Morgunblaðið - 07.08.2014, Page 16
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2014
DÚKA KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322 SMÁRALIND SÍMI: 564 2011 DUKA.IS
Glæsilegar
sumarveislur
með CRYSTAL
frá Koziol,
úti sem inni!
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Báðar fylkingarnar í deilunni um
hvort Skotland eigi að lýsa yfir sjálf-
stæði lýstu yfir sigri í sjónvarps-
kappræðum fulltrúa þeirra í fyrra-
kvöld, sex vikum fyrir þjóðarat-
kvæðagreiðslu um hvort Skotland
eigi að vera sjálfstætt ríki eftir að
hafa verið hluti af Bretlandi í 307 ár.
Fyrir kappræðurnar þótti Alex
Salmond, forsætisráðherra skosku
heimastjórnarinnar, líklegri til að
hafa betur í rimmunni við Alistair
Darling, þingmann Verkamanna-
flokksins og fyrrverandi fjármála-
ráðherra Bretlands. Salmond hefur
getið sér orð fyrir að vera snjall í
slíkum kappræðum en Darling hefur
þótt á meðal dauflegustu áhrifa-
mannanna í breskum stjórnmálum.
Darling kom þó á óvart í rimmunni í
fyrrakvöld og margir stjórnmála-
skýrendur breskra blaða telja að
hann hafi haft betur, einkum þegar
hann þráspurði Salmond um hvaða
gjaldmiðil sjálfstætt Skotland ætti
að hafa.
Í skyndikönnun, sem náði til 512
áhorfenda, sögðust 56% þeirra telja
að Darling hefði staðið sig betur, en
44% töldu að Salmond hefði sigrað.
Talsmaður Better Together, sam-
taka sem berjast fyrir því Skotland
verði áfram hluti af Bretlandi, sagði
að könnunin hefði þó einnig leitt í
ljós að Salmond hefði unnið fleiri á
sitt band en Darling á meðal þeirra
sem voru óákveðnir fyrir kappræð-
urnar.
Andstæðingar sjálfstæðis hafa
haft verulegt forskot, ef marka má
kannanir, og Salmond þurfti því á
öruggum sigri að halda til að snúa
vörn í sókn. Stjórnmálaskýrendur
skoskra blaða sem eru hlynnt sjálf-
stæði viðurkenndu að Salmond hefði
ekki tekist það að þessu sinni.
Könnun, sem birt var þegar kapp-
ræðurnar hófust, benti til þess að
54% Skota væru „alveg viss“ um að
greiða atkvæði gegn sjálfstæði Skot-
lands og 40% sögðust vera staðráðin
í því að styðja sjálfstæði. Stuðnings-
mönnum sjálfstæðis fjölgaði um
fjögur prósentustig frá samskonar
könnun í júní. Aðeins 6% aðspurðra
höfðu ekki gert upp hug sinn í nýju
könnuninni en aðrar kannanir hafa
bent til þess að um 16% séu enn
óákveðin.
Deilt um myntbandalag
Líklegt þykir að úrslit þjóðarat-
kvæðisins ráðist að miklu leyti af því
hvort skoskum þjóðernissinnum
tekst að sannfæra Skota um að lífs-
kjör þeirra batni ef þeir samþykkja
sjálfstæði.
Skoski þjóðarflokkurinn, undir
forystu Salmonds, vill að sjálfstætt
Skotland haldi pundinu en breska
stjórnin hefur sagt að það komi ekki
til greina. Salmond átti undir högg
að sækja í kappræðunum þegar Dar-
ling þráspurði hann um hvaða gjald-
miðil sjálfstætt Skotland ætti að
hafa. Salmond fullyrti að bresk
stjórnvöld myndu breyta afstöðu
sinni og semja um myntbandalag ef
sjálfstæði yrði samþykkt.
Salmond vitnaði í viðtal þar sem
sem Darling lét þau orð falla að
myntbandalag væri „rökrétt og
æskilegt“ en Darling tók fram að
hann hefði í sama viðtali lagt áherslu
á að slíkt fyrirkomulag krefðist póli-
tísks bandalags. Salmond hafði einn-
ig eftir ónafngreindum ráðherra í
London að sú ákvörðun fjármálaráð-
herra Bretlands að útiloka mynt-
bandalag við Skotland væri aðeins
„brella í baráttunni“ og breska
stjórnin myndi semja um mynt-
bandalag ef Skotar lýstu yfir sjálf-
stæði.
