Morgunblaðið - 07.08.2014, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 07.08.2014, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2014 Sveitasæla Fátt er betra en að vera með hestum og hundum úti í náttúrunni og það veit Sunna Skeggjadóttir á Skeggjastöðum í Flóahreppi, sem naut góða veðursins í sveitinni í fyrradag. Eggert Íslendingar eiga mikið verk fyrir hönd- um við að reisa við ut- anríkisstefnu sem tek- ur annars vegar mið af alþjóðlegum að- stæðum og hins vegar þörfum og hags- munum lands og þjóð- ar. Í sex ár (frá maí 2007 til maí 2013) sátu ráðherrar Samfylk- ingarinnar að völdum í utanríkis- ráðuneytinu. Engu er líkara en allt hafi verið látið reka á reiðanum, þótt um hríð hafi einhverjir látið sig dreyma um að komast upp á hið al- þjóðlega svið stjórnmála og leika þar aðalhlutverk við að ná sáttum í langvinnum og hatrömmum deild- um fyrir botni Miðjarðarhafs. Í sex ár – 72 mánuði – var í raun engin sjálfstæð stefna í utanríkis- málum mörkuð og lítt var skeytt um framtíðina eða þróunina allt í kringum Íslands. Þess í stað var óraunsæi, óskhyggja og fyrir- hyggjuleysi ráðandi enda skipti að- eins eitt máli; að draumurinn um aðild að Evrópusambandinu yrði að veruleika. Á þeim árum sem Samfylkingin sat við völd í ráðuneyti utanríkis- mála lögðu íslenskir skattgreið- endur liðlega 86 þúsund milljónir króna á verðlagi 2013 í reksturinn. Með öðrum orðum; utanríkisþjón- ustan kostaði hverja fjögurra manna fjölskyldu rúmlega eina milljón króna. Það er í besta falli erfitt að halda því fram að skatt- greiðendur hafi fengið mikið fyrir sinn snúð. Þvert á móti – utanríkis- stefna Íslands er í molum. Pólitísk herkví Allt frá því að vinstristjórn Sam- fylkingar og Vinstri grænna var mynduð í febrúar 2009 voru utanríkismálin í póli- tískri herkví og út úr þeirri herkví hefur ný ríkisstjórn ekki brotist nema að hluta. Í hinni „norrænu velferðar- stjórn“ afsöluðu Vinstri græn sér öllum áhrifum í utanríkis- málum – gengu gegn því sem var lofað og afhentu Samfylking- unni forræðið að fullu. Stefnan var sett á Brussel undir skipstjórn Öss- urar Skarphéðinssonar en flest önnur hagsmunamál voru sett til hliðar. Leynt og ljóst reyndi vinstri- stjórnin að stilla landsmönnum upp við vegg þannig að þeir teldu sig í raun ekki eiga aðra kosti en að ganga í Evrópusambandið. Póli- tískt samstarf og opin viðskipti við aðrar frænd- og vinaþjóðir áttu ekki upp á borð Samfylkingar og meðreiðarsveina hennar til Bruss- el. En hinn „diplómatíski sigur“ sem fyrrverandi utanríkisráðherra hélt fram að hefði unnist í júlí 2009, þeg- ar ráðherraráð Evrópusambandið samþykkti aðildarumsókn Íslands, snerist í pólitíska martröð. Evrópu- sambandið neitaði að leggja spilin á borðin í sjávarútvegsmálum og „viðræðurnar“ sigldu í strand þeg- ar árið 2011 þótt leikritið héldi áfram allt fram í janúar 2013. Þá neyddist vinstristjórnin, í aðdrag- anda alþingiskosninga, til að horf- ast í augu við staðreyndir og gera formlega hlé á viðræðum við Evr- ópusambandið. Árangurinn af Brusselför Sam- fylkingarinnar var því enginn og helstu ágreiningsmálin – sjávar- útvegur og landbúnaður – voru aldrei rædd. Nú hefur Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmda- stjórnar ESB, kippt síðasta hálmstrái Samfylkingar í burtu. Það er búið að loka á frekari stækk- un ESB næstu fimm árin, til ársins 2019. Illa unnin heimavinna Draumórakennd utanríkisstefna Samfylkingar í upphafi og síðar einstefnan til Brussel hefur leitt til þess að við Íslendingar erum illa undir það búnir að mæta þeim breytingum sem orðið hafa allt í kringum landið, pólitískt og hern- aðarlega. Við höfum heldur ekki náð að grípa þau tækifæri sem eru fyrir hendi með náinni samvinnu og fríverslun við önnur ríki; Noreg, Færeyjar; Grænland; Kanada og Bandaríkin. Engum á að koma þetta á óvart enda heimavinnan illa eða lítt unnin. Á sama tíma og allur kraftur ís- lenskra stjórnvalda fór í „við- ræður“ við Evrópusambandið lögðu Rússar grunninn að nýrri sókn í norðurhöfum. Á síðustu fimm árum hafa rússnesk stjórnvöld, undir for- ystu Vladimír Pútíns forseta, aukið framlög til hermála um 50%. Ríki Atlantshafsbandalagsins hafa hins vegar dregið úr útgjöldum um 20%. Fram undan er stórkostleg upp- bygging herflota Rússlands þar sem Kólaskagi gegnir að nýju lyk- ilhlutverki í hernaðaruppbyggingu og umsvifum í höfunum norður af Íslandi. Þá eru vísbendingar um að Rússar hafi brotið gegn INF- samningnum frá 1987 um útrým- ingu meðaldrægra kjarnorku- flauga. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, vakti athygli á þessum auknu umsvifum í pistli á Evrópu- vaktinni fyrir skömmu þar sem hann benti á að nýir, fullkomnari og hljóðlátari kafbátar á valdi Kreml- verja sæktu nú út á heimshöfin: „Undanfarin ár hefur áhugi á siglingaleiðum umhverfis Ísland aukist vegna áforma um ferðir kaupskipa á norðurslóðum. Látið hefur verið eins og einstök sam- vinna kynni að takast milli Banda- ríkjamanna og Rússa auk annarra ríkja í Norðurskautsráðinu um frið- samlega þróun rannsókna, nýtingar og siglinga vegna loftslagsbreyt- inga. Fari vígdrekar að sveima á þess- um slóðum að nýju breytist staðan fljótt. Þeim fylgir tortryggni í stað trausts. Atburðirnir í Úkraínu hafa einnig gjörbreytt andrúmslofti ör- yggismála í okkar heimshluta.“ Byggt á gömlum og traustum grunni Lítil sem engin umræða hefur átt sér stað meðal íslenskra stjórn- málamanna eða í fjölmiðlum um þær miklu breytingar sem eru að verða og snerta Ísland með beinum hætti, eins og sagan hefur kennt okkur. Þótt unnið sé að mótun þjóð- aröryggisstefnu er byggt á úreltu áhættumati frá árinu 2009. Þess vegna verður sitjandi ríkisstjórn að láta vinna nýtt áhættumat, „ætli hún að leggja fram tillögu um marktæka þjóðaröryggisstefnu,“ eins og Björn Bjarnason hefur fært rök fyrir. Gríðarleg hernaðaruppbygging Rússa er langt í frá eina ógnunin sem steðjar að landi og þjóð. Hryðjuverkamenn eru ekki langt undan, eins og við vorum minnt rækilega á fyrir skömmu þegar Norðmenn höfðu ástæðu til að grípa til víðtækra öryggisráðstaf- ana. Við Íslendingar eru vanbúnir til að bregðast við slíkum ógnunum. Um leið og samskiptin við Bandaríkin hafa visnað, annars vegar vegna sinnuleysis íslenskra stjórnvalda og hins vegar vegna heimskulegrar stefnu Bandaríkj- anna sem mótuð var af Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra í forsetatíð George W. Bush, hafa Kínverjar aukið umsvif sín og áhrif á Norðurslóðum. Íslendingar eru hins vegar stefnulausir í sam- skiptum við kínversk stjórnvöld. Fríverslunarsamningur verður vonandi báðum þjóðum hagfelldur en áhugi Kínverja nær langt út fyr- ir fríverslun – áhugi þeirra er hluti af valdabaráttu stórvelda þar sem tekist er á um auðlindir náttúr- unnar. Það er því rík ástæða til að hafa áhyggjur af því að ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks hafi ekki tekið til hendinni eins og nauðsynlegt er þegar kem- ur að utanríkismálum þjóðarinnar. Mótun stefnunnar er viðamikið og krefjandi verkefni. Þar skiptir mestu að hafa skýra sýn á framtíð- ina, djúpan skilning á þróun al- þjóðamála og heilsteypta hug- myndafræði. Ríkisstjórnin getur byggt á gömlum og traustum grunni sem var lagður árið 1949 og 1951 þegar stjórnmálalegt og efna- hagslegt sjálfstæði landsins var tryggt með virkri þátttöku í Atl- antshafsbandalaginu og varnar- samstarfi við Bandaríkin. Eftir Óla Björn Kárason » Við Íslendingar er- um illa undir það búnir að mæta þeim breytingum sem orðið hafa allt í kringum land- ið, pólitískt og hern- aðarlega. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálf- stæðisflokksins. Ný utanríkisstefna í stað draumóra og einstefnu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.