða 7

Morgunblaðið - 07.08.2014, Síða 7
H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 4 -1 7 3 9 Fengum takmarkað magn af ríkulega búnum Kia cee’d Sportswagon EX með öflugri bensínvél á sérstöku tilboðsverði. Aðeins 35.990 kr. á mánuði í 84 mánuði.* * M.v. 1.600 þús. kr. útborgun eða uppítökubíl að sambærilegu verðmæti og bílalán Landsbankans í 84 mánuði. 9,4% óverðtryggðir vextir. Árleg hlutfallstala kostnaðar:11,14%. 7 ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum. www.kia.com Mikill bíll - frábært verð – Kia cee‘d Sportswagon ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. Þú finnur „Kia Motors Ísland“ á Facebook Eigum bíla til afgreiðslu strax! Komdu og reynsluaktu. Takm arkað magn 3.690.777 kr. Kia cee‘d Sportswagon EX 1,6 bensín, beinskiptur 6 gíra, 135 hestöfl. Tilboðsverð • Kastarar með beygjuskynjara • Hiti í stýri og framsætum • 525 lítra farangursrými og m.fl. • Bluetooth • USB tengi • LED ljós • Aksturstölva • Hólf milli sæta Dæmi um búnað: • 16” álfelgur • Loftkæling (A/C) • Cruise Control • Bakkskynjarar • Flex stýrisstilling FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2014 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ný brú yfir Múlakvísl á Mýrdals- sandi var formlega opnuð síðdegis í gær, þegar Hanna Birna Kristjáns- dóttir innanríkisráðherra klippti á borða með aðstoð Hreins Haralds- sonar vegamálastjóra. Það var laugardaginn 9. júlí 2011 sem gamla brúin, og þar með hringveg- urinn, fóru í sundur í jökulhlaupi. Sú brú var 130 metrar og var byggð árið 1990. Nýja brúin er 162 metrar og er brúargólfið 2 metrum hærra en á eldri brú. Hanna Birna sagði í stuttri ræðu að bygging brúarinnar væri í raun Ísland í hnotskurn. Eftir flóðið í júlí 2011 hefði verið smíðuð bráða- birgðabrú á fáum dögum. Það væri Íslendingum líkt að ganga í verkin og redda hlutunum. Það hefðu vegagerðarmenn gert og smíðað brú á einni viku, sem væri mikið af- rek. Þar væri valinn maður í hverju rúmi. Því bæri að þakka vegagerð- armönnum fyrir þeirra verk. Nú væri risið fallegt mannvirki sem yrði mikil vegabót. Auk Hönnu Birnu voru Sigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðar- ráðherra og Ragnheiður Elín Árna- dóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, viðstödd opnunina, ásamt heimamönnum og fleirum. Þörf á frekari framkvæmdum Fram kom í máli heimamanna að mannvirkið væri mikilvægt en að þörf væri á frekari framkvæmdum á svæðinu í náinni framtíð. Lágpunktar eru hafðir í veg- inum, sinn hvorum megin brúar, til þess að brúna taki ekki af í flóði af þeirri stærðargráðu sem varð í júlí 2011 en flóðið rjúfi þess í stað veg- inn. Í austanverðum farveginum of- an brúar voru byggðir um 5,6 km langir varnargarðar upp með ánni. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Brúin vígð Frá vinstri: Einar Hafliðason, verkfræðingur hjá Vegagerðinni, Hreinn Haraldsson vegamálastjóri, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, opnuðu brúna síðdegis. Stúlkan með skærin heitir Birna Sólveig Kristófersdóttir. Vígðu 162 metra brú yfir Múlakvísl  Ráðherra segir brúna mikla vegabót

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.