Morgunblaðið - 07.08.2014, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2014
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
Handverkshátíðin að Hrafnagili í
Eyjafirði verður haldin í 22. skipti
nú um helgina og verður formlega
sett af Kristjáni Þór Júlíussyni, heil-
brigðisráðherra, klukkan 12 í dag.
Fjöldi nýrra sýnenda tekur þátt í
ár og óhætt er að fullyrða að fjöl-
breytnin sé mikil. Á útisvæðinu er
meðal annars risið 250 fermetra
tjald þar sem matvælaframleið-
endur koma sér fyrir. „Um leið og
setningu hátíðarinnar lýkur munu
96 sýnendur opna sölubása en þar
verður til sýnis fjöldinn allur af
flottu handverki. Svo erum við kom-
in með glæsilega matvælasýningu
sem verður á útisvæðinu,“segir Est-
er Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri
Handverkshátíðarinnar.
Vinsæll liður
Skemmtileg og fjölbreytt dagskrá
verður á svæðinu en hún hefst á
fimmtudegi og lýkur á sunnudegi.
Þar má nefna tískusýningu, hús-
dýrasýningu, grillveislu og margt
fleira. „Það verður sýning á gömlum
landbúnaðarvélum sem áhugavert
verður að skoða. Á laugardeginum
verðum við með svaka vinsælan lið
þar sem börn í Eyjafjarðarsveit
sýna kálfana sína. Þar keppa þau um
hver á fallegasta og best tamda kálf-
inn. Það vekur alltaf mikla lukku
enda láta kálfarnir ekki alltaf að
stjórn hjá keppendunum sem eru
allt niður í þriggja ára gamlir,“ segir
Ester.
Í fyrsta skipti verður handverks-
markaður á hátíðinni. Markaðurinn
verður opinn á föstudegi og sunnu-
degi en þar munu fjölmargir selja
varning sinn. „Á markaðnum verða
margir litlir aðilar sem hafa verið
heima að prófa sig áfram í hand-
verki. Þetta eru bæði karlar og kon-
ur svo það verður spennandi að sjá
hvernig þeim gengur,“ segir Ester.
Búist er við að um 15-16 þúsund
manns muni heimsækja svæðið yfir
helgina og Ester fullyrðir að allir
ættu að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi á hátiðinni. „Þetta er hátíð fyrir
alla. Hátíðin er líka að verða karl-
lægari og sífellt fleiri karlar taka
þátt. Þetta eru ekki bara lopapeysur
og ullarsokkar sem fólk getur skoð-
að. Við höfum fengið heilu fjölskyld-
urnar til okkar og ég er viss um að
þetta verður mjög vel heppnuð há-
tíð,“ segir Ester.
Ljósmynd/Handverkshátíðin
Hátíð Nóg verður um að vera á handverksthátíð í Eyjafirði um helgina.
Matur, hand-
verk og kálfar
Handverkshátíð haldin í Eyjafirði
Margt að gerast
» Búsaga sýnir gamlar vélar og
Hestamannafélagið Funi teym-
ir undir börnum alla daga frá
klukkan 14-17.
» Félag ungra bænda á Norð-
urlandi sér um húsdýrasýning-
arsvæðið.
»Von er á að 15-16 þúsund
manns heimsæki svæðið.
» Búið er að koma upp sam-
tals 900 fermetrum af sýning-
artjöldum til að taka við þeim
fjölda.
Ljósmynd/Handverkshátíðin
Sýning Kálfasýningin hjá börnunum í Eyjafjarðarsveit er vinsæl.
Heljarinnar uppskeruhátíð verður
haldin á laugardagskvöldinu
klukkan 19:30 og er hún öllum op-
in. Séra Hildur Eir Bolladóttir er
veislustjóri og meðal þeirra sem
fram koma eru Álftagerðisbræður,
Pálmi Gunnarsson ásamt hljóm-
sveit og prestatríó skipað séra
Hildi Eir, séra Oddi Bjarna og séra
Hannesi Blandon. Matreiðslumenn
Greifans munu svo sjá um grill-
veisluna og verðlaunaðir verða
handverksmaður ársins og sölu-
bás ársins. pfe@mbl.is
Grillveisla og prestatríó á uppskeruhátíð
FER FRAM Á LAUGARDAGSKVÖLDI OG ER ÖLLUM OPIN
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Kamasa verkfæri
– þessi sterku
• Konica Minolta fjölnotatækin (MFP)
eru margverðlaunuð fyrir hönnun,
myndgæði, notagildi, umhverfisvernd
og áreiðanleika.
• Bjóðum þjónustusamninga,
rekstrarleigusamninga og alhliða
prentumsjón.
• Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur
sem eiga það sameiginlegt að gera
kröfur um gæði og góða þjónustu.
• Kjaran er viðurkenndur söluaðili á
prentlausnum af Ríkiskaupum.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
• BLI A3 MFP Line of the Year 2013
• BLI A3 MFP Line of the Year 2012
• BLI A3 MFP Line of the Year 2011
bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki