Morgunblaðið - 07.08.2014, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2014
Nýlegir Mitsubishi Pajero á
rekstrarleigu til fyrirtækja
Laugavegi 174 | Sími 590 5040 - Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16
HEKLA býður nú fyrirtækjum nýlegar Mitsubishi Pajero bifreiðar í rekstrarleigu.
Í rekstrarleigu fá fyrirtæki nýlegar bifreiðar til umráða í 1 ár gegn föstumánaðar-
gjaldi. Leigutaki losnar við alla fjárbindingu og endursöluáhættu. Greitt er fast
mánaðarlegt leigugjald og bifreiðinni einfaldlega skilað í lok leigutímans.
Dæmi:
Pajero 3.2 Instyle
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 38.000 km, sjálfskiptur
Mitsubishi Pajero er knúinn 3,2 l dísilvél sem skilar
200 hestöflum. Meðal búnaðar bifreiðanna eru
leðurinnrétting, rafdrifin framsæti, aukasæti
(7 manna), bakkmyndavél, xenon ljós, ný
heilsársdekk o.fl. (miðað við Instyle útfærslu).
Mánaðarlegt leigugjald:
136.041 kr.m/vsk
Slökkviliðsmenn börðust í gær við
mikla skógarelda, sem hafa geisað á
Vestmannalandi í miðhluta Svíþjóð-
ar síðustu daga, og talið er að það
geti tekið nokkrar vikur að slökkva
eldana. Að sögn sænskra fjölmiðla
eru þetta mestu skógareldar í Sví-
þjóð í manna minnum.
Einn maður hefur látið lífið í eld-
unum og rúmlega þúsund íbúar
bæjarins Sala þurftu að flýja heimili
sín. Að sögn sænskra fjölmiðla er út-
lit fyrir að langur tími líði þar til
fólkið kemst aftur til bæjarins.
Nokkur þúsund annarra íbúa á
svæðinu voru vöruð við því að þau
kynnu að þurfa að flýja heimili sín
næstu daga en samkvæmt síðustu
fréttum virtist ekki vera þörf á því,
um sinn að minnsta kosti.
Slökkviliðsmenn sögðu að ástand-
ið hefði batnað í fyrrinótt. Fjórar
sérútbúnar flugvélar frá Frakklandi
og Ítalíu voru sendar á svæðið og
þær byrjuðu að varpa vatni á eldana
í gær.
Sviar eiga ekki slíkar tankvélar og
hingað til hafa þrettán þyrlur verið
notaðar við slökkvistarfið. Um 100
sjálfboðaliðar hafa aðstoðað slökkvi-
liðsmenn.
Sala er um 170 kílómetra norð-
vestur af Stokkhólmi. Heitt, þurrt
og vindasamt hefur verið í Svíþjóð
síðustu daga og gerir það slökkvi-
liðsmönnum erfiðara fyrir.
Gætu logað í nokkrar vikur
Yfir þúsund
Svíar hafa flúið
mikla skógarelda
AFP
Erfitt slökkvistarf Þyrla varpar vatni á skógareld nálægt þorpinu Gammelby. Slökkvistarfið hefur gengið illa
vegna þess að erfitt er að komast að eldunum. Algengt er að minni skógareldar kvikni í Svíþjóð á sumrin.
AFP
Á flótta Íbúar þorps í grennd við Sala búa sig undir að flýja heimili sitt
vegna eldanna. Áætlað er að allt að 150 ferkm. skóglendi hafi brunnið.
Sameinuðu þjóðirnar hyggjast að-
stoða við enduruppbyggingu Gaza
eftir hernað síð-
ustu vikna en
þetta er í síðasta
skipti sem sam-
tökin gera það.
Þetta kom fram í
ávarpi Ban Ki-
moon, fram-
kvæmdastjóra
Sameinuðu þjóð-
anna í gær.
„Þessari til-
gangslausu hringrás þjáninga í
Gaza og á Vesturbakkanum, og í
Ísrael, verður að linna,“ sagði Ki-
moon.
Hann bætti við að þolinmæði
heimsbyggðarinnar væri á þrotum
gagnvart Ísraelum og Palest-
ínumönnum. „Þurfum við að halda
svona áfram? Byggja upp og eyði-
leggja, byggja upp og eyðileggja?“
spurði framkvæmdastjórinn.
Síðustu fjórar vikur hafa 1.875
Palestínumenn látið lífið í árásum
Ísraelshers. Jafnframt hafa 67 Ísr-
aelar beðið bana, þar af 63 her-
menn.
„Nóg komið
af eyði-
leggingu“
Segir þolin-
mæðina á þrotum
Ban Ki-moon
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
(WHO) hóf í gær tveggja daga
neyðarfund um ebólu-faraldurinn
sem hefur kostað að minnsta kosti
932 manns lífið í Vestur-Afríku.
Skýrt var frá 108 nýjum smittilfell-
um og 45 dauðsföllum í Gíneu, Líb-
eríu, Nígeríu og Síerra Leóne í gær.
Ennfremur var skýrt frá því að
grunur léki á að maður, sem lést á
sjúkrahúsi í Sádi-Arabíu, hefði dáið
af völdum ebóluveirunnar. Maðurinn
hafði verið í Síerra Leóne í við-
skiptaerindum. Verði staðfest að
hann hafi sýkst af ebóluveirunni er
þetta fyrsta dauðsfallið vegna far-
aldursins utan Afríku.
Spænsk herflugvél var send til
Líberíu til að sækja 75 ára gamlan
spænskan trúboða sem hefur sýkst
af ebóluveirunni. Þetta er í fyrsta
skipti sem ebólu-sjúklingur er flutt-
ur til Evrópuríkis eftir að faraldur-
inn blossaði upp.
Viðbúnaðurinn aukinn?
Fundur Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar fer fram fyrir lukt-
um dyrum í Genf í Sviss. Síðast þeg-
ar slíkur fundur var haldinn var það
vegna H1N1 inflúensufaraldursins
árið 2009.
Fundarmennirnir eiga meðal ann-
ars að skera úr um hvort útbreiðsla
veirunnar sé orðin slík að auka þurfi
viðbúnaðinn í heiminum og lýsa yfir
alþjóðlegu hættuástandi.
Á fundinum eru fulltrúar þeirra
landa sem verst hafa orðið úti, æðstu
menn WHO og helstu sérfræðingar
heims í sjúkdómnum. Niðurstaða
fundarins verður líklega gerð opin-
ber á morgun, að sögn fréttaveit-
unnar AFP. Heilbrigðismálastofn-
unin hefur að svo stöddu ekki talið
ástæðu til að gefa út tilmæli um
ferðatakmarkanir í heiminum vegna
ebólu-faraldursins. Faraldurinn hef-
ur enn sem komið er einskorðast við
Gíneu, Líberíu, Síerra Leóne, og nú
síðast Nígeríu.
Flest dauðsföll í Gíneu
Alls hafa yfir 1.700 manns sýkst
og þar af 932 látið lífið vegna veir-
unnar. Um 50 til 60% sýktra hafa dá-
ið í faraldrinum, en verstu afbrigði
ebólu-veirunnar hafa dregið allt að
90% þeirra sem veikjast til dauða.
Flest eru dauðsföllin í Gíneu, eða
363, en þar virðist nú hafa hægt á út-
breiðslu faraldursins. Ástandið fer
hins vegar versnandi í grannríkjun-
um Líberíu og Síerra Leóne og
greint hefur verið frá alls níu til-
fellum og tveimur dauðsföllum í
Nígeríu, fjölmennasta ríki Vestur--
Afríku.
Neyðarfund-
ur um ebólu-
faraldurinn
Dauðsföllunum fjölgar í V-Afríku og
ebóla kann að hafa borist til Sádi-Arabíu
AFP
Hætta Læknir á sjúkrahúsi í Gíneu
þar sem sjúklingar eru í sóttkví.