Morgunblaðið - 07.08.2014, Blaðsíða 11
Ljósmynd/Eyjafréttir
Blys Magnað sjónarspil er þegar þjóðhátíðarblysin eru tendruð að kvöldi sunnudags eins og venja er. Gestir taka virkan þátt í að skapa stemninguna.
sé einhver sem vill hana ekki, en ég
hef ekki hitt þá manneskju ennþá,“
segir Birgir í gamansömum tón.
Fyrir Þjóðhátíð eru reist á
milli 300 og 400 hvít tjöld þar sem
heimamenn hafa aðsetur í Herjólfs-
dal meðan á hátíðinni stendur. Mik-
ill spenningur er meðal fólks um
staðsetningu og nokkur samkeppni
er um að ná sem bestum stað. Fyr-
ir vikið hefur undanfarin ár farið
fram kapphlaup sem einna helst
minnir á kapphlaupið um bestu
jarðirnar, svæðin og borgastæðin í
Oklahoma þann 22. apríl árið 1889
þegar 50 þúsund manns freistuðu
gæfunnar.
Kapphlaupið í Eyjum er öllu
minna í sniðum og setur skemmti-
legan svip á undirbúning hátíð-
arinnar. Allir fá þó stæði fyrir tjald
sitt og enginn verður útundan.
,,Það hefur myndast mjög jákvæð
stemming í kringum þetta. Svo
þegar menn eru búnir að velja sér
stæði þá fara menn glaðir á húkk-
araball,“ segir Birgir. Að sögn hans
er búið að skipta um jarðveg og
slétta tjaldstæðið í Herjólfsdal. Áð-
ur fyrr þurftu margir að tjalda í
halla.
Besta hátíð seinni ára
Að sögn Birgis er það mál
manna að Þjóðhátíðin í ár sé sú
besta, í það minnsta þegar horft er
til síðari ára. Sérstaka gleði vekur
að fá óhöpp og engin kynferðisbrot
urðu svo vitað sé til á þessum tíma-
punkti en þau hafa sett ljótan svip
á hátíðir fyrri ára. Birgir segir að
slíkar gleðifregnir geri léttinn þeim
mun meiri í lok hátíðar. „Fólkið
skapar stemminguna og flestir
voru í góðum gír og afslappaðir.
Það er langt því frá að heimur
versnandi fari. Ef horft er til ung-
linga á Þjóðhátíð, þá finnst mér
þeir haga sér betur núna en þegar
ég var ungur. Ég held að tilkoma
bjórsins hafi breytt þar miklu um.
Þegar ég var ungur á Þjóðhátið
voru margir mikið ölvaðir. Ég verð
nú bara viðurkenna það þó ég sé af
þessari eldri kynslóð,“ segir Birgir.
Í dalnum eru tiltækir læknar,
hjúkrunarfræðingar og sálfræð-
ingur. Þá er búið að setja upp
myndavélar um allan dalinn. „Þetta
er orðið nokkuð öflugt teymi. Við
erum með fimm fíkniefna-
lögreglumenn og þrjá fíkniefna-
hunda. Við viljum gera allt sem í
okkar valdi stendur til að koma í
veg fyrir þessa svörtu bletti sem
upp hafa komið. Ég held að okkur
hafi tekist það ágætlega und-
anfarnar hátíðir,“ segir Birgir.
Aðspurður segir Birgir að síð-
asta hátíð standi alltaf upp úr. „En
svo gleymi ég aldrei fyrstu hátíð-
inni í dalnum árið 1977 þegar það
var sól og blíða allan tímann,“ segir
Birgir en fram að því var hátíðin
haldin á Breiðabakka.
„Við viljum gera allt
sem í okkar valdi stend-
ur til að koma í veg fyrir
þessa svörtu bletti sem
upp hafa komið. Ég held
að okkur hafi tekist það
ágætlega undanfarnar
hátíðir.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2014
Prófaðu reiknivélina á www.on.is og sjáðu hvað vöfflujárnið,
kaffivélin og önnur eldhústæki nota mikið rafmagn.
Við erumheppin að náttúran skuli sjá okkur fyrirmeira en nóg
af orku til að létta okkur lífið svo um munar. Forsenda þess
að við getum farið vel með auðlindirnar og lækkað kostnað
er að vita hvað er í gangi og hversu mikla orku raftækin nota
að staðaldri. Á on.is er handhæg reiknivél sem auðveldar þér
að sundurliða orkunotkun heimilisins og meta kostnaðinn í
heild og við einstaka þætti.
Orka náttúrunnar framleiðir
og selur rafmagn til allra
landsmanna á samkeppnishæfu
verði. Við viljum nýta auðlindir
af ábyrgð og nærgætni og bæta
lífsgæðin í nútíð og framtíð.
ORKA NÁTTÚRUNNAR
Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is · on@on.is
HVAÐ FER MIKIL ORKA Í VÖFFLUKAFFIÐ?
„Það sem mér finnst standa upp
úr er í raun að ekkert alvarlegt hafi
komið upp á. Þjóðhátíðin í ár slær í
raun öllum öðrum við. Lögreglan
sagði við mig á aðfaranótt sunnu-
dags, að þetta væri sennilega
besta nóttin í sögu Þjóðhátíðar og
það kætir mitt hjarta,“ segir Birgir.
Hann segir að fleiri starfsmenn
hafi lýst ánægju sinni og að einn af
hápunktunum hafi verið í sjúkra-
tjaldinu. „Fólkið í hjúkrunartjald-
inu var svo ánægt með hátíðina
því það hafði ekkert að gera og
maður er búinn að bíða eftir því í
mörg ár að fá fréttir um að allt hafi
gengið svona vel og ekkert alvar-
legt komið upp á. Þá er maður
ánægður og allar líkur á því að fólk
hafi skemmt sér vel og er það fyrir
vikið líklegra til að koma aftur,“
segir Birgir.
Besta nótt í sögu Þjóðhátíðar
EKKERT AÐ GERA Í SJÚKRATJALDINU