Morgunblaðið - 07.08.2014, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 07.08.2014, Qupperneq 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2014 » Mikið var um glys og glimmer í Hörpu í gær þarsem drottningar og kóngar skemmtu gestum og kepptu um titilinn Draggdrottning og Dragg- kóngur Íslands 2014. Í dómnefnd þetta árið sátu Anna Friðrikka Guðjónsdóttir, Magnús Jónsson, Pétur Örn Guðmundsson, Sigríður Eyrún Friðriks- dóttir og Þóra Karitas Árnadóttir, en kynnir var Þorsteinn Guðmundsson uppistandari. Draggkeppni Íslands 2014 haldin í Eldborgarsal Hörpu með pomp og prakt Morgunblaðið/Eva Björk Ægisdóttir Svanhildur Sif Halldórsdóttir öðru nafni Russel Brund. Hjálmar Forni öðru nafni Miss Gloria Hole. Freyja Barkardóttir eða J.D. On the Rocks. Sólrún Sandra Guðmundsdóttir eða Axl Tulip. Daníel Halldór Guðmundsson. Grétar Freyr Grétarsson eða Tanjalisjös. Óperukórinn og Söngskólinn í Reykjavík efna til óperutónleika í Hörpu 6. og 7. september næst- komandi og flytja þá hina kunnu óperu Giuseppe Verdis, La trav- iata, í konsert- formi. La traviata er ein allra vinsæl- asta ópera sem samin hefur ver- ið, en hún byggir á sögunni um Kamelíufrúna eftir Alexander Dumas yngri. Kamelíufrúin Marie Duplessis, sem heitir Violetta í La traviata, var ástkona Dumas. Verdi sá Kamel- íufrúna leikna í París vorið 1852 og fáeinum mánuðum síðar hafði hann samið þessa sívinsælu óperu, sem var frumflutt í Feneyjum árið 1853. Flytjendur La traviata nú eru Óperukórinn í Reykjavík ásamt einsöngvurum og sinfóníuhljóm- sveit undir stjórn Garðars Cortes. Í aðalhlutverkum eru Þóra Ein- arsdóttir sem Kamelíufrúin Vío- letta, Garðar Thór Cortes sem ást- maður hennar, Alfredo, Bergþór Pálsson syngur hlutverk Giorgio Germont, föður Alfredos, og Viðar Gunnarson hlutverk Grenville, læknis Violettu. ,,La traviata er afar heillandi verk og við erum mjög stolt að setja það upp með sannkölluðu stórliði óperusöngvara í Hörpu,“ segir Garðar Cortes í tilkynningu. „Það er spennandi að setja La trav- iata upp í konsertformi og það er mikil tilhlökkun hjá tónlistarfólk- inu. Tilefnið er ekki síst 40 ára afmælisgleðskapur Söngskólans í Reykjavík og Óperukórsins.“ La traviata flutt í Hörpu í haust Drama Þóra Einarsdóttir og Garðar Thor Cortes syngja aðalhlutverkin. Garðar Cortes Ný námskeið Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 108 • Reykjavík • Sími 560 1010www.heilsuborg.is Komdu og svitnaðu með okkur! Upplýsingar í síma 560 1010 eða á mottaka@heilsuborg.is Morgunleikfimi mán. mið. og fös. kl. 7:45. Kvennaleikfimi mán. mið. og fös. kl. 16:30. Leikfimi 60+ mán. mið. (opinn tími á fös) kl. 11:00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.