„Ég vil biðja þig um að gera svolít-
ið sem er mjög erfitt. Ég vil að þú
hugleiðir í eina mínútu hvort þú hafir
ef til vill rangt fyrir þér,“ sagði Dar-
ling. „Hvaða varaáætlun hefur þú?“
Salmond reyndi þá að endurtaka
fyrri túlkun sína á ummælum Dar-
lings og áhorfendur púuðu á hann
fyrir að reyna að víkja sér undan því
að svara spurningunni.
Salmond þótti standa sig betur
síðar þegar hann spurði Darling 21
sinni hvort hann væri á sama máli og
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, um að sjálfstæðu Skot-
landi gæti vegnað vel.
Tókst ekki að sigra Darling
Forsætisráðherra skosku heimastjórnarinnar tókst ekki að snúa vörn í sókn í sjónvarpskappræðum
Alistair Darling stóð sig betur en búist var við Báðar fylkingarnar lýsa yfir sigri í kappræðunum
AFP
Hart deilt Alex Salmond (t.v.) og Alistair Darling (t.h.) í sjónvarpskappræð-
unum. Á milli þeirra er Bernard Ponsonby sem stjórnaði kappræðunum.
Heimild: Skotlandsmálaráðuneytið í London
Deilt um hvort
Skotland eigi að
vera sjálfstætt ríki
12,2 11
Opinber útgjöld á hvern mann eru meiri
í Skotlandi en annars staðar í Bretlandi
Röksemdir
bresku stjórnarinnar
Röksemdir skosku
heimastjórnarinnar
10.700
9.000
Skotar greiða meira í skatta á hvern
mann en aðrir íbúar Bretlands
Getur Skotland reitt sig
á Norðursjávarolíuna?
Myndi Skotlandi vegna
betur sem sjálfstæðu ríki?
JáNei
JáNei
Framleiðslan er of breytileg:
Frá 1998 hafa tekjurnar
af skosku olíunni verið
á bilinu
BretlandSkotlandBretlandSkotland
Á 30 árum
frá
2011
koma
af olíuframleiðslu Bretlands
frá skoskri lögsögu
Í pundum (2011/2012)
2milljarðar
12milljarðar pundatil
Heimild: Skoska heimastjórnin í Edinborg
Í þúsundum punda
98,8%
Vill halda pundinu
» Skoski þjóðarflokkurinn vill
halda pundinu og að Elísabet
2. Bretadrottning verði áfram
þjóðhöfðingi Skotlands. Flokk-
urinn vill einnig að Skotland
verði í Evrópusambandinu og
Atlantshafsbandalaginu.
» Íbúar Skotlands eru um 5,2
milljónir og 8% íbúa Bretlands.
» Skoski þjóðarflokkurinn
leggur áherslu á að sjálfstæði
verði til þess að lífskjör Skota
batni. Um 9% af vergri lands-
framleiðslu Bretlands koma frá
Skotlandi.
Vladímír Pútín, forseti Rússlands,
hefur fyrirskipað bann eða takmark-
anir á innflutning landbúnaðar-
afurða frá löndum sem hafa gripið til
refsiaðgerða gegn Rússlandi vegna
átakanna í austanverðri Úkraínu. Í
tilskipun frá Pútín var ráðuneytum í
Moskvu falið að útbúa lista yfir varn-
ing sem bannið eða takmarkanirnar
eiga að ná til.
Bandaríkin og Evrópusambandið
hafa gripið til refsiaðgerða vegna
meints stuðnings Rússa við upp-
reisnarmenn í Úkraínu. Rússar hafa
flutt inn ávexti og grænmeti frá ESB
löndum fyrir um tvo milljarða evra á
ári, eða rúma 300 milljarða króna.
Innflutningur Rússa á matvælum frá
Bandaríkjunum nemur u.þ.b. 150
milljörðum króna á ári.
AFP
Á varðbergi Úkraínskur hermaður í austanverðri Úkraínu.
Pútín takmarkar
matvælainnflutning
Svarar refsiaðgerðum gegn Rússum