Morgunblaðið - 03.06.2014, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2014
Smáauglýsingar
Gisting
Hótel Sandafell, Þingeyri
auglýsir
Gisting og matur. Erum með 2ja
herb. orlofsíbúð til leigu.
Verið velkomin.
Hótel Sandafell Sími 456 1600.
Sumarhús
Glæsilegar sumarhúsalóðir!
Til sölu eignarlóðir á kjarri vöxnu
hrauni við Ytri-Rangá í landi Leiru-
bakka. Stórkostlegt útsýni. Aðeins
100 km frá Reykjavík. Upplýsingar á
www.fjallaland.is og í síma 8935041.
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Plastgeymslu-útihús 4,5 fm
Auðveld í uppsetningu og viðhaldsfrí.
Verð 180 þús.
Uppl. í síma 893 3503 eða 845 8588.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Teg: Zebra Black Verð: 12.885.-
Teg: Leopard Classic Brown
Verð: 12.885.-
Teg: Santiago Brazil Flag , mýkri
sóli Verð: 14.885.-
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
NICOLAI
BIFREIÐASTILLINGAR
Faxafeni 12 Sími 588-2455
Véla- og hjólastillingar
Tímareimar - Viðgerðir
Húsviðhald
4 herbergja íbúð til leigu
105 fm í Borgum, Grafarvogi,
með sérinngangi og garði.
S. 899 9339.
iceland61@gmail.com
Húsnæði íboði
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga
✝ BrynjólfurIngibjörn Jón
Kristinsson fædd-
ist í Stakkadal í
Aðalvík 28. júlí
1937.
Hann varð bráð-
kvaddur 22. maí
2014.
Foreldrar hans
voru Kristinn Lár-
usson, f. 8.11.
1896, d. 17.2. 1979,
og Herborg Arndís Sölvadóttir,
f. 29.11. 1914, d. 30.12. 2003.
Brynjólfur kvæntist Val-
gerði Kristjánsdóttur, f. 21.6.
1944. Börn Brynjólfs og Val-
gerðar eru: 1) Hildur, f. 19.12.
1964, börn hennar eru: a) Emi-
lie Camille Jóhanna Jacob,
barn hennar: Victoría Camille
Jacob. b) Andrea Marie Krist-
ine Jacob, unnusti Tómas Helgi
Wehmeier. 2) Valdís, f. 26.7.
1966, gift Sævari Hanssyni.
Börn þeirra eru : Aron Hans,
Irena og Eyrún Þóra. 3) Sigríð-
ur Kristín, f. 13.10. 1967. Börn
hennar eru: a) Valgerður
Brynja Viðarsdóttir, sambýlis-
maður Davíð Þór Björnsson.
Börn þeirra eru Ylfa Rán
Hjaltadóttir, Jakob Júlíusson
og Aþena Ýr Davíðsdóttir. b)
Pálmar Dan Einarsson. 4)
Hrund, f. 21.6. 1974. Börn
starfaði sem rafstöðvarstjóri.
Tuttugu og eins árs gamall
keypti hann vörubíl og vann á
honum við vegagerð og um
tíma fyrir herstöðina á
Straumnesfjalli.
Árið 1961 fluttist Brynjólfur
suður til Reykjavíkur og starf-
aði sem bílstjóri hjá Ísbirninum
um nokkurt skeið. Um tíma
keyrði hann fyrir Sanitas og
gerðist síðar strætisvagna-
bílstjóri.
Hann kynntist Valgerði
Kristjánsdóttur 1965 og hófu
þau búskap á Óðinsgötu 21.
Þegar dæturnar voru orðnar
þrjár fluttu þau í Írabakka þar
sem yngsta dóttirin fæddist.
Árið 1975 fluttist fjölskyldan
til Bolungarvíkur þar sem
Brynjólfur vann hin ýmsu
störf; eins og við krókaveiðar á
eigin trillu, sem lögreglumað-
ur og hjá Orkubúi Vestfjarða.
Þau fluttust aftur til Reykja-
víkur árið 1981. Eftir það vann
hann lengst af sem lagermaður
hjá Strætó. Árið 2001 skildu
Brynjólfur og Valgerður.
Síðustu níu árin átti Brynj-
ólfur samfylgd með Erlu Sig-
urjónsdóttur, sem var unnusta
hans og besti vinur.
Útförin fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag, 3. júní 2014,
kl. 13.
hennar eru: Alex-
andra Nadía
Boutazert, Ísabella
Diljá, Emilíana Eik
og Karólína Katrín
Sigursteinsdætur.
Fyrir átti Brynj-
ólfur þrjú börn. 5)
Kristinn Lárus, f.
2.10. 1959, kvænt-
ur Guðmundu Guð-
jónsdóttur. Börn
þeirra eru: Krist-
ófer Andri og Sara, en fyrir á
Kristinn dótturina Rakel. 6)
Kristjana, f. 15.3. 1960. Börn
hennar eru: Heimir De Mattos
Jónsson, giftur Mörtu De Mat-
tos Isaac Jónsson, og Albert
Freyr Einarsson. 7) Páll, f. 8.6.
1960, kvæntur Margaret Brynj-
olfsson. Börn þeirra eru: a)
Matthew Brynjolfsson, sam-
býliskona Stephanie Casbolt.
Börn þeirra eru Jack Brynj-
olfsson og Oliver Brynjolfsson.
b) Kristy Brynjolfsson. Barn
hennar er Chloe Doyle.
Brynjólfur fluttist úr Að-
alvík í Tungu í Önundarfirði
1943. Hann fluttist til Ísafjarð-
ar um 1950 og gekk í Barna-
skóla Ísafjarðar og síðar Gagn-
fræðaskóla Ísafjarðar. Árið
1954 fluttist hann ásamt for-
eldrum sínum að Fossum í
Engidal þar sem faðir hans
Þegar afi kom í heimsókn var
ferðataflið hans Kristófers oft
tekið fram, tafl sem hann hafði
keypt sér á eyjunni Krít, þá níu
ára gamall. Afa þótti vænt um
tafláhuga unga drengsins og
drengnum fannst mikið til kunn-
áttu afa koma. Afi nennti líka
alltaf að tefla. Það var svo ein
jólin að Kristófer opnar jólagjöf-
ina frá Binna afa og var það til-
finningaþrungin stund. Hann
hafði nefnilega pakkað inn skák-
tölvunni sinni, sem honum þótti
sjálfum afar vænt um, tölvu sem
hann hafði átt til margra ára og
notaði á hverjum degi. Þetta var
Binni afi. En börnin voru ekki
ein um að gleðjast yfir heim-
sóknum afa. Hann var í miklu
uppáhaldi hjá Kára hundi og
voru móttökurnar eftir því.
Hundurinn hoppaði og skoppaði
og lét öllum illum látum og afi
hló. Það er þannig sem ég minn-
ist Binna; ávallt kátur og glaður
með bros á vör og alltaf svo góð-
ur við menn og dýr. Eftir að
Binni hætti að vinna var hann
duglegur að kíkja í kaffi og
hringja í okkur. Við grínuðumst
stundum með það hvað afi væri
fylginn sér, því ef hann náði ekki
í eitthvert okkar hélt hann
áfram að hringja í næsta fjöl-
skyldumeðlim og linnti ekki lát-
um fyrr en einhver svaraði. Það
gerðist því stundum að krakk-
arnir fengu upphringingu frá
afa í miðri skólastund. Þetta
þótti mér vænt um. Hann hafði
áhuga á fólkinu sínu. Þegar
Rakel fór í Asíureisuna sína
hafði afi mikla þörf fyrir að
fylgjast með og hafði oft óneit-
anlega áhyggjur af sonardóttur
sinni sem hann tengdi alls kyns
fréttaflutningi sem við fáum frá
hinum stóra heimi.
Það var Binna gæfa að kynn-
ast Erlu sinni. Ég man þegar
þau komu fyrst í heimsókn til
okkar fyrir níu árum. Binni
hafði yngst um mörg ár og
hrifningin skein úr augum hans.
En Erla bræddi ekki aðeins
hjarta Binna heldur líka okkar
hinna. Við áttum góðar stundir
með Erlu og Binna. Mér er
minnisstætt þegar við fórum
saman til Hveragerðis fyrir
tveimur árum. Við skoðuðum
samsýningu á Listasafni Árnes-
inga, fórum og keyptum allt of
litla sundskýlu á afa og drukk-
um svo nesti úti í náttúrunni. Að
lokum bauð afi öllum upp á ís.
Þetta var góður dagur.
Elsku Erla, megi guð styrkja
þig.
Guðmunda Guðjónsdóttir.
Líttu sérhvert sólarlag,
sem þitt hinsta væri það.
Því morgni eftir orðinn dag
enginn gengur vísum að.
(Bragi Valdimar Skúlason)
Pabbi kvaddi skyndilega. Það
var svo fagur dagur. Sólin skein
og pabba leið vel. Hann lést úti í
þessu blíðskaparveðri hjólandi á
leið til vinar síns. Það er mér
huggun að hann skyldi ekki
þurfa að upplifa veikindi og
finna vanmáttinn sem því hlýtur
að fylgja. Pabbi lifði eins og efri
árin væru bær í Rússlandi.
Hann lét sig dreyma og hann
framkvæmdi marga af sínum
draumum. Aldurinn aftraði hon-
um ekki þegar hann hóf að
byggja sér bústað, kominn yfir
sjötugt. Lengi dreymdi hann um
að eignast svifnökkva en fór
milliveginn og fékk sér mót-
orknúinn gúmmíbát. Hann fékk
þó ekki að njóta hans lengi því
honum var því miður stolið.
Já, pabbi hafði mikið gaman
af ýmsum tækjum og tólum.
Þegar fólk fór að geta keypt sér
vídeóupptökuvélar til heimilis-
nota keypti hann sína fyrstu vél
og það varð áhugamál sem ent-
ist í mörg ár. Það eru því til
ógrynnin öll af upptökum af
ýmsum viðburðum fjölskyldunn-
ar. Síðustu árin var hann hættur
að taka upp og farinn að vinna í
að koma þessu öllu á stafrænt
form.
Sama hvað þurfti að bæta og
breyta þá gat pabbi það, misvel
oft á tíðum en hann reyndi og
hann komst oft langt á þolin-
mæðinni og þrjóskunni einni
saman. Við systurnar vorum að
rifja upp ferð sem farin var upp
á hálendi Íslands til að kynna
nýja franska tengdasyninum
landið. Þetta var ævintýraleg
ferð þar sem við vorum ekkert
sérlega vel búin og vorum til
dæmis á gömlum Bronco. Það er
mér minnisstætt þegar brems-
urnar gáfu sig og það uppgötv-
aðist þegar átti að hægja á, á
leið niður brekku. Pabbi reddaði
málinu þarna uppi á öræfum
með tannkremstúpu og kom-
umst við þannig á leiðarenda!
Hann hafði óendanlega mikla
þolinmæði þegar mig vantaði að-
stoð við til dæmis stærðfræðina.
Það endaði oft á að ég var löngu
búin að gefast upp á dæminu
meðan pabbi sat og með und-
arlegri aðferð, sem var langt frá
þeirri sem kennd var í skólan-
um, tókst að fá rétta niðurstöðu!
Þessir eiginleikar hans, þol-
inmæðin og þrjóskan, komu
honum líka langt í skákinni.
Hann tefldi oft við Val mág sinn
og fannst mér þá skemmtilegast
að fá að stjórna klukkunni sem
ég fékk endrum og eins en
keppnisandinn var mikill hjá
þeim og einbeitingin algjör.
Hann tefldi við félaga sína hjá
Strætó og fór utan í þó nokkrar
skákferðir.
Hann hafði líka gaman af að
spila og ég man þegar ég var lít-
il hvað það var gaman um jólin
þegar sjávarútvegsspilið var
tekið fram og pabbi spilaði við
okkur stelpurnar tímunum sam-
an því þetta var mjög langt spil.
Seinna tók scrabble við og ég
held mér hafi aldrei tekist að
vinna hann í því.
Síðustu árin átti pabbi með
henni Erlu sinni. Hún dró allt
það besta fram í honum og það
var yndislegt að sjá hvað honum
leið vel með henni. Ég votta
henni mína dýpstu samúð og bið
Guð að styrkja hana á þessum
erfiðu stundum.
Hrund Brynjólfsdóttir.
Brynjólfur Ingibjörn
Jón Kristinsson
Við kveðjum í
dag hinstu kveðju
góðan félaga og
vin, Jónas G. Ingi-
mundarson.
Að baki eru mikil samskipti í
marga áratugi. Samskipti og
samstarf sem aldrei bar skugga
á. Nú á því svo sannarlega við
orðatiltækið „enginn veit hvað
átt hefur fyrr en misst hefur“.
Við Jonni þekktum hvor ann-
an mjög vel enda höfðum við
fengist við ýmiskonar verkefni
saman. Þau verkefni voru öll
með sama hætti, Jonni hafði
alla forystu og verkstjórn í
þeim öllum enda þekking hans
Jónas Gunnar
Ingimundarson
✝ Jónas GunnarIngimundarson
fæddist 4. ágúst
1948, hann lést 11.
maí 2014. Útför
Jónasar fór fram
22. maí 2014.
og útsjónarsemi
einstök. Ég held að
það hafi aldrei
komið upp í huga
mér að gera alvar-
legar athugasemd-
ir eða breytingar-
tillögur þegar
Jonni hafði sett
stefnuna á ákveðna
lausn. Hans lausnir
voru enda vel
ígrundaðar og út-
spekúleraðar og ég bar líka
alltaf fulla virðingu fyrir hans
hefðbundna undirbúningi fyrir
lausn erfiðustu mála. Undir-
búningurinn fyrir erfið við-
fangsefni fólst ávallt í því að
kynda upp eina til tvær pípur,
kannski með smá kaffisopa. Það
lengsta sem ég gekk í því að
gera beytingatillögur við verk-
lag var að spyrja hvort ekki
væri rétt að kynda eina pípu í
viðbót áður en ráðist væri í
verkið. Það kom fyrir að ég
hafði orð á því að ég væri ekki
frá því að liturinn á reyknum
sem steig upp af pípunni væri
eilítið ljósari þegar var að stytt-
ast í lausnina. Ég hef í gegnum
tíðina kynnst mörgum vöru-
merkjum, misjafnlega sterkum,
sumum jafnvel heimsþekktum
og þar á meðal sterkustu vöru-
merkjum heims, s.s. Coca Cola
o.fl. Ég held að ég hafi samt
aldrei kynnst traustara og
öruggara vörumerki en pípunni
hans Jonna.
Hún var beinlínis óaðskiljan-
legur hluti af honum sjálfum og
karaktereinkenni. Hún var
hluti af hans persónulega stíl.
Við áttum ótal margar sam-
verustundir við ýmis verkefni.
Oft var mikið spjallað og ýmis
mál krufin til mergjar, m.a. hin
ýmsu þjóðfélagsmál. Jonni
hafði oft á tíðum býsna sterkar
skoðanir á bæði mönnum og
málefnum. Við vorum oftar en
ekki sammála þó hitt kæmi fyr-
ir að við værum ekki alveg á
sömu línu. Þau mál sigldu oft-
ast sjálfkrafa út af dagskránni
vandræðalaust.
Ég hygg að Jonni hafi verið
fremur dulur en í okkar spjalli
var ávallt stutt í húmorinn og
ég held að svo hafi verið í sam-
skiptum við þá sem hann
þekkti. Hann var mjög minn-
ugur og hafði gaman af sögum,
ekki síst ef innihaldið var í létt-
ari kantinum.
Við Rabbý söknum nú
trausts vinar og velgjörðar-
manns sem ávallt var tilbúinn
að rétta hjálparhönd þegar á
þurfti að halda. Við eigum hon-
um margt að þakka.
Lífið er undarleg vegferð
sem oft reynist erfitt að skilja
og sætta sig við en við trúum
því að tilgangur sé með öllu og
hæfileikar Jonna, trúmennska
og tryggð fái áfram notið sín á
nýjum slóðum.
Minningin um Jonna mun
lifa, við blessum minningu hans
og biðjum Guð að umvefja hann
eilífu ljósi.
Við hjónin sendum þér,
Fanney, börnum ykkar og fjöl-
skyldum innilegar samúðar-
kveðjur og biðjum þess að ykk-
ur megi hlotnast styrkur í
mikilli sorg og blessa ykkur
minninguna um hann Jonna.
Guðjón Stefánsson.