Morgunblaðið - 07.08.2014, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.08.2014, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þeir semferðast umlandið í sum- ar og síðastliðin sumur sjá og finna miklar breytingar frá því sem var fyr- ir fáeinum áratugum. Þeir sem muna aftur til nýliðinnar aldar vita að fram undir lok hennar voru vegir með bundnu slitlagi lúxus sem þekktist varla nema í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og á allra fjölförnustu leiðum. Nú er bundið slitlag víða um sveitir og tvöföldun komin vel á veg þar sem umferðarþunginn er mestur. Fyrir ferðalanga er þetta mikil bylting og hið sama er að segja um einbreiðu brýrnar sem margar voru varasamar en hafa víða vikið fyrir veigameiri mannvirkjum. Allt þetta eykur jafnt umferðaröryggi sem þæg- indi ferðalanga og stuðlar þann- ig að auknum ferðalögum innan- lands og auðveldar ennfremur allar ferðir, hvort sem þær tengjast ferðalögum, atvinnu- starfsemi eða öðru. Atvinnustarfsemi og ferðalög eru raunar ekki ótengd, heldur oft tvær hliðar á sama pen- ingnum. Og hin seinni ár má segja að peningum sem tengjast ferðalögum hafi einmitt fjölgað verulega. Þessi staðreynd á svo vitaskuld stóran þátt í þeim breytingum sem fólk finnur á ferðum um landið hin síðari ár og hefur víða stuðlað að afar já- kvæðri þróun í atvinnulífi og mannlífi um landið. Dæmi um þetta var til um- fjöllunar í Morgunblaðinu í gær, þar sem sagði frá uppgangi í at- vinnulífi í Vestmannaeyjum, meðal annars vegna aukins straums ferðamanna. Áhrifin á Vestmannaeyjar eru mikil og koma meðal annars fram í fleiri og fjöl- breyttari veit- ingastöðum og fleiri hótelherbergjum. En áhrifin eru einn- ig á ferðaþjón- ustuna á staðnum almennt, og ekki síst fyrir hið glæsilega gos- minjasafn Eldheima. Sömu sögu er að segja víða um land, raunar víðast hvar. Veigamikill þáttur í þessari jákvæðu þróun er mikil fjölgun erlendra ferðamanna hin síðari ár, því að það eru þeir sem að verulegu leyti halda uppi rekstri gististaða og margvíslegri ann- arri ferðatengdri þjónustu um landið. Íslendingar njóta góðs af þessum miklu gestakomum, bæði vegna aukinnar atvinnu og vegna aukinnar uppbyggingar sem landsmenn nýta sér og njóta á ferðum sínum og í heimabyggð. Um leið þarf þó að hafa í huga að landið tekur ekki endalaust við. Jafnvel í miðborg Reykja- víkur, þar sem rýmið ætti að vera nóg, er stundum slíkur mannfjöldi að borgarbúar lyfta brúnum. Þar er þó engin vá á ferðum ef rétt er á haldið í skipulagsmálum, en um við- kvæmar náttúruperlur getur gegnt öðru máli. Sú jákvæða þróun sem orðið hefur í þjónustu og atvinnu út um landið á sér þess vegna dökkar hliðar og aðgerða er þörf áður en í óefni er komið. Vernd náttúrunnar samhliða skynsamlegri nýtingu hennar hefur um langa hríð verið far- sælt leiðarljós hér á landi í öðr- um atvinnugreinum. Full ástæða er til að sömu sjónarmið fái að njóta sín við uppbyggingu hinnar ört vaxandi atvinnu- greinar. Hið neikvæða má ekki fara að skyggja á það jákvæða við ferðaþjónustuna} Bylting fyrir ferðalanga Árið 1976 komfram óþekktur sjúkdómur í tveim- ur löndum sam- tímis, Saír (nú Kongó) og Súdan. Sjúkdómurinn var bráðdrepandi og var vísindamönnum ráðgáta. Eini munurinn á sjúk- dómnum var sá að í Saír létust 90% þeirra, sem fengu hann, en 60% í Súdan. Eftir nokkurn tíma tókst að einangra vírusinn og honum var gefið nafnið ebóla eftir á, sem rennur á svæðinu þar sem hann kom fram. Svo virtist sem þessi nýi sjúkdómur hefði komið upp fyrir tilviljun samtímis á tveimur stöðum. Sjúkdómurinn breiddist hratt út, en með því að einangra sjúkrahús og sjúklinga og koma í veg fyrir iðkun jarðarfarar- siða, sem ýttu undir útbreiðslu hans, tókst að stöðva hann. Ebóla hefur látið á sér kræla síðan og nú er kom- inn upp sérlega skæður faraldur. Hingað til hefur ástandið verið verst í Gíneu, Líberíu og Síerra Leóne, en nú hefur ebóla breiðst út til Lagos, höf- uðborgar Nígeríu og stærstu borgar álfunnar sunnan Sahara. Ebóla er skæð, en vírusinn þarf að komast inn í blóðrásina til að smita. Nú berast yfirlýs- ingar um að sjúkdómurinn breiðist stjórnlaust út, en það er augljóst að ekki hefur verið tek- ið á honum af nógu mikilli alvöru þegar hann kom fyrst fram. Ábyrgðin liggur bæði hjá stjórn- völdum á staðnum og alþjóð- legum heilbrigðisyfirvöldum. Hér þarf að bæta verulega í og um leið að leggja aukna áherslu á eftirlit til að koma í veg fyrir að sjúkdómurinn haldi áfram að breiðast út. Útbreiðsla ebólu vekur efasemdir um að nógu hart hafi verið brugðist við í upphafi} Stjórnlaus farsótt? Í viðtali í Morgunblaðinu varaði Eva Hauksdóttir, sem er sjálfstæð og óhrædd kona, við dólgafemínisma og Stóru systur sem þráir svo mjög að stjórna lífi okkar. Eva hefur þarna mikið til síns máls. Til er hópur fólks sem lifir samkvæmt rétttrúnaðarfemínisma og leggur sig fram við að snúa okkur, hinum vegvilltu, í átt til hins sæla rétttrúnaðar. Stundum er því haldið fram að þeir sem mótmæla öfgafullum áherslum í málflutningi femínista séu andstæðingar kvenfrelsis. Í þeirri fullyrðingu felst að málstaðurinn sé svo góður og göfugur að ekki sé hægt að ganga of langt í kvennabaráttunni. Þetta er ekki rétt. Hiti hins rétttrúaða er nokkuð sem við ættum öll að varast, því hann snýst svo auðveldlega upp í heift og ofstæki. Rétttrúnaðarfemínismi er ekki undantekning frá því. Stefna sem snýst um innrætingu og kröfu um að allir hugsi í takt og að það sem ekki þjóni málstaðnum sé nán- ast þjóðhættulegt, getur ekki verið af hinu góða. Fjöl- margar konur og karlar gera sér grein fyrir þessu og vilja því ekki flokka sig sem femínista, þótt þau séu sannarlega staðfastir jafnréttissinnar og ötulir talsmenn mannrétt- inda. Dólgafemínistar hafa komið sér í hlutverk geltandi varðhunda og draga hvergi af sér við að þefa uppi ósóm- ann sem leynist víst svo víða. Þeir láta vel í sér heyra ef þeim mislíkar, sem er oft, og þar sem þeir telja sig vera með galopin augun (þótt víðsýni sé þeim víðs- fjarri) hafa þeir víða viðkomu. Allt skal ríma við hina heilögu kennisetningu. Fletti þetta fólk fallegri útgáfu á ævintýrabók þarf ekki annað en að prins bjargi prinsessu til að það komist í mikið tilfinningauppnám. Það sama gerist ef það les skáldsögu þar sem svo hagar til á einhverjum stöðum að konan er í eldhús- inu meðan karlinn er í vinnunni. Eitthvert rót hlýtur svo að skapast í hugum þessa fólks horfi það á Skassið tamið eftir Shakespeare – það leikrit er örugglega martröð dólgafemín- ista. Harðlínufemínistar telja sig ákaflega nú- tímalega þenkjandi manneskjur en eru þó í eðli sínu afturhaldssamir. Sjáist til dæmis í kvenmannshold í auglýsingum blossar upp í þeim viktoríönsk siðavendni og gólað er: Klámvæðing! – Skiptir þá engu máli þótt fyr- irsætan hafi af fúsum og frjálsum vilja kosið að sitja fyrir fremur fáklædd. Konan er sjálfkrafa talin hugsa og starfa á forsendum karla. Þessi sama hugsun endurspeglast mjög víða, eins og til dæmis í viðhorfi harðlínufemínista til kvenna sem eru ekki fylgjandi kvennakvóta. Þær eru samstundis taldar vinna gegn kynsystrum sínum. Krafan um að konur séu af sérstakri gerð og fylgi allar sömu hugmyndafræði er ógeðfelld. Konur eru frjálsar og sjálfstæðar manneskjur og eiga að taka eigin ákvarðanir en ekki lúta valdi yfirboðara, hvort sem hann kallast Stóra systir eða eitthvað annað. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórs- dóttir Pistill Varðhundar dólgafemínismans STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Skúli Halldórsson sh@mbl.is Söngvakeppni evrópskrasjónvarpsstöðva, sem hald-in var í Kaupmannahöfn ímaí, reyndist mun dýrari en búist hafði verið við. Nemur munurinn rúmum 77 milljónum danskra króna, rúmum einum og hálfum milljarði íslenskra króna. Áætlanir gerðu í upphafi ráð fyrir að keppnin myndi kosta tæpar 35 milljónir danskra króna, en nú hef- ur komið í ljós að heildarkostnaður var 112 milljónir danskra króna, þreföld sú upphæð sem gert var ráð fyrir. Danska ríkissjónvarpið, DR, bar ábyrgð á sjálfum viðburðinum en að undirbúningnum komu fleiri aðilar eins og Kaupmannahafn- arborg, sýsluyfirvöld ásamt Won- derful Copenhagen, sem er stofnun sem markaðssetur Kaupmannahöfn og nágrannabyggðir. Deila þessir aðilar nú um hver beri ábyrgð á tapinu. Breyttu skipasmíðastöð í höll Keppnin í ár var haldin í B&W-höllinni á Refshaleøen, sem er gamalt iðnaðarsvæði við höfnina í Kaupmannahöfn. Tónleikahöllin var áður skipasmíðastöð og má rekja meira en 90% kostnaðarins sem bættist við til breytinga á henni. Gerðu áætlanir ráð fyrir að þær myndu krefjast 18 milljóna danskra króna, en þegar allt var yf- irstaðið reyndust þær hafa kostað níutíu milljónir. Forstjóri Wonderful Copen- hagen, Lars Bernhard Jørgensen, segir í samtali við DR að enginn hafi getað ímyndað sér kostnaðinn sem fælist í breytingunum. Hann viðurkennir að það hefði fyrr átt að vera ljóst að kostnaðurinn færi langt fram úr áætlunum. En hann bendir einnig á að starfið hafi farið fram undir miklu álagi og að fyr- irtækið hafi ekki reynslu af bygg- ingarframkvæmdum. Til að takmarka fjártjónið hafa þessir þrír aðilar lagt til samtals rúmar 17 milljónir danskra króna. Eftir stendur skuld sem hljóðar upp á 58 milljónir danskra króna, eða 1,2 milljarða íslenskra króna. Þurfa aðstandendur keppn- innar nú að leysa úr flækjunni sem þessi þriggja nátta söngvakeppni hafði í för með sér. Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri sjónvarps hjá Rík- issjónvarpinu, segir að engar kröfur séu fyrir hendi frá Sambandi evr- ópskra sjónvarpsstöðva, komi til þess að framlag Íslands vinni keppnina einn daginn. „Þar á bæ þætti mönnum í raun fróðlegt að sjá eina af smærri þjóðunum vinna keppnina, til að geta sýnt fram á hversu litlu þarf í raun að kosta til við að halda hana. Við höfum einnig fengið vilyrði frá hinum Norð- urlöndunum um að þau myndu veita okkur ýmiss konar aðstoð við fram- kvæmd keppninnar og undirbún- ing.“ Sníða sér stakk eftir vexti Skarphéðinn segir að fyrir hendi sé mun meiri sveigjanleiki hvað varðar umfang keppninnar en fólk geri sér almennt grein fyrir. „Ekki eru mörg ár síðan keppnin var haldin í rúmlega þúsund manna höll. Í mínum huga þarf þetta ekki að snúast um að keppnin þurfi alltaf að vera stærri en sú síðasta og í raun þætti mér ákveðin feg- urð vera í því ef keppnin tæki mið af þeirri þjóð sem hana héldi hverju sinni. Að mínu mati gildir það auðvit- að jafnt hér eins og í öðru, að sníða sér stakk eftir vexti.“ Sitja í skuldasúpu eftir söngvakeppnina Ljósmynd/Andres Putting Innlifun Hljómsveitin Pollapönk flutti framlag Íslands til söngvakeppn- innar í ár. Komið hefur í ljós að kostnaður keppninnar fór úr böndunum. Einar Bárðarson, forstöðumað- ur Höfuðborgarstofu, segir í samtali við Morgunblaðið að keppnin yrði vafalaust hófsam- legari, færi hún fram í Reykja- vík. „Árið 1999 var þetta haldið í 1.500 manna húsi í Ísrael. Dan- ir ákváðu að breyta heilli skipa- smíðastöð í tónleikahöll og það hefði átt að vera mönnum ljóst að mikill kostnaður myndi fylgja því. Hér á landi myndum við seint láta okkur detta slíkt í hug,“ segir Einar og bætir við: „Ef við fengjum að dreypa á þessum beiska kaleik, myndi ég búast við víðtæku sam- starfi margra ólíkra að- ila. Ef hreinskilni er gætt á ég þó ekki von á að þurfa að glíma við þetta verkefni í minni starfstíð, en ég verð tilbúinn ef á reynir,“ segir Einar kíminn. Hófsamlegri í Reykjavík BEISKUR KALEIKUR Einar Bárðarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